Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 20
Frumvarp til laga
um húsnæðisbætur:
Falleinkunn
Umsögn skrifstofu opinberra f]ármála, sem
er innan veggja Ijármálaráðuneytisins, um
frumvarp til laga um húsnæðisbætur, er
óvenjulega harðorð.
Gagnrýnin er skýr. Enginn sem les
umsögnina getur farið í grafgötur með að
sérfræðingar fjármálaráðuneytisins eru
fullir efasemda um ágæti frumvarpsins, svo
ekki sé meira sagt:
• Aukinn ríkisstuðningur við leigjendur
við núverandi aðstæður á leigumarkaði
mun að öllum líkindum leiða til hækkun-
ar á leiguverði, sem kynni að skila meiri
ábata fyrir leigusala en fyrir leigjendur,
auk þess sem sveitarfélög kynnu að
draga úrsínum sérstöku húsaleigubótum.
• Greining á nýjum húsnæðisbótum gefur
til kynna að hlutfallslega verður aukn-
ing á niðurgreiðslu húsaleigu meiri eftir
því sem tekjur heimila eru hærri. Ekki
verður séð að sú útkoma væri í samræmi
við markmið frumvarpsins um að auka
stuðning við efnaminni einstaklinga og
fjölskyldur.
• Ekki verður séð að það sé sá munur á
stuðningi við leigjendur í núverandi
húsaleiguþótakerfi og eigendur
íbúðarhúsnæðis í núverandi vaxtabóta-
kerfi sem gengið er út frá í frumvarpinu.
Þannig eru meðalhúsaleigubætur í
núverandi kerfi yfirleitt hærri en vaxta-
Eygló Harðardóttir
félags- og húsnæðismálaráðherra.
bætur hjá tekjulægri heimilum með
börn og mun sá munur aukast með
upptöku á nýju húsnæðisbótakerfi.
Nýja kerfið mun auka talsvert styrki til
barnlausra hjóna og barnlausra einstakl-
inga sem leigja en í þeim tilvikum hefur
stuðningurinn í vaxtabótakerfinu verið
umtalsvert meiri en í húsaleigubóta-
kerfinu.
• Frumvarpið felur í sér þá grundvallar-
breytingu að framkvæmd almennra
húsaleigubóta verði færð til ríkisins.
Framkvæmd á húsnæðisstyrkjum til
leigjenda verður á tveimur stjórnsýslu-
stigum með auknum rekstrarkostnaði
og flóknara ferli fyrir hluta bótaþega.
• Ekki liggur fyrir viðhlítandi samkomulag
um breytingar varðandi fjárstreymi til
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til fjármögn-
unará núverandi kerfi.
Aukinn ríkisstuðningur mun að öllum líkindum leiða til hækkunar á leigu-
verði, sem kynni að skila meiri ábata fyrir leigusala en fyrir leigjendur.
Niðurgreiðsla húsaleigu verður því meiri sem tekjur eru hærri. Ferlið verður
flóknara og dýrara á tveimur stjórnsýslustigum.
18 ÞJÓÐMÁL