Morgunblaðið - 01.05.2021, Side 53
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Ef tré fellur í skógi og enginn er ná-
lægt, heyrist þá eitthvert hljóð? Já,
fallandi trjám liggur margt á hjarta,
og hljóðið berst úr órafjarlægð. Við
erum einfaldlega ekki að hlusta.“
Með þessum orðum hefst tilkynn-
ing um samsýninguna Fallandi trjám
liggur margt á hjarta sem nú stendur
yfir í galleríinu Kling & Bang í Mar-
shallhúsinu og lýkur 9. maí. Sýn-
endur eru Josephine van Schendel,
Þórey Björk Halldórsdóttir, Bára
Bjarnadóttir, Dýrfinna Benita Basal-
an, Tabita Rezaire, Brokat Films, El-
ín Margot og Tarek Lakhrissi. Sýn-
ingarstjóri er Helena Aðalsteins-
dóttir.
Ólík sjónarhorn
Á sýningunni er gestum boðið að
ferðast til útópískra heima þar sem
ástin ræður ríkjum, eins og það er
orðað í tilkynningu og að kynnast
sameiginlegum skilningi milli manna
og náttúru og auk þess fá tækifæri til
að hlusta á þær raddir sem áður hafa
verið þaggaðar niður.
„Sögurnar sem móta heimssýn
okkar eru enn þann dag í dag frá-
sagnir feðraveldis. Femínískur vís-
indaskáldskapur endurskrifar þessar
frásagnir. Með því að veita framlagi
kvenna og jaðarhópa aukið vægi
vörpum við ljósi á fjölbreyttari við-
horf til tilvistar okkar á jörðinni.
Þannig gefum við ólíkum sjón-
arhornum tækifæri til þess að hafa
áhrif á mótun framtíðarinnar með til-
liti til þarfa og hagsmuna minni-
hlutahópa sem hafa hingað til ekki
verið í forgrunni,“ segir um sýn-
inguna.
Nýjar reglur
Helena er spurð nánar út í femín-
íska vísindaskáldskapinn sem hún
nefnir í tilkynningunni.
„Hann á rætur sínar á níunda ára-
tugnum, þá fór femínískur vísinda-
skáldskapur að koma upp á yfirborð-
ið með rithöfundum eins og Ursulu
K. Le Guin og Octaviu E. Butler og
fór svo meira inn í poppkúltúr og
varð vinsæll. Ég dreg mikinn inn-
blástur þaðan en í vísindaskáldskap
getur skáldið búið til heima með
öðruvísi valdastrúktúrum og þannig
búið til pláss fyrir umræður ein-
staklinga á jöfnum grundvelli. Í
skáldskap er frelsi til að ímynda sér
hvernig hlutirnir gætu verið öðru-
vísi,“ svarar Helena. Slíkur skáld-
skapur einkennist því af jafnrétti.
Helena er beðin um að nefna dæmi
um hvernig þessi femínismi birtist í
verkunum á sýningunni. „Þetta birt-
ist mjög skýrt í verki eftir Tarek
Lakhrissi sem er fransk-arabískur
listamaður. Í verkinu hans koma
geimverur til jarðarinnar og stela öll-
um forstjórum heimsins,“ segir Hel-
ena. Með þessu sé valdapíramídanum
snúið á hvolf og vinna hafin við að
byggja nýjan heim þar sem óréttlæti
og mismunun tilheyri fortíðinni.
–Þú segir að þetta sé ferðalag til
útópískra heima þar sem ástin ráði
ríkjum?
„Já, einmitt, það er skírskotun í
ákveðið verk sem er tölvuleikur eftir
tvær pólskar listakonur sem kalla sig
Brokat Films. Leikurinn fjallar um
leitina að sannri ást og í því felst
ferðalag milli pláneta í þeirri leit.
Þannig geta gestir tekið þátt,“ svarar
Helena.
