Morgunblaðið - 01.05.2021, Side 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
FÁST Í BYGGINGA-
VÖRUVERSLUNUM
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
Bestu undirstöðurnar fyrir
SÓLPALLINN – SUMARHÚSIÐ – GIRÐINGUNA
DVERGARNIR R
NAGGUR
H: 120 cm
PURKUR
H: 60 cm
TEITUR
H: 80 cm
ÁLFUR
H: 30 cm
Frábær hönnun, styrkur og
léttleiki tryggja betri
undirstöðu og festu í
jarðvegi.
Skoð
ið nýj
u
heima
síðun
a
island
shus.i
s
Þetta er annað árið í
röð, sem verkalýðs-
hreyfingin verður að
fella niður kröfugöngur
og fundi á þessum há-
tíðis- og baráttudegi
sínum, vegna sóttvarna.
Í dag minnist launafólk
og aðrir verkalýðs-
sinnar frumherjanna,
sem báru gæfu til að
gera stéttabaráttuna að
sínum herra, helgaði 1. maí stéttabar-
áttunni og gerði rauða fánann að
tákni þeirrar baráttu með þakklæti
og virðingu. Frumherjanna, sem
fluttu fátækri alþýðu boðskapinn um
að taka höndum saman í lífsbarátt-
unni og heyja hana saman. „Frelsun
verkalýðsins verður að vera verk
verkalýðsstéttarinnar sjálfrar,“ eins
og Karl Marx orðaði það. Þegar á leið
bættist í hóp frumherjanna ungt fólk,
sem lét sér ekki nægja að berjast fyr-
ir hærri launum og félagslegum um-
bótum fyrir stétt sína. Sú barátta var
að þess dómi eins og hver önnur hjá-
verk á leiðinni til framtíðarlandsins,
sósíalismans, sem þá eins og nú bíður
inni í sólglitrandi framtíðinni eftir því
að fólkið þori. „Veit þá engi að eyjan
hvíta/ á sér enn von ef fólkið þorir.“
Svo kvað Jónas. M. ö. o. þau vissu að
þau ein geta breytt þjóðfélagsgerð-
inni, sem þekkja hana til hlítar. Það
nægir einfaldlega ekki að skynja mis-
réttið í þjóðfélaginu, menn verða að
skilja orsakir þess.
Langt fram á síðustu öld sótti
verkalýðshreyfingin þrótt og bar-
áttuþrek í arfleifð frumherjanna og
lét mikið að sér kveða í íslenskum
þjóðmálum. Auk baráttunnar fyrir
vinnu og mannsæmandi launum
knúði hún fram 6 stunda hvíld á tog-
urum, vökulögin svonefndu, 8 stunda
vinnudag, orlof handa launafólki og
almannatryggingar af ýmsum toga.
Margt af þessu var árangur af
löngum og víðtækum verkföllum.
Lögin um atvinnuleysistryggingar
voru t.d. knúin fram eftir sex vikna
verkfall árið 1955 og tóku gildi árið
eftir. Ekki má gleyma baráttunni fyr-
ir lífeyrissjóðunum, en skyldugreiðsl-
ur í þá hófust 1970, né baráttunni fyr-
ir félagslegu húsnæði, en lög um
verkamannabústaði voru sett árið
1929.
Til að ná því fram sem ég hef hér
upp talið þurfti þrotlausa og fórnfúsa
baráttu og það er öllum hollt að hug-
leiða við hvaða öfl í þjófélaginu var
barist. Þá eins og nú er það stéttabar-
áttan sem er hreyfiafl sögunnar.
En verkalýðshreyfingin lét ekki
þar við sitja. Hún barðist af hörku
gegn afsali íslenskra landsréttinda og
gegn erlendri hersetu á Íslandi, eink-
um á árunum 1945 til 1951, gegn inn-
göngu Íslands í NATO 1949, gegn
inngöngu Íslands í Efnahags-
bandalag Evrópu 1962, en svo hét
fyrirrennari Evrópusambandsins á
þeim tíma, og fyrir útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar í fjórum áföngum frá
1952 til 1975. Á árunum 1968 til 1970
urðu harðvítug verkföll í landinu og
stóðu í tvær til þrjár vikur í senn. Þá
var ólga á vinnumarkaði, m.a. vegna
verulegs atvinnuleysis.
Þegar kom fram á áttunda áratug-
inn var sagt skilið við
stéttabaráttuna af hálfu
ASÍ-forystunnar og við
tók stéttasamvinna,
vaxandi miðstýring og
sérfræðingaveldi. Með
þessum breytingum
einangraðist ASÍ-
forystan frá grasrótinni
í verkalýðsfélögunum,
sem missti smám sam-
an áhuga á henni, því
alltaf logaði glóð stétta-
baráttunnar á arni ým-
issa verkalýðsfélaga. Fyrsta marz
2009 þegar kaupmáttur launa hafði
rýrnað um 10% á einu ári samdi ASÍ
um frestun umsaminnar launahækk-
unar í átta mánuði. Öðruvísi mér áður
brá.
