Morgunblaðið - 01.05.2021, Side 50

Morgunblaðið - 01.05.2021, Side 50
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Útgáfan er hugsuð sem kynning á þessum hluta tónleika Bjarkar,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir um diskinn Come And Be Joyful sem One Little Independent Records gaf nýverið út og hefur að geyma upp- tökur í flutningi Hamrahlíðarkórs- ins undir stjórn Þorgerðar. Disk- urinn er gefinn út í Bretlandi og því er allt kynningarefnið á ensku, en allir söngtextar eru birtir á frum- málinu og í enskri þýðingu. „Á þessum diski er aðeins ís- lenska tónlistin sem við fluttum í því sem ég kýs að kalla forspil við Cornucopia-tónleika Bjarkar,“ segir Þorgerður og þar vísar til átta tón- leika sem haldnir voru í New York við formlega opnun The Shed lista- miðstöðvarinnar sumarið 2019 sem og átta tónleika í Norður-Evrópu um haustið sama ár. „Undir lok ferðarinnar í New York kom Derek Birkett, umboðs- maður Bjarkar, sem á útgáfufyrir- tækið One Little Independent Records, að máli við mig og falaðist eftir því að við myndum hljóðrita þetta efni,“ segir Þorgerður og rifj- ar upp að þátttaka Hamrahlíðar- kórsins undir hennar stjórn í tón- leikasýningu Bjarkar hafi verið stórkostleg upplifun fyrir allan hóp- inn. Auðvitað ákveðin áhætta „Björk bað okkur bæði um að vera með í sýningu sinni og sjá um upphitun. Oftast er upphitunin í sama geira og aðalnúmerið, en þarna komum við og fluttum eitt- hvað allt annað. Þetta var auðvitað ákveðin áhætta. Þegar ljósin komu upp á sviðinu stóðu þar 52 ungir ís- lenskir kórsöngvarar í þjóðbún- ingum og sungu „Ísland, farsælda frón“ með trompetum. Ég held að áheyrendur hafi alltaf orðið alveg forviða þar sem þeir bjuggust jú við að Björk tæki á móti þeim á sviðinu. Það var svo stórkostlegt hvernig krakkarnir kveiktu á públikum,“ segir Þorgerður og rifjar upp að Björk hafi verið með ákveðnar óskir um lagaval. „Að hennar ósk sungum við því á öllum tónleikunum „Vísur Vatnsenda-Rósu“ í útsetningu Jóns Ásgeirssonar. Auk þess sungum við tvö lög eftir Björk sem voru sér- staklega útsett fyrir kórinn,“ segir Þorgerður og vísar þar til „Sonnets/ Unrealities XI“ og „Cosmogony“ sem voru bæði sungin á ensku. „Allt hitt fluttum við á íslensku. Þetta eru raddsetningar á íslenskum þjóð- lögum og tónsmíðar eftir mörg af okkar mestu tónskáldum,“ segir Þorgerður og nefnir í því samhengi Jón Nordal, Jón Ásgeirsson, Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragn- arsson og Hafliða Hallgrímsson. Að sögn Þorgerðar gafst vegna anna aðeins færi á að taka upp tvö laganna fjórtán sem á disknum eru sumarið 2019. „Þá um haustið fórum við í mánaðarlangt tónleikaferðalag með Björk. Þegar heim kom þurftum við að æfa fyrir allan jólasönginn og síðan fyrir Myrka músíkdaga. Svo það var ekki hægt að byrja að hugsa um upptökurnar fyrr en í febrúar 2020, en þá var kórónuveirufarald- urinn brostinn á. Við náðum tveimur upptökudögum í mars rétt áður en öllu var skellt í lás hérlendis,“ segir Þorgerður og tekur fram að þannig hafi upptökunum lokið mjög snögg- lega. „Við ætluðum okkur lengri tíma í upptökurnar, en náðum að taka allt