Verkin eru unnin í ýmsa miðla,
m.a. vídeó og skúlptúr, keramik og
hljóð. „ „Það má sjá unnið í efni eins
og stál, plast og leir. En aðallega eru
listamennirnir að nota frásögnina
sem efnivið og gervigreind, bjór,
glimmer og köngulær koma einnig
við sögu,“ segir Helena. Sem fyrr
segir lýkur sýningunni 9. maí.
Í leit að ást á öðrum plánetum
- Fallandi trjám liggur margt á hjarta er samsýning þar sem ástin ræður ríkjum - Innblástur
sóttur í femínískan vísindaskáldskap - Gervigreind, bjór, glimmer og köngulær koma við sögu
Ljósmynd/Blair Alexander
Sýningarstjóri Helena Aðalsteinsdóttir í Kling & Bang galleríi í Marshallhúsinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Litríkt Elín Margot er höfundur þessa verks sem nefnist „The end of me, the beginning of you“.
Forvitnilegt „Dendrianthropic Bod-
ies“ eftir Josephine Van Schendel.
Draumstöð „Pitstop for a dream“ nefnist þetta
listaverk eftir Björk Halldórsdóttur á sýningunni.
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Starfsmanna-
myndatökur
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Förum eftir öllum
sóttvarnartilmælum
fyrir fyrirtæki og stofnanir
Á öllum Norðurlöndunum er menn-
ingargeirinn meðal þeirra geira
sem yfirstandandi heimsfaraldur
hefur bitnað hvað harðast á. Stuðn-
ingsaðgerðir vegna kreppunnar
hafa verið áþekkar í öllum lönd-
unum og úrræðin þykja hafa virkað
best á sviði tónlistar- og sviðslista,
að því er fram kemur í nýrri
skýrslu frá Kulturanalys Norden
sem unnin var samkvæmt beiðni frá
norrænu ráðherranefndinni. Þar
kemur einnig fram að um leið og
tekjur hafa minnkað um helming
hjá stórum hópum innan menning-
argeirans hafi þó sumir hópar
fundið fyrir efnahagslegum upp-
gangi. Það á við netvanga þar sem
kvikmyndum og tónlist er streymt,
en einnig stafræna bóksölu.
Í skýrslunni kemur fram að eng-
ar skýrar vísbendingar eru um
kerfislægan mun á því hver áhrif
heimsfaraldursins hafi verið á
menningargeira landanna þrátt
fyrir að takmarkanir hafi verið
mismunandi milli landa. Áhrif
heimsfaraldursins á menningar-
starfsemi eru þó veruleg, bæði til
skemmri og lengri tíma litið.
„Úrræði og stuðningspakkar
vegna faraldursins hafa þótt
heppnast nokkuð vel á Norður-
löndum. Hins vegar veldur vanda í
flestum löndunum að smærri að-
ilum, aðallega þeim sem eru sjálf-
stætt starfandi, nýtist ekki stuðn-
ingurinn eins og æskilegt væri,“
segir Joakim Boström Elias, stjórn-
andi Kulturanalys Norden.
Úrræði og stuðningspakkar til
handa þeim sem hlut eiga að máli
hafa verið með nokkuð svipuðu
sniði á öllum Norðurlöndunum.
Heimsfaraldurinn kemur sér-
staklega hart niður á þeim hluta
menningarstarfsemi sem byggir á
áhorfendum, svo sem tónleikum,
sviðslistum og listsýningum. Á
Norðurlöndunum þykir hafa tekist
best til með úrræði og stuðnings-
pakka fyrir tónlistar- og sviðslista-
starfsemi en í heild hefur mesti
stuðningurinn við menningarstefnu
verið í Noregi og Danmörku.
Kannanir í Svíþjóð, Finnlandi og
Noregi sýna að talsverður hluti
þess fólks sem starfar í menningar-
geiranum hefur hugleitt að skipta
um starfsvettvang. Þá er hætt við
að menningarframleiðsla verði
þjóðbundnari.
Á tónleikum Faraldurinn hefur
komið hart niður á sviðslistum.
Faraldurinn bitnar á menningunni