Þjóðmál - 01.03.2016, Side 68

Þjóðmál - 01.03.2016, Side 68
var lögfest árið 1875 og þar til tekin var upp sérstök gengisskráning íslenskrar krónu árið 1922 og erfiðleika í stjórnun peningamála framtil 1931. Þýsku og latnesku myntbandalögin Myntbandalög ríkja eiga sér langa sögu. Fyrsta vísi að slíku samstarfi má rekja aftur til fimmtu aldar fyrir Krist er sjö grísk borgríki í Litlu-Asíu tóku upp sameiginlega myntsláttu til að greiða fyrir viðskiptum. Þýska myntsamstarfinu var komið á lagg- irnar árið 1857, en fram til þess tíma höfðu hin fjölmörgu konungdæmi, hertogadæmi og frjálsar borgir innan Þýska sambandsins (þ. Deutscher Bund) haft með sér sína eigin gjaldmiðla, en með þýska myntsamstarfinu urðu þessar myntir aðeins tvær, Thaler í norðri og