Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Skipulags- og samgönguráð
Reykjavíkur hefur samþykkt nýjar
vistgötur í borginni.
Um er að ræða Lágholtsveg,
Drafnarstíg frá Öldugötu og botn-
langana Þverás 1-7 og 9-15. Þá
verður svæði innan reits sem af-
markast af Laugavegi, Katrínar-
túni, Bríetartúni og Rauðarárstíg
(Skúlagarður) vistgötusvæði.
Vistgata er gata þar sem umferð
gangandi vegfarenda og hægfara
faratækja, eins og reiðhjóla, hjóla-
skauta eða hjólabretta, hefur for-
gang fram yfir umferð bíla.
Venjulega er hraði takmarkaður
við gönguhraða og gangandi veg-
farendum, börnum að leik o.s.frv.
er heimilt að nota götuna til jafns
við bíla. Hámarkshraði bifreiða er
10 km/klst.
Ofangreind ráðstöfun verði
merkt með viðeigandi umferðar-
merkjum og yfirborðsmerkingu
þar sem það á við. sisi@mbl.is
Nýjar vist-
götur í
borginni
- Hægfara umferð
rétthærri en bílar
Morgunblaðið/Ómar
Breyting Vesturgötunni breytt í
vistgötu fyrir nokkrum árum.
Leit er hafin að nýju varðskipi Ís-
lendinga, en sem kunnugt er mun
það fá nafnið Freyja.
Ríkiskaup hafa fyrir hönd Land-
helgisgæslunnar auglýst eftir
áhugasömum seljendum slíkra
skipa. Auglýsingin er birt á EES-
svæðinu og er skilafrestur til 13.
maí næstkomandi.
Fram kemur í auglýsingu Ríkis-
kaupa að verið sé að leita að þjón-
ustuskipi eða sambærilegu skipi.
Það má ekki vera eldra en frá
árinu 2005. Það skal vera 74-95
metrar að lengd og lágmarksgang-
hraði skal vera 15 sjómílur á
klukkustund. Þriggja manna
starfshópur undirbýr kaupin og
miðast ferlið við að varðskipið
Freyja verði fullbúið og komið til
Íslands snemma í haust.
Alvarlegar bilanir í Tý
Þegar varðskipið Týr var tekið í
slipp í janúar sl. komu í ljós alvar-
legar bilanir. Óraunhæft var talið
að fara í kostnaðarsamar viðgerðir
og því samþykkti ríkisstjórnin til-
lögu Áslaugar Örnu Sigurbjörns-
dóttur dómsmálaráðherra þess
efnis að þegar verði hafist handa
við kaup á nýlegu skip.
Staða á mörkuðum fyrir kaup á
nýlegum skipum, t.d. þjónustu-
skipum úr olíuiðnaðinum, er talin
einkar góð um þessar mundir. Um
er að ræða skip sem henti vel til að
sinna verkefnum Landhelgisgæsl-
unnar með mikla dráttargetu,
góða stjórnhæfni, gott dekkpláss
og fullkominn slökkvibúnað.
sisi@mbl.is
Leit hafin að nýju varðskipi
Morgunblaðið/Eggert
Um borð í Þór Tilkynnt um kaup á nýju varðskipi sem mun fá nafnið Freyja.
- Ríkiskaup auglýsa á EES-svæðinu eftir þjónustuskipi
Verkefni sem Íslensk NýOrka stýrir
hlaut nýlega tíu milljóna króna styrk
úr Loftslagssjóði fyrir verkefnið
skrokk- og kerfishönnun á fjölnota
raftvíbytnu. Samstarfsaðilar eru
Arctic Clean Invest ehf., Mannvit,
Faxaflóahafnir og Orka náttúrunn-
ar. Verkefnið miðar að því að for-
hanna raftvíbytnu og greina lykil-
notkunarmöguleika hennar, með
áherslu á almenningssamgöngur og
haftengda ferðaþjónustu.
Markmiðið er að hanna skrokk og
rafkerfi sem hefur þann eiginleika
að hægt er að byggja mismunandi
yfirbyggingar ofan á skrokkinn þar
sem yfirbyggingin á skrokknum og
lengd hans getur verið fjölbreytt eft-
ir þörfum viðskiptavinar. Verkefnið
byggir á þekkingu sem varð til á Ís-
landi með rafvæðingu hvalaskoð-
unarbáta Norðursiglingar og hefur
verið þróuð enn frekar í Noregi á
undanförnum árum.
Styrkur til að
forhanna fjöl-
nota raftvíbytnu
Að lifa eða lifa af?
EITT
SAMFÉLAG
FYRIR ALLA
ertu
ekki að
skilja
okkur
-eftir?
átækt?
-nei takk
örorka er
ávísun á
einangrun
1. MAÍ
við
viljum
efndir
Við höfum viðurkennt rétt fatlaðs fólks til sífellt batnandi lífskjara
og að það verði að veruleika án mismununar
(úr samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks SRFF)
Með staðfestingu SRFF hafa stjórnmálamenn skuldbundið sig til
að tryggja þann rétt. Það er löngu kominn tími efnda.