Morgunblaðið - 01.05.2021, Side 28
Stofnmælingar á þorski og ýsu 1985-2021
Stofnvísitala (lífmassi) þorsks í mars- og haustralli
Stofnvísitala (lífmassi) ýsu í mars- og haustralli
Útbreiðsla ýsu í marsralli árin 1985, 1995, 2010 og 2021
1985 1995 2010 2021
Heimild: Hafró
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
S
tofnvísitala þorsks hefur
lækkað frá hámarki áranna
2015-2017 og er nú svipuð og
árin 2018-2019, samkvæmt
niðurstöðum úr stofnmælingu botn-
fiska á Íslandsmiðum, en það er einn-
ig nefnt vor-, mars- eða togararall
Hafrannsóknastofnunar. Guðmundur
Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávar-
sviðs, segir að þó svo að vísitalan sé
aðeins upp á við frá síðasta ári hafi
hún síðustu fjögur ár verið nokkru
lægri en árin þrjú þar á undan. Hann
segist óttast að þessi þróun geti kom-
ið fram í stofnmatinu, sem kynnt
verður í byrjun sumars.
Sýnd veiði en ekki gefin
Í heildina segir Guðmundur
þorskstofninn vera sterkan og
ánægjulegt sé að árgangurinn frá síð-
asta ári, og árgangurinn frá 2019,
virðist vera sterkir. Þeir séu þó enn
sýnd veiði en ekki gefin því fiskurinn
komi ekki að ráði inn í veiðina fyrr en
5-6 ára gamall og ýmislegt geti komið
upp á. Guðmundur segir að 2016-
árgangurinn sé áberandi slakur og
ekki sé mikils að vænta af honum. Ár-
gangar þorsks 2014 og 2015 mælast
nú yfir meðaltali í fjölda, og árgangar
2017 og 2018 eru undir eða nálægt
meðaltali. Árgangar 2007-2012 mæld-
ust allir yfir meðaltali í ár, að því er
fram kemur í skýrslu um vorrallið.
Í grein sem Guðmundur skrifaði
í Morgunblaðið í vetur sagði meðal
annars: „Vöxtur þorskstofnsins og
aflaaukning á undanförnum árum
hefur fyrst og fremst verið vegna
þess að sókn hefur verið hófleg og ár-
gangar endast lengur í stofninum. Nú
má hins vegar segja að ákveðnu jafn-
vægi sé náð miðað við þá nýliðun sem
verið hefur á undanförnum árum.
Það er því ekki að vænta aukningar á
næstu árum á sömu forsendum held-
ur má búast við einhverjum sveiflum í
ráðgjöf ef missterkir árgangar ganga
í gegnum veiðistofninn. Ef nýliðun
heldur áfram að aukast mun það hins
vegar leiða til aukningar í aflaheim-
ildum.“
Líkt og síðustu ár fékkst góður
afli af þorski allt í kringum landið,
en þó fékkst minna en oft áður í
köntunum út af Vestfjörðum og
minna fékkst við norðanvert landið
en undanfarin ár. Óvenjumikið
fékkst af þorski við sunnanvert land-
ið. Loðna var langmikilvægasta bráð
þorsksins eins og ávallt á þessum
árstíma og fannst í mögum þorsks
allt í kringum landið, mest á grunn-
slóð.
Jafnt fyrir norðan og sunnan
Stofnvísitala ýsu hefur farið
hækkandi frá 2016. Vísitalan hækkaði
verulega á árunum 2001-2005 í kjölfar
góðrar nýliðunar og á sama tíma
jókst útbreiðsla ýsu norður fyrir land.
Í ár fékkst svipað magn af ýsu fyrir
norðan og sunnan land. Árgangar ýsu
frá 2019 og 2020 mælast mjög stórir
og eru stærstu árgangar ýsu frá
árinu 2004 ef miðað er við mælingar á
eins og tveggja ára fiski. Guðmundur
segir að góð nýliðun gefi vonir um
stærri veiðistofn ýsu eftir 2-3 ár.