Hörðustu stéttaátök á síðustu öld
áttu sér stað í miðri heimskreppunni
miklu á fjórða áratug aldarinnar.
Gúttóslagurinn í Reykjavík 1932 og
Nóvudeilan á Akureyri 1933. Í báðum
tilfellum ætluðu verkalýðsfjandsam-
legar bæjarstjórnir að lækka laun
verkamanna. Með órofa samstöðu
sigruðu verkalýðssamtökin og komu í
veg fyrir tilræðin. Höfðu þó enga
sjóði til að styðjast við. Gúttóslagur-
inn voru hörðustu átök sem urðu í
Reykjavík á öldinni ef frá er talinn 30.
marz 1949. Vorið 1970 var síðasta
meiri háttar verkfall á vegum ASÍ,
þar til í fyrravor eða í hálfa öld.
Ekki sigldu þó öll samtök launa-
fólks lygnan sjó það sem af er þessari
öld. Árin 2014 og 2015 áttu ýmis félög
opiberra starfsmanna í hörðum verk-
fallsátökum, sumum æði löngum. Það
vekur von að stéttasamvinnustefnan
hefur ekki sömu tök á verkalýðs-
hreyfingunni og áður. Efling – stétt-
arfélag náði fram með verkfalls-
aðgerðum meginkröfum sínum í
samningum við Samband íslenskra
sveitarfélaga 10. maí í fyrra og var þó
óspart lamið með Covid-keyrinu. Og
ASÍ-forystan hefur breyst mjög til
batnaðar. Það var snemma ljóst í Ice-
landair-deilunni að sum stéttarfélög
flugstéttanna fylgdu stéttasam-
vinnustefnu, létu undan kröfu Ice-
landair um grófar skerðingar á kjör-
um sínum, jafnvel til langs tíma.
Flugfreyjur beygðu sig lengi vel ekki,
höfnuðu tilboðum Icelandair. Að lok-
um létu þær undan síga eftir að þær
höfðu verið beittar bolabrögðum af
hálfu flugfélagsins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnumálastofnun var atvinnuleysi
hér 11% í marslok. Ellefu prósent at-
vinnuleysi þýðir að 21.019 manns búa
við 100% atvinnuleysi. Þar við bætast
um tvö þúsund manns sem hafa misst
rétt sinn til atvinnuleysisbóta og eru
á framfæri sveitarfélaganna, þar sem
framlag er mismunandi eftir búsetu,
nær þó hvergi 200 þús. kr. á mánuði.
Og ekki er mulið undir öryrkjana,
sem hafa mátt sæta kjaraskerðingum
með lögbrotum.
Í tilefni af 1. maí
Eftir Ólaf Þ.
Jónsson
» Það nægir einfald-
lega ekki að skynja
misréttið í þjóðfélaginu,
menn verða að skilja
orsakir þess
Ólafur Þ. Jónsson
Höfundur er skipasmiður.
Kjörorð mín í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suður-
kjördæmi eru „Ný
kynslóð til forystu“
og þau hafa mikla
merkingu. Sjálfstæð-
isstefnan hefur um
áratugaskeið verið sú
stjórnmálastefna sem
flestir landsmenn
styðja. Það er engin
tilviljun að Sjálfstæðisflokkurinn
hefur haft leiðandi og mótandi
áhrif á grunngerð íslensks sam-
félags. Það er hins vegar ekkert
lögmál að svo verði áfram. Við
þurfum stöðugt að vinna stefnunni
fylgi og ríkur þáttur í því er að
kynna hana nýjum kynslóðum.
Sígild hugmyndafræði
Sjálfstæðisflokkurinn hefur notið
þeirrar gæfu að vera byggður upp
á traustum grunni klassískra hug-
sjóna. Sá grunnur hefur gert Sjálf-
stæðisflokkinn að þeirri kjölfestu
sem hann hefur verið við uppbygg-
ingu velferðarsóknar Íslands síð-
ustu áratugi. Það hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn gert með því að vinna
að umbótastefnu á grundvelli ein-
staklingsfrelsis og atvinnufrelsis
með hagsmuni allra stétta fyrir
augum. Um leið er okkur samofinn
vilji til samhjálpar. Það er okkar
skylda að gæta þess að enginn
komist á vonarvöl, þótt hann mæti
ofjörlum í sjúkdómum eða fátækt.
Grunngildi okkar eiga því að end-
urspeglast í krafti til athafna en
standa gegn græðgi, yfirgangi,
ranglæti og skeytingarleysi. Við
sýnum manngæsku, friðarvilja og
umhyggju. Sjálfstæðisstefnan
stuðlar að fjölbreyttu og upp-
byggilegu mannlífi þar sem fólk
leitar hamingjunnar á eigin for-
sendum.
