Þjóðmál - 01.03.2016, Síða 39

Þjóðmál - 01.03.2016, Síða 39
lega hætt að brenna jarðefnaeldsneyti til raforkuvinnslu, ef þeir fjárfesta í þóríum- kjarnorkuverum, en þá þarf að beina fé frá vindi og sól og til kjarnorku. Nauðsyn þessa hefur nú þegar runnið upp fyrir Bretum, og mun þá styttast í, að almenningur á megin- landinu heimti vitræna stefnubreytingu í orkumálum hjá sér einnig. Lykillinn að lausn fyrir ísland Árið 1990 nam losun íslands á gróðurhúsa- lofttegundum mældum íjafngildum kolt- víildis, C02eq, 3701 kt (1 kt=1 þúsundtonn). Árið 2013 hafði þessi losun aukist í 4515 kt, og ætla má, að hún hafi vaxið síðan. Sé þó miðað við staðfestu gildin frá 2013, felur markmið íslands um 40% minnkun losunar m.v. árið 1990 í sér, að árið 2030 má losunin ekki fara yfir 2220 kt. Þetta þýðir, að á 15 ára tímabili þarf að draga úr losun um a.m.k. 2295 teða 51% m.v. árið 2013 eða um 153 kt/ ár. Þetta er einfaldlega ekki hægt án þess að kollsteypa hagkerfinu og valda hérfjármála- legum glundroða og miklu atvinnuleysi, nema með því að grípa til mótvægisaðgerða. Fullgildar mótvægisaðgerðir eru land- græðsla, skógrækt og endurheimt votlendis. ísland er dreifbýlt land og stór hluti þess eru auðnir. Skógrækt ríkisins hefur þróað árangursríkar aðferðir við bindingu kolefnis með lúpínusáningu á auðnum og skógrækt í kjölfarið. Eftirfarandi upplýsingar gefur að líta á vefsetri Skógræktar ríkisins: „Þar sem áður var aðeins snauður, svartur sandur, vex nú Alaskaösp, sem bindur gríðarmikið magn kolefnis á hverju ári. Með hjálp Alaskalúpínu má nota hina víðfeðmu sanda Suðurlands til kolefnis- bindingar upp í alþjóðleg viðmið íslend- inga í loftslagsmálum."s Alaskalúpínan myndar jarðveg með nitur- vinnslu úr andrúmslofti, sem afkastamiklar trjáplöntur við kolefnisbindingu geta nýtt sér til mikils vaxtar. Við 23 ára aldur reyndist kolefnisbinding þeirra á Markarfljótsaurum nema 9,3 t/ha á ári af C02, en meðalbinding í íslenskum ræktunarskógi er hins vegar 4,4 t/ha á ári samkvæmt mælingum Skógræktar ríkisins. Við útreikninga hér á eftir verður notað gildið 5,0 t/ha á ári yfir 40 ára tímabil, því að menn munu fremur nota afkastameiri tegundir, þegar ræktunin er aðallega fyrir bindingu kolefnis. Ætla má, að stórfelld skógrækt þurfi að fara fram til 2030 til að binda kolefni frá landumferð og til 2050 vegna flugs og iðnaðar, en að því loknu muni orkubyltingin verða afstaðin, nema e.t.v. í málmframleiðslunni, og þá verður hægt að nýta trjáviðinn með hefðbundnum hætti. Skógræktá íslandi til kolefnisbindingar verður fyrirsjáanlega samkeppnishæf við kolefniskvótamarkað Evrópu, og þess vegna ber að hefjast handa strax, því að plöntun- arafköstum eru takmörk sett. Stofnkostn- aður er 300 kkr/ha og reikna má með, að afurðir skógarins standi undir rekstrar- og viðhaldskostnaði. Með 5,0% ávöxtunarkröfu verkefnisins í 40 ár, fæst, að kostnaður við þessa bindingu í íslenskum ræktunarskógum er 4000 kr/t C02 á ári. Til samanburðar er verðið á kvótamarkaði Evrópu um þessar mundir um 10 EUR/t eða 1400 kr/t, en það hlýtur að hækka umtalsvert, þegar sneyðast tekur um losunarheimildir á næsta áratugi. Þá þrefald-ast kvótaverðið að líkindum hið minnsta og verður þá hærra en sjálfbært verð kolefnisbindingar á íslandi. Varlega ber að fara í endurheimt vot- lendis fyrr en fullrannsökuð hafa verið gróðurhúsaáhrifin af endurbleytingunni, því að þá eykst rotnun gróðurleifa, sem hefur í för með sér myndun sterkrar gróðurhúsaloft- tegundar, metans. Koltvíildismyndun lífvera í þurrkuðum mýrum er talin nema rúmlega 2760 t/km2á ári. Ef þessi tala lækkar um 30% vegna metan- myndunar niður í 20 t/ha, þá er samt að jafnaði um að ræða ferfalt öflugri mótvægisaðgerð við gróðurhúsaáhrif en skógrækt, á hvern hektara reiknað. íslenskur landbúnaður, sem þarf mótvægis- aðgerðgegn losun 192 kt/áraf koltvíildis- jafngildum árið 2030, mundi ná því með bleytingu á 96 km2 af þurrkuðu landi, en það nemur tæplega 3% af öllu óræktuðu, þurrkuðu landi. Það er þannig fólgið töluvert VORHEFTI2016 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.