Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt M ánaðamót apríl og maí gefa tilefni til að rifja upp vísuna um að ap., jún., sept., nóv. hafa þrjátíu daga hver en hinir mánuðirnir kjósa sér einn til, nema febrúar sem ber sína tvenna fjórtán ef ekki er hlaupár. Febrúar var raunar um skeið síðasti mánuður ársins að tímatali Rómverja og mars sá fyrsti en ekki hinn þriðji eins og nú. Fyrir vikið geyma heitin september, október, nóvember og desember í sér latnesku töluorðin septem, octo, novem, decem, þ.e. sjö, átta, níu, tíu. Marsmánuður, Martius mensis eða mensis Martius, var kenndur við orrustuguð Rómverja. Eftir honum var einnig nefnd reikistjarnan Mars sem við erum nú óðum að kynnast betur en nokkur önnur kynslóð hefur getað gert fyrr í mannkynssögunni. Latneska eignarfallið af nafn- inu Mars er Martis. Þekkt eru dæmi þess að stúlkum sem fæðast í marsmánuði hafi því verið gefið nafnið Marta. Í dönsku er mánaðarheitið ritað marts sem sýnir tengsl við t-ið í rót orðsins. Í íslensku var rit- að marz áður en við lögðum niður þann sið að rita z. Heiti vikudaga og mánaða skal rita með litlum upphafs- staf í íslensku: fimmtudagur, týsdagur, júní, ágúst, þorri. Í ensku gilda aðrar reglur (Tu- esday, June). Eins og dæmin sýna má Týr þola það að dag- urinn sem við hann var kennd- ur ber lítinn upphafsstaf í ís- lensku ritmáli, rétt eins og marsmánuður hefst á litlu m-i í íslensku, dönsku og víðar þrátt fyrir guðlegan uppruna mánaðarheitisins og tengslin við reikistjörnuna rauðu. Mánaðarheitin janúar, febrúar o.s.frv. eru karlkynsnafnorð eins og sjá má þegar lýsingarorð vísa til þeirra: apríl var mildur, ágúst var vætusamur. Helsta sérkenni þessara nafnorða er að ekki tíðkast að hafa beygingarend- ingar á þeim: um miðjan apríl, frá miðjum apríl, til loka apríl. Raunar þekkt- ist eignarfalls-s í eldra máli. Í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls er þessi athugasemd við öll mánaðarheitin nema mars: „Eignarfallsmyndin [janúars o.s.frv.] finnst í 19. aldar textum. Í nútímamáli er hefðin sú að hafa mán- aðarheitið endingarlaust í eignarfalli.“ Stundum notum við samsetningar með –mánuður og tölum um að áætl- unarferðir hefjist í lok maímánaðar eða að þingið sitji ekki meginhluta jan- úarmánaðar. Þannig mætti svo sem hugsa sér að venjulegu mánaðarheitin (apríl, maí …) væru einhvers konar styttingar en í raun og veru eru þau al- veg sjálfstæðar einingar í orðaforðanum. Fyrir nokkrum vikum skrifaði ég hér um orðið hraun og gat um mismun- andi merkingu orðsins fyrr og síðar; það hafi verið notað í norrænu fyrir landnám um klappir, steina og grjót, en eldvirknin hérlendis hafi kallað á víð- ari merkingu, um eldbrunnið grjót og hraunkviku. Vegna plássleysis fór ég hratt yfir sögu um daginn en geri nú bragarbót og tek fram að orðið hraun hefur hérlendis einnig verið haft um stórgrýtisurð, framhrun í hömrum, ósléttar klappir og hrjóstrugt og grýtt land. Við mánaðamót Tungutak Ari Páll Kristinsson ari.pall.kristinsson@arnastofnun.is Í gær, hinn 30. apríl 2021, voruþrjátíu ár frá því, að Davíð Odds- son myndaði sína fyrstu ríkisstjórn. Hann átti eftir að verða forsætisráð- herra í nær fjórtán ár, lengst allra manna, jafnt samfellt og samtals. Enginn vafi er á því, að þá urðu tíma- mót í Íslandssögunni, þótt margt væri