Stofnvísitala ufsa hefur lækkað
frá 2018 og er nú nálægt meðaltali.
Vísitala gullkarfa í stofnmæl-
ingunni fór hækkandi frá 2008 til
2016 og hefur haldist há síðan.
Vorrall hefur verið framkvæmt
með sambærilegum hætti ár hvert
frá 1985. Rannsóknaskipin Árni
Friðriksson og Bjarni Sæmundsson
og togararnir Breki VE og Gullver
NS, og alls um 100 starfsmenn, tóku
þátt í verkefninu.
Vísitala þorsks hefur
gefið eftir síðustu ár
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Skuldahremm-ingarReykjavíkur-
borgar halda
áfram. Ársreikn-
ingur borgarinnar fyrir árið
2020 var lagður fyrir borgarráð
á fimmtudag. Þar kemur fram
að afkoma borgarsjóðs var 15
milljörðum króna verri en áætl-
að var og skuldir borgarinnar
nema 386 milljörðum króna.
Gert hafði verið ráð fyrir að
rekstur samstæðu A- og B-hluta
Reykjavíkurborgar yrði 12
milljarða í plús, en hann reynd-
ist vera 2,8 milljarða í mínus.
Í frétt í Morgunblaðinu í gær
er vitnað í tilkynningu frá Degi
B. Eggertssyni borgarstjóra
þar sem hann rekur þessa nið-
urstöðu til heimsfaraldursins.
Hann hafi haft mest áhrif á
versnandi stöðu fjárhags
Reykjavíkurborgar, áætlanir
hefðu byggst á frekari aukningu
tekna, sem ekki hafi skilað sér.
Samdráttur í ferðaþjónustu hafi
auk þess valdið miklu tekjufalli
hjá Faxaflóahöfnum, Sorpu og
jafnvel Strætó.
Vitaskuld er alltaf hægt að
finna útskýringar þegar hlut-
irnir fara á annan veg en ætlað
var. Fyrir rúmu ári barmaði
meirihlutinn í borginni sér út af
ferðamönnum. Þá hafði starfs-
hópur hjá borginni komist að
þeirri niðurstöðu að árið 2018
hefðu tekjur borgarinnar af er-
lendum ferðamönnum verið 10,5
milljarðar króna, en kostnaður-
inn vegna þeirra 18,7 milljarðar
króna. Borgin hefði því orðið af
8,3 milljörðum vegna ferða-
manna.
Ef eitthvað er að marka þessa
útreikninga hefði meirihlutinn
nú átt að geta varpað öndinni
léttar yfir því að komast hjá
kostnaði upp á tæpa 19 millj-
arða vegna ferðamannaleys-
isins. Samkvæmt því hefði veir-
an átt að færa borginni rúma
átta milljarða króna með því að
flæma burt ferðamennina.
Þegar ferðamönnum er kennt
um glundroðann í fjármálum
borgarinnar bæði þegar þeir
koma og þegar þeir halda sig
fjarri eru skýringarnar orðnar
ansi marklausar.
Kórónuveiran hefur haft sín
áhrif um allt samfélagið og
ástæðulaust að gera lítið úr því.
Sú hefur þó ekki verið raunin á
öllum vígstöðvum og greindi
Samband íslenskra sveitarfé-
laga frá því í janúar að útsvar
innheimt í staðgreiðslu á höf-
uðborgarsvæðinu á tímabilinu
frá febrúar til desember 2020 –
sem sagt eftir að faraldurinn
skall á – hefði verið 4% hærra
en á sömu mánuðum árið á und-
an. Þar var því ekki um tekjufall
að ræða.
Óreiðan í rekstri borgarinnar
er eitt. Verri er hins vegar
skuldasöfnunin. Hluta hennar
má rekja til þess að gengi krón-
unnar hefur fallið, en hún var
orðin afleit áður en það kom til.