Blikur á lofti
Sósíalísk hugmyndafræði og rót-
tækar vinstri hugmyndir um rík-
isbúskaparstefnu fá nú
aukið pláss í þjóð-
félagsumræðunni,
þrátt fyrir að hafa
margsinnis beðið skip-
brot á öldinni sem leið.
Þá sögu muna ekki all-
ir. Alls staðar þar sem
sósíalisminn hlaut
brautargengi urðu af-
leiðingarnar vondar,
ekki síst fyrir þau sem
minnst mega sín í sam-
félaginu. Atvinnulíf
staðnaði, launamismunur jókst og
framfarir og framþróun urðu hæg-
ari en þar sem frjálst markaðs-
hagkerfi réð för. Þrátt fyrir afleita
arfleifð má nú greina að sósíalism-
inn og skyldar delluhugmyndir hafi
náð til nýrra kynslóða, ekki síst
fyrir tilstilli samfélagsmiðla. Sjálf-
stæðisflokkurinn er eini hægri
flokkurinn á Íslandi og nýtur
sterkrar stöðu bæði á landsvísu og
í einstökum sveitarfélögum. Í sögu-
legu samhengi getur enginn annar
flokkur eða jafnvel flokkabandalag
státað af öðrum eins árangri í
stjórnmálum. Það er engu að síður
umhugsunarefni fyrir allt fólk sem
hallast að borgaralegum gildum að
á landsvísu mælist fylgi flokksins í
skoðanakönnunum á bilinu 20-25%.
Það þýðir að aðrir eru á mið-vinstri
rófinu en vegna fjölda stjórnmála-
flokka dreifist fylgið þannig að enn
er Sjálfstæðisflokkurinn stærstur.
Það þarf í sjálfu sér ekki margt að
gerast til að breyta þessu til verri
vegar og við verðum að íhuga al-
varlega hvernig við fjölgum stuðn-
ingsfólki okkar. Það er ekki hægt
að ganga að því sem vísu að sjálf-
stæðisstefnan berist unga fólkinu
til eyrna, eins og kalda vatnið renn-
ur úr krananum sama hvað annað
gengur á. Til þess þarf leiðtoga
sem hafa skilning á breyttum veru-
leika. Til þess þarf nýja kynslóð til
forystu.
Lífsgæðasókn
Yngri kynslóðir Íslendinga horfa
ekki bara til lífskjarasóknar heldur
lífsgæðasóknar. Við viljum öflugt
atvinnulíf og góð lífskjör sem
ganga ekki of freklega á auðlindir
okkar og náttúru. Við viljum
stjórnvöld sem eru vakandi fyrir
nýjum hugmyndum og efla rann-
sóknir og nýsköpun á öllum svið-
um. Við viljum draga úr hvers kyns
mengun og styðja við uppbyggingu
grænna atvinnuvega. Þess vegna
styðjum við orkuskipti og kjósum
rafbíla. Við viljum sjá Ísland í leið-
andi hlutverki á norðurslóðum og
að komandi kynslóðir geti gripið
tækifærin sem í slíkri stöðu felast.
Við viljum nýta tæknina til að efla
landsbyggðina með störfum án
staðsetningar og tryggja að öflug
ferðaþjónusta blási nýju lífi í
byggðirnar. Ísland hefur sjaldan
notið annarrar eins athygli um-
heimsins fyrir að vera það sjálft og
á þeim grunni viljum við byggja
með virðingu fyrir öllu sem á und-
an kom. Stærstu verkefnin sem
blasa við stjórnvöldum snerta ná-
kvæmlega þessa framtíð og þar
hefur Sjálfstæðisflokkurinn svör.
Ég er tæplega fertugur og hef
setið í níu ár á þingi. Það tekur
tíma að skilja gangverk þingsins og
ná færni til að leiða framfaramál
þar til lykta. Þá reynslu hef ég. Ég
hef líka þrek og kraft, innsýn unga
stjórnmálamannsins í það sem
framtíðin krefst af okkar flokki og
hvernig við getum best aflað hug-
sjónum okkar aukins fylgis. Þess
vegna býð ég mig fram til að leiða
nýja kynslóð sjálfstæðisfólks til
forystu fyrir Ísland.
Þess vegna þurfum við nýja
kynslóð til forystu
Eftir Vilhjálm
Árnason,
Vilhjálmur Árnason
» Grunngildi okkar
eiga því að end-
urspeglast í krafti til at-
hafna en standa gegn
græðgi, yfirgangi, rang-
læti og skeytingarleysi.
Höfundur er varaformaður þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins og fram-
bjóðandi í 1. sæti.
vilhjalmura@althingi.is
Íslensku þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?