eftir það í rökréttu framhaldi af því, sem áður hafði áunnist. Stefna Davíðs var einföld og tví- þætt. Í fyrsta lagi vildi hann færa ís- lenska hagkerfið nær því, sem stóð í grannríkjunum, en hér voru enn margvísleg höft í gildi. Þetta tókst vonum framar. Árið 1991 var at- vinnufrelsi samkvæmt alþjóðlegum mælingum minnst á Íslandi allra Norðurlandaþjóða, en árið 2004 var það mest. Í öðru lagi vildi Davíð færa völd og fjármagn úr höndum ríkisins, emb- ættismanna og atvinnustjórnmála- manna, í hendur almennings, skatt- greiðenda, neytenda og fjárfesta. Þetta tókst með skattalækkunum og sölu ríkisfyrirtækja. Skattalækk- anirnar höfðu ekki í för með sér lægri tekjur ríkissjóðs, því að skattstofnar stækkuðu. Lítil sneið af stórri köku getur verið stærri en stór sneið af lít- illi köku. Sala ríkisfyrirtækja fól í sér, að fjármagnið varð virkt í stað þess að vera dautt. Hinir nýju eig- endur gátu lagt niður fyrirtæki, sam- einað þau öðrum, hlutað þau í sundur eða rekið þau áfram eftir efnum og ástæðum. Áður höfðu þessi fyrirtæki lotið sama lögmáli og kampavínið: þegar illa gengur, þarftu þess með; þegar vel gengur, verðskuldarðu það. Tap var talið sýna, að meiri framlaga væri þörf. Gróði var talinn sýna, að meiri framlög væru skyn- samleg. Ekki var hreyft við neinu, allt gert eins og áður. Sumir hafa bankahrunið 2008 til marks um, að stefnan hafi brugðist. Þessu er þveröfugt farið. Eins og ég sýndi fram á í skýrslu fyrir fjár- málaráðuneytið fyrir nokkrum árum, féllu íslensku bankarnir, af því að þeir fengu ekki þá lausafjárfyr- irgreiðslu frá seðlabönkum stærri landa, sem bjargaði til dæmis Danske Bank í Danmörku, RBS í Skotlandi og UBS í Sviss, en án hennar hefðu þessir bankar og fleiri fallið. Íslenskt atvinnulíf var þó ekki lengi að ná sér eftir áfallið. „Varðar mest til allra orða, undirstaðan sé réttleg fundin,“ orti Eysteinn Ás- grímsson í Lilju. Ástæðan til þess, að vel gekk, er, að undirstaðan, sem lögð var 1991-2004, var traust. Hún var réttleg fundin. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Undirstaðan réttleg fundin Í dag er 1. maí, hátíðisdagur verkalýðsins, og þótt aðstæður leyfi ekki venjubundin hátíðahöld ber að sýna þessum degi fulla virðingu. Myndun verka- lýðsfélaganna var eitt stærsta skref sem stigið var til jafnræðis á Vesturlöndum. Og þótt hátíðahöld falli niður að verulegu leyti er ljóst að málefni launþega verða í brennidepli þjóðfélags- umræðna í aðdraganda kosninga. Atvinnuleysi er nú meira en elztu menn muna og hugmyndir flokkanna um viðbrögð við því hljóta að setja svip sinn á kosningabar- áttuna. Gömlu verkalýðsflokkarnir eru horfnir af sjónarsvið- inu og hafa fundið sér önnur áhugamál. Eftir standa Flokkur fólksins og Inga Sæland og Sósíalistaflokkur Gunnars Smára sem koma fram sem málsvarar laun- þega. Verkalýðsfélögin þurfa að endurnýja sig. Það gera þau bezt með því að efla félagsstarf sitt og auka virkni fé- lagsmanna. Öflug verkalýðshreyfing er forsenda fyrir jafnræði í samfélaginu. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir í merkilegu við- tali við Stundina, að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af hagsmuna- samtökum. Það er of mikið til í því og það sem meira er, það hefur farið versnandi síðustu áratugi. Það er margt sem veldur því. Ein ástæðan er sú, að hagsmunasamtökin hafa tekið upp ný vinnubrögð. Önn- ur er að sumir stjórnmálamenn hafa orðið hallari undir slík samtök en áður var. Þess vegna skiptir máli, að verkalýðsfélögin taki upp ný og áhrifameiri vinnubrögð. Fyrir hálfri öld hefði jafn mikið atvinnuleysi og nú er kallað fram kröfugöngur og útifundi. Nú halda verka- lýðsfélögin hvorki útifundi né félagsfundi að ráði. Þau halda að sér höndum. Kannski telja þau það líklegra til árangurs en það er hæpið. Verkalýðshreyfingin hefur líka misst þau pólitísku áhrif sem hún hafði og jafnvel innan Sjálfstæðisflokks- ins. Þegar það hefur gerzt samhliða framgangi hags- munasamtaka atvinnulífsins og hagsmunavarða þeirra er ljóst að komin er upp ójöfn staða. Mat Ásgeirs Jónssonar á stöðu hagsmunasamtakanna kallar á miklar umræður á Alþingi. Hver er skýringin á því að þingið hefur misst frá sér völdin sem það hefur samkvæmt stjórnarskránni að mati manns í lykilstöðu? Eru það stjórnmálaflokkarnir sem bera mesta ábyrgð á því? Það er erfitt að komast að annarri niðurstöðu. Verkalýðshreyfingin er afl sem getur átt þátt í að breyta þessari stöðu og hún á að beita því. Kannski skilja stjórnmálaflokkarnir ekki annað. Það mundi verða ákveðin lexía fyrir flokkana ef þeir stæðu frammi fyrir því að eitt aðalmál kosninganna yrði þessi spurning; hvort þeir hefðu sjálfir glutrað niður valdi kjörinna fulltrúa með meðvirkni sinni gagnvart hagsmunasamtökum. Að þeir væru eins konar strengja- brúður. En jafnframt er sú skoðun, að það kunni að hafa gerzt, enn ein rök fyrir beinu lýðræði. Að kjörnir fulltrúar sýni slíkan aumingjaskap kallar beinlínis á að fólkið í landinu taki völdin til sín. Sú var tíðin að verkalýðsforingjarnir voru leiðtogar sem mark var tekið á. Hugsanlega reynir á það á næstu mánuðum hvort slíkir foringjar eru enn innan verkalýðs- félaganna. Svo getur auðvitað verið að þeir séu líka orðn- ir meðvirkir. Þá er staða samfélagsins orðin enn alvarlegri. Vísbendingar um að samfélagið sé komið á villigötur eru orðnar of marg- ar. Eðlilegast væri að hreyfingin til að ráða bót á því yrði til innan flokkanna sjálfra. En það er sjálfsagt liðin tíð að búast megi við því. Nýir stjórnmálaflokkar hafa engu breytt, að minnsta kosti ekki hingað til. Kjarni málsins er þó sá að umræður þurfa að fara fram á Alþingi í tilefni af ummælum seðlabankastjóra. Þá kemur í ljós hvert viðhorf flokkanna er og þingið er hinn eðlilegi vettvangur fyrir þær umræður. Það er líka æskilegt að þær fari fram innan flokkanna. Ef vonir um að aðstæður skapist til þess í sumar bregð- ast er hægt að efna til fjarfunda á þeirra vegum. Verka- lýðsfélögin sjálf eiga líka að ræða öll þessi mál á sínum vettvangi. Sjálfstæðisflokkurinn mundi styrkja stöðu sína veru- lega ef hann setti þessi málefni á dagskrá landsfundar í hvaða formi sem hann verður haldinn, sem væntanlega verður fyrir kosningar. Hlutverki verkalýðshreyfingarinnar í þjóðfélags- málum er ekki lokið og lýkur aldrei. Það tekur breyt- ingum en það breytist ekki að þar eru á ferð hagsmuna- samtök stórs hluta þjóðarinnar. Eigi hagsmunasamtök að taka við hlutverki Alþingis verða þau tilteknu hagsmunasamtök líka að koma við sögu. Hátíðisdagur verkalýðsins Eru flokkarnir strengja- brúður hagsmunaafla? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.