upp enda voru þetta verk sem við gjörþekktum og höfðum oft flutt áður,“ segir Þorgerður og tekur fram að auðvitað megi alltaf gera betur. „Eitt af því sem hefur drifið mig áfram í störfum mínum er að ég held alltaf að það sé hægt að gera betur. Þá er mikil gæfa að starfa með ungu fólki. Þau eru alveg hreint ótrúleg, áhugasöm, með mikið úthald og góð- an vilja,“ segir Þorgerður. Dýrmætur fjársjóður Spurð hvort útgáfa disksins í Bret- landi sé ekki góð leið til að kynna ís- lenska tónlist erlendis svarar Þor- gerður því játandi. „Í raun má segja að líf mitt seinustu 50 árin hafi snúist um að gera veg íslenskrar kór- tónlistar sem mestan og bestan. Kór- verkin sem samin hafa verið fyrir mig og kórana mína telja yfir hundr- að,“ segir Þorgerður, sem að jafnaði hefur farið með kór sinn í tónleika- ferðir að minnsta kosti einu sinni á ári til þess að kynna íslenska tónlist á erlendri grundu. „Söngfólkið mitt og nemendur sem ég hef starfað með í gegnum árin eru mjög dýrmætur fjársjóður.“ Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar tók nýverið þátt í upptöku fyrir sjónvarpsþáttaröðina Katla sem Baltasar Kormákur leikstýrir fyrir streymisveituna Netflix, en tónlistina samdi Högni Egilsson. „Vegna kór- ónuveirufaraldursins þurftum við tvisvar að fresta upptöku, en urðum að ljúka fyrir tiltekinn dag í apríl. Vegna samkomutakmarkana náðum við aðeins að æfa saman allur kórinn nýtt efni í tvo daga áður en upptökur urðu að fara fram, en höfðum fram að því aðeins getað æft í tíu manna hóp- um. Það þýddi að Högni þurfti að endurhugsa hluta þeirrar tónlistar sem hann hafði samið fyrir kórinn og útfæra með öðrum hætti. Ég hef aldrei á ævinni verið í slíkri hrað- suðu, en elsku unga fólkið mitt lagði sig ótrúlega fallega fram. Við vorum öll ansi mikið á tánum, en Högni og Bergur Þórisson upptökustjóri segja mér að þetta hafi gengið upp og upp- takan er farin út,“ segir Þorgerður og tekur fram að spennandi verði að sjá og heyra þegar búið verði að setja tónlistina við myndefni þáttanna. Dáist að úthaldi og þrautseigju Sem kunnugt er hefur Þorgerður látið formlega af störfum sem stjórn- andi Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð, en stjórnar enn Hamrahlíðarkórnum. „Maðurinn minn er skáld og hann segir að skáld fari aldrei á eftirlaun. Ég held að það sama gildi fyrir tónlistarfólk. Tónlist- in er stór hluti af mínum innsta kjarna og fer aldrei frá mér. Í þeim skilningi fer ég aldrei á eftirlaun heldur sinni listinni eftir fremsta megni það sem ég á eftir ólifað. Síð- ustu mánuðir hafa einkennst af sí- endurtekinni biðstöð. Þannig höfum við tíu sinnum þurft að setja öll áform á pásu um óákveðinn tíma,“ segir Þorgerður og rifjar upp að tón- leikum Bjarkar hérlendis með kórn- um hafi ítrekað verið frestað. „Hamrahlíðarkórinn átti að halda tónleika með Björk núna í apríl, en þeim hefur verið frestað fram í sept- ember. Vonandi gengur það eftir. Þetta er ótrúlega skrýtið ástand, en ég dáist að úthaldi og þrautseigju allra á þessum tímum,“ segir Þor- gerður og tekur fram að það sé ávallt áskorun að skipuleggja ný verkefni. „Ég hef mikið að vera þakklát fyrir, enda hef ég fengið að lifa langt og ríkt líf þar sem ég nýt þess enn að fá að takast á við margvísleg ævintýri. Og ævintýrunum lýkur aldrei þegar maður á músíkina og skáldskapinn að vinum.