Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 52
Á miðvikudaginn var, 28. apríl, var öld liðin frá fæðingu séra Guð- mundar Sveinssonar, sem var skóla- stjóri Samvinnuskólans á Bifröst á árunum 1955 til 1974. Þá kom út bókin Nemandi minn…! en með henni vilja fyrrverandi nemendur og aðrir velunnarar skólans þakka Guð- mundi fyrir hans mikla framlag í skólastarfinu á Bifröst, eins og segir í formála Hrafns Magnússonar að bókinni. Að út- gáfunni standa Hollvinasamtök Háskólans á Bif- röst og Sam- vinnuskólans. Fær Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fyrsta ein- tak bókarinnar afhent við athöfn í dag. Þegar sú hugmynd fæddist að minnast séra Guðmundar við þessi tímamót var fyrst og fremst stefnt að því að gefa út skólaslitaræður hans, sem voru að sögn Hrafns mjög vandaðar að allri gerð og hugsun, enda gaf Guðmundur sér drjúgan tíma við samningu þeirra. Þegar betur var að gáð þótti ekki síður áhugavert að birta viðtöl við hann og konu hans Guðlaugu Einarsdóttur um tilurð skólans á Bifröst og þá starfsemi sem þar fór fram. Eins er að finna í bókinni áhugaverða grein eftir Steinþór Guðbjartsson tengda- son Guðmundar. Meðal annars efnis í bókinni er til að mynda skólaslita- ræða eftir séra Svein Víking og fjöl- margar myndir úr skólastarfinu ásamt skólaspjöldum Bifrastarár- anna, samtals 18 brautskráningar. Skemmtilegur lærifaðir Hrafn segir að árin sem Guð- mundur Sveinsson var skólastjóri Samvinnuskólans hafi oft verið köll- uð „Bifrastarævintýrið“. „Kannski má líkja Bifrastarævintýrinu við vel- heppnaða tónleika,“ bætir hann við í formála bókarinnar, „þar sem Guð- mundur heldur á tónsprotanum en nemendur og starfsfólk skólans skipa hljómsveitina. Samhljómur hljómsveitarinnar hrífur áhorfendur með sér. Ekki aðeins einu sinni, heldur í nærfellt tvo áratugi undir styrkri stjórn séra Guðmundar Sveinssonar.“ Ásamt Hrafni voru í útgáfunefnd bókarinnar þeir Reynir Ingibjarts- son, rithöfundur og félagsmála- frömuður, og Þórir Páll Guðjónsson, sem ásamt Herði Haraldssyni eiga lengstan starfsaldur sem kennarar á Bifröst. Hrafn var fyrst nemandi hjá Guð- mundi á Bifröst og síðan kennari við skólann í fimm ár. Hann þekkir því mjög vel til skólans og starfa Guð- mundar. „Hann var geysilega mikill skólamaður og hugsaði mikið um þau mál. Hann tók líka að sér að vera fyrsti skólastjóri Fjölbrauta- skólans í Breiðholti sem var fyrsti fjölbrautaskólinn hér á landi. Guð- mundur var líka geysilega skemmti- legur kennari og lærifaðir, mjög fjöl- fróður á ýmsum sviðum,“ segir Hrafn. Hann ítrekar að þann tíma sem Guðmundur stýrði skólanum megi kalla Bifrastarævintýrið en starf- semin var lífleg og blómleg. „Þetta var viðskiptaskóli, með ströng og erfið inntökupróf þegar ég var í skólanum, en þá voru bara tveir verslunarskólar á landinu. Þar fyrir utan var skólinn líka félagsmálaskóli og sem dæmi get ég nefnt að sam- tímis mér í skólanum voru þrír nem- endur sem áttu eftir að verða ráð- herrar, Halldór Ásgrímsson, Guðmundur Bjarnason og Jón Kristjánsson. Margir nemendanna urðu tengdir félagsmálum og fé- lagsstörfum.“ Hrafn segir markmiðið með útgáf- unni að minnast Guðmundar og þessara góðu tíma, með margvíslegu efni. „Meginuppistaðan í bókinni eru skólaslitaræður Guðmundar en hann gaf sér góðan tíma í að semja þær, oft tvo til þrjá daga, og vandaði sig mikið. En margt annað efni í bókinni er ekki síður forvitnilegt.“ efi@mbl.is „Hann var geysilega mikill skólamaður“ - Guðmundar Sveinssonar skólastjóra á Bifröst minnst Skólastjórinn Í bókinni Nemandi minn…! eru til að mynda skólaslitaræður séra Guðmundar Sveinssonar skólastjóra, auk ýmissa greina og mynda. 