Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 16
MENNING
Ólafur Egilsson
„Bæn víkingsins fyrir friði"
Islenskur fundarhamar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna
Það eru ekki allir sem vita að fundum alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna er stjórnað
með fundarhamri sem íslendingar gáfu
samtökunum árið 1952, þegar þau fluttu
í nýreistar höfuðstöðvar sínar á bökkum
Austurár í New York. Á þeim tímamótum
kepptust aðildarríki SÞ við að gefa margskonar
gripi, nýtilega og til fegrunar á húsakynn-
um, þ.á.m. vönduð húsgögn, veggteppi
o.s.frv.Tengdust margar gjafanna menningu
gefenda.
Fundarhamar allsherjarþingsins er úr
dökkum viði gerður af Ásmundi Sveins-
syni myndhöggvara (1893-1982) sem valdi
honum þemað„Bæn víkingsins fyrir friði"
- hamarshöfuðið stílfærður víkingur með
spenntar greipar fyrir brjósti sér; einnig var á
íslensku og latínu áletrunin: Með lögum skal
lönd byggja/Legibus gentes sunt moderandae.
Verður þetta efni að teljast einkar viðeigandi,
rætur þess djúpt í íslenskri og norrænni menn-
ingu um leið og hamarinn er þannig vígður
höfuðhlutverki Sameinuðu þjóðanna - vernd
heimsfriðar.
ThorThors sendiherra og fyrsti fastafull-
trúi íslands hjá SÞ afhenti hamar Ásmundar
nýkjörnum forseta allsherjarþingsins,
kanadíska ráðherranum Lester B. Pearson,
hinn 14. október 1952 að viðstöddum
aðalritara/framkvæmdastjóra samtakanna,
NorðmanninumTrygve Lie. Setti þvínæst
Pearson, sem var einn af þekktustu mönnum á
alþjóðasviði þessa tíma, fyrsta fund allsherjar-
þingsins þetta haust - og mælti: „Ég hefsett
þennan fund með hamri sem verið var að gefa
Sameinuðu þjóðunum af ríkisstjórn íslands,
lands þar sem frjáls og lýðræðisleg stjórn hefur
ríkt öldum saman".
Annan fundarhamar gáfu íslendingar einnig
samtökunum. Var sá mótaður og skorinn
út af Ríkarði Jónssyni myndhöggvara og
myndskurðarmeistara (1888-1977) í Ijósan
14 ÞJÓÐMÁL