“ Ljósmyndir/Santiago Felipe Forspil Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri ásamt Hamrahlíðarkórnum á tónleikasviðinu í New York. „Ævintýrunum lýkur aldrei“ - Come And Be Joyful nefnist nýr diskur með flutningi Hamrahlíðarkórsins undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur - Kórinn tók nýverið upp tónlist eftir Högna Egilsson fyrir Netflix-þættina Kötlu Glöð „Ég hef mikið að vera þakklát fyrir,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir. 50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Tónlistarfólkið Tómas Welding og ELVA, þ.e. Elva Bjartey Aðal- steinsdóttir, fengu í vikunni afhenta platínu- plötu frá útgáfufélaginu Öldu Music fyrir 10 milljón streymi á Spot- ify á laginu „Lifeline“. Áður höfðu þau fengið gull- og platínuplötur sem Félag hljómplötu- framleiðanda veitir sem virðingarvott fyrir framúrskarandi sölu á plötum, segir í tilkynn- ingu og að nú þegar neysla á tónlist hafi tekið breytingum undanfarin ár hafi Öldu Music þótt viðeigandi að aðlaga þetta með til- liti til streymisveitna. Spilanir á laginu eru nú orðnar mun fleiri eða yfir 12 milljónir á Spotify. Lagið sömdu Tómas og Elva með Pálma Ragnari Ásgeirssyni sem einnig stýrði upp- tökum á því. Ljósmynd/Valgerður Árnadóttir Platína Elva Bjartey Aðalsteinsdóttir, Tómas Welding og Sölvi Blöndal, framkvæmda- stjóri Öldu Music, með platínuplöturnar fyrir streymið á laginu „Lifeline“ . Tíu milljónir streyma á „Lifeline“ Perluuppboð stendur nú yfir á vef Gallerís Foldar og eru boðin upp fjölbreytileg myndverk eftir lista- menn ólíkra kynslóða, verk sem alla jafna færu á hefðbundið upp- boð í sal en í ljósi gildandi sam- komutakmarkana verða verkin ein- göngu boðin upp á netinu. Verkin má skoða og bjóða í á vefnum upp- bod.is. Verkin eru líka sýnd í gall- eríinu við Rauðarárstíg fram að uppboðinu sem verður á miðviku- daginn kemur, 5. maí, klukkan 19. Í tilkynningu frá Gallerí Fold segir að mörg úrvalsverk verði boð- in upp, „má þar nefna stórt olíu- verk eftir Karl Kvaran, fallega gvassmynd eftir sama höfund og gvassmynd eftir Jóhannes Jóhann- esson. Tvær fjörumyndir eftir Kristján Davíðsson og góð verk eft- ir marga þekktustu listamenn landsins, s.s. Ásgrím Jónsson, Kjar- val, Louisu Matthíasdóttur, Jón Stefánsson, Gunnlaug Blöndal, Erró, Tryggva Ólafsson og Braga Ásgeirsson. Af fágætum verkum má nefna geometríu eftir Eyborgu Guð- mundsdóttur og akrýlmálverk eftir Diether Roth, en slík verk reka sjaldan á fjörur okkar.“ Einnig verður til t.a.m. boðinn upp skúlp- túr eftir Dieter og Björn Roth og nokkuð er af skúlptúrum á uppboð- inu, meðal annars eftir Sigurjón Ólafsson, Hallstein Sigurðsson og Aðalheiði Eysteinsdóttur. Loks má nefna stórmerkilegt landakort, Is- landia. Kortið er frá 16. öld og eign- að Abraham Ortelius. Fjölbreytileg verk á perluuppboði Foldar Ein perlanna Akrýlmálverk eftir Dieter Roth er boðið upp.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.