52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 T oymachine ætlaði að taka upp þessa fyrstu breið- skífu sína fyrir 20 árum. Eftir að upp úr sauð í kjöl- far tónleikaferðar til útlanda lagði rokksveitin upp laupana og ekkert varð af útgáfunni. Hljómsveitin var talin ein bjart- asta vonin í íslensku neðanjarðar- senunni á sínum tíma og rokkaði í anda nu-metal- sveita á borð við Korn, Limp Biz- kit og Deftones, auk þess sem hin kröftuga System of a Down var áhrifavaldur. Kasta má Rage Against the Mach- ine þarna í púkkið líka. Eftir að liðsmenn fóru hver í sína áttina gerði söngvarinn Jens Ólafs- son garðinn frægan í Brain Police á meðan trommarinn Baldvin Z sneri sér að leikstjórn með góðum árangri (Lof mér að falla). Þrátt fyrir að tveir áratugir séu liðnir síðan Toymachine var og hét og tónlistarlandslagið hafi breyst sem því nemur ákváðu þeir Jens, Baldvin, Atli Hergeirsson og Krist- ján Örnólfsson að ljúka við það sem þeir byrjuðu á, sem er virðingar- vert og í raun til mikillar eftir- breytni. Aldrei er gott að hætta við hálfunnið verk. Platan byrjar á laginu „Toymach- ine 2020“ sem er ferskari og betri útgáfa af laginu „Toymachine“ af stuttskífu sveitarinnar sem kom út árið 2000. Fínn rokkari þar sem eini afinn í hópnum, Jenni, öskrar af öll- um lífs og sálar kröftum, rétt eins og hann gerir hvað eftir annað á plötunni. Fínir hlutir finnast annars staðar, eins og í tryllingslegu titil- laginu, í „Sell Out“ þar sem rólegur lokakaflinn gerir mikið fyrir lagið og „I Dońt Care“ þar sem Jenni er sem fyrr í aðalhlutverki. Seinni hluti plötunnar er ekki eins áhugaverður ef undan er skilið lokalagið „Powder“. Þar er á ferð- inni þungur og kröftugur loka- hnykkur þar sem Jenni þenur radd- böndin sem aldrei fyrr a la Zack de la Rocha. Afa-r vel gert! Royal Inbreed virkar kannski best sem nostalgíuplata fyrir ákveð- inn aldurshóp. Hægt væri að líta á hana sem virðingarvott við fyrr- nefndar rokksveitir, svo augljós eru áhrifin víðast hvar, en um leið er hún ákveðið uppgjör bandsins við fortíðina sem hefði getað orðið bjartari ef hlutirnir hefðu gengið upp. Spilamennskan er þétt, ástríðan mikil og þeir félagar kunna enn þá að rokka, svo mikið er víst. Kannski þessi plata veiti fleiri gömlum rokksveitum innblástur til að telja í á nýjan leik. Það veitir ekki af. Toymachine „Spilamennskan er þétt, ástríðan mikil og þeir félagar kunna enn þá að rokka, svo mikið er víst,“ skrifar gagnrýnandi um plötuna. Uppgjör við fortíðina Rokk Toymachine – Royal Inbreed bbbnn Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Toy- machine. Hljómsveitina skipa Jens Ólafsson, Baldvin Z, Atli Hergeirsson og Kristján Örnólfsson. Tekin upp í Stúdíói hljóðverki í Reykjavík. Útgáfuár 2021. FREYR BJARNASON TÓNLIST Á tónleikum Íslenskra strengja, Corona & Söknuður, í tónleikaröð- inni Sígildir sunnudagar í Norður- ljósasal Hörpu á morgun, sunnu- dag, klukkan 16, verða flutt tónverk eftir þrjú íslensk tónskáld. Um er að ræða verkin Corona eftir Hrólf Sæmundsson, en um frum- flutning er að ræða, Söknuð eftir Kristínu Lárusdóttur og Elegy eft- ir John Speight. Flytjendur á tónleikunum eru Ármann Helgason á klarínett, Kristín Lárusdóttir kvæðakona og Hrólfur Sæmundsson baritónsöngv- ari auk Íslenskra strengja en kons- ertmeistari er Chrissie Guðmunds- dóttir og hljómsveitarstjóri Ólöf Sigursveinsdóttir. Ólöf er jafnframt listrænn stjórnandi hópsins sem var stofnaður árið 2017. Hópurinn hefur á tónleikum sínum varpað ljósi á stærri og smærri strengja- verk, bæði innlend og erlend, eftir ólík tónskáld eins og Peteris Vasks, Mammiko Dís Ragnarsdóttur, Hjálmar H. Ragnarsson, Birgit Djupedal, Gustav Mahler, Svetlana Veschagina og Högna Egilsson. Ís- lenska strengi skipa atvinnu- hljóðfæraleikarar sem hittast nú aftur eftir rúmlega árs hlé. Tón- leikunum var frestað fyrir ári en verða nú loksins haldnir, eftir að hafa verið frestað ítrekað af völd- um veirunnar. Á tónleikunum verður hugað að sóttvörnum eins og vera ber. Corona og Söknuður Íslenskra strengja Morgunblaðið/Eggert Tónskáld Frumflutt verður nýtt verk eftir Hrólf Sæmundsson. Gestur í Louvre-safninu virðir fyrir sér hið flennistóra og fræga málverk hins nýklassíska meistara Jacques Louis David sem sýnir krýningu Napóleons Bonaparte sem keisara en hann má sjá hér krýna Josephine keis- araynju. Í Frakklandi verður þess minnst í næstu viku að 5. maí verða 200 ár frá dauða keisarans. AFP Kíkt á keisara hvers ártíð nálgast

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.