Eyþór Arnalds, oddviti
sjálfstæðismanna í
borgarstjórn, segir
í viðtali í Morg-
unblaðinu í gær að
fjárhagsstaða
borgarinnar sé grafalvarleg og
enn sígi á ógæfuhliðina. Til
marks um það sé að í upphafi
kjörtímabils hafi uppgreiðslu-
tími skulda borgarinnar verið
sex ár, en sé nú kominn í 12 ár
þrátt fyrir stórauknar tekjur.
Skuldirnar hafa hækkað um
41 milljarð króna frá síðasta
ári. Bendir Eyþór á að þetta
séu 3.400 milljónir á hverjum
mánuði og 112 milljónir króna á
dag.
Víst er að skuldamælirinn
hefur haldið áfram að tifa á
þessu ári og spurning hvort
rekstur borgarinnar sé sjálfbær
eins og málum er komið. Sú
spurning er ekki úr lausu lofti
gripin. Í umsögn borgarinnar
um frumvörp ríkisstjórnarinnar
til að mæta áhrifum kórónu-
veirufaraldursins í apríl í fyrra
og ákalli um hjálp stóð eftirfar-
andi: „Vandinn snýst hins vegar
ekki aðeins um skammtíma
fjármögnunarvanda heldur
stefnir í algerlega ósjálfbæran
rekstur til margra ára. Þessa
ósjálfbærni er ekki hægt að
leysa með hækkun leyfilegrar
skattlagningar eða þjónustu-
gjalda eða með stórfelldum nið-
urskurði í útgjöldum borg-
arinnar sem varða að langmestu
leyti leik- og grunnskóla og vel-
ferðarþjónustu. Hefðbundnar
aðferðir er ekki í boði.“ Þessi
texti er frá borginni og er sárt
ákall um hjálp.
Þetta er ekki gæfuleg staða
og hrollvekjandi að hugsa til
þess að meirihlutinn sé staðráð-
inn í að bæta gráu ofan á svart
með svimandi lántökum vegna
fyrirhugaðrar borgarlínu. Þetta
er glannaleg hegðun og spurn-
ing hvort hana megi rekja til
þess að meirihlutinn telji sig í
skjóli vegna þess að borgin sé
of stór til að henni verði leyft að
fara fram af nöfinni.
Fjárfrekar tilraunir til þess
að hvetja fólk til að taka strætó
hafa mistekist hrapallega. Hug-
myndirnar um borgarlínu eru
byggðar á fullkominni ósk-
hyggju og hefur ekki verið sýnt
fram á neitt því til stuðnings að
tilkoma hennar muni snar-
breyta ferðavenjum í borginni.
Þá fylgir því ekki aðeins
kostnaður að koma borgarlín-
unni upp, það þarf líka að reka
hana og ekki hefur verið út-
skýrt hvernig sveitarfélög, sem
eiga í vandræðum með að reka
almenningssamgöngur í núver-
andi mynd, ætla að fara að því.
En jafnvel þótt hugmyndin
um borgarlínu væri frábær og
allar líkur væru á að vagnar
hennar færu um fullir af fólki
og bílar hyrfu af götum væri
glapræði að ráðast í gerð henn-
ar undir núverandi kringum-
stæðum vegna þess að það er
einfaldlega ekki á skuldastöðu
borgarinnar bætandi.
Staðan í fjármálum
Reykjavíkur er svört}Bágstödd borg
N
ámsmenn eru fjölbreyttur hóp-
ur fólks. Aðstæður námsmanna
eru ólíkar, fjölskylduhagir mis-
munandi og atvinnutækifærin
misjöfn. Sumir búa í foreldra-
húsum á meðan aðrir leigja stúdentaíbúð eða á
frjálsum markaði. Sumir hafa ágætar tekjur
og traust bakland, en líklega eru þeir fleiri
sem þurfa að horfa í eyrinn og neita sér um
ýmislegt.
Hlutverk stjórnvalda er að jafna þennan
mun eins og kostur er og veita námsmönnum
stuðning sem tekur mið af aðstæðum. Sumar
ákvarðanir eru almennar, en aðrar miða að
skilgreindum hópum, t.d. námsmönnum er-
lendis sem fá staðaruppbót og fjölskyldufólki
sem fær beinan fjárstuðning vegna fram-
færslu barna. Nýjasta viðbótin við stuðnings-
kerfi námsmanna var samþykkt á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gær, en hún heimilar Menntasjóði námsmanna
að verja allt að hálfum milljarði króna í framfærsluauka
til þeirra námsmanna sem þurfa mest á honum að halda.
Ákvörðunin er liður í efnahagsaðgerðum stjórnvalda
vegna Covid-19, en ljóst má vera að atvinnutækifæri
sumra námsmanna eru takmörkuð vegna minni umsvifa í
hagkerfinu. Ýmislegt bendir þó til að atvinnulífið sé að
taka við sér, enda ganga bólusetningar vel og stefnt er að
afléttingu samkomutakmarkana á næstu vikum. Vonir
standa því til að allir áhugasamir námsmenn fái vinnu á
komandi sumri og geti aflað sér tekna.
Á þeim vettvangi mun ekki standa á hinu opinbera, því
ríkisstjórnin hefur ákveðið að skapa þúsundir
starfa fyrir námsmenn og verja 2,3 millj-
örðum króna í launagreiðslur til þeirra sem
ráðast í vinnu. Þá hefur Nýsköpunarsjóður
námsmanna verið stækkaður vegna aðstæðna
og styrkveitingar úr honum munu opna tæki-
færi fyrir námsmenn með góðar hugmyndir
og drifkraft til að framkvæma þær.
Stuðningskerfi íslenskra námsmanna hefur
gjörbreyst til batnaðar á kjörtímabilinu.
Stuðningur við námsmenn er réttlátari og
betri en áður og stofnun Menntasjóðs náms-
manna markaði tímamót. Nú er höfuðstóll ís-
lenskra námslána lækkaður við námslok og
30% skuldarinnar felld niður. Foreldrar í
námi fá beinan stuðning vegna framfærslu
barna, en áður var lánað til framfærslunnar
og því var skuldastaðan við námslok umtals-
vert verri en í núverandi kerfi. Þá hafa námsmenn meira
svigrúm til að afla sér tekna, því frítekjumark þeirra hef-
ur verið hækkað um 52% á undanförnum tveimur árum.
Staða námsmanna er mér mjög hugleikin og ég mun
áfram vinna að því að bæta hag þeirra og líðan. Í því sam-
hengi er sérstakt fagnaðarefni að ríkisstjórnin hafi varið
allt að 150 milljónum króna til geðheilbrigðisþjónustu í
framhalds- og háskólum, en þörfin fyrir slíka þjónustu
hefur aukist mjög. Þeim fjármunum er sannarlega vel
varið, enda geðheilbrigði forsenda velgengni í leik og
starfi.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Enn meiri stuðningur við námsmenn
Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Brislingur fékkst í fyrsta skipti í
marsralli; alls 375 fiskar á 13
stöðvum við sunnan- og vest-
anvert landið frá Meðallands-
bug til Patreksfjarðarflóa. Brisl-
ingur fannst fyrst við Ísland á
20 metra dýpi undan Eyjafjalla-
sandi í grunnslóðarleiðangri
Hafrannsóknastofnunar sum-
arið 2017 og 25 fiskar fengust í
haustralli 2020. Brislingur er
fiskur af síldarætt og verður
sjaldnast stærri en 16 senti-
metrar.
Magn ýmissa suðlægra teg-
unda sem lítið eru nýttar, s.s.
svartgómu, loðháfs, litlu
brosmu og trjónuhala hefur
aukist á síðustu árum, en á
sama tíma hafa ýmsar kaldsjáv-
artegundir gefið eftir á land-
grunninu fyrir norðan, sam-
kvæmt niðurstöðum rallsins.
Fengu 375
brislinga
Í FYRSTA SINN Í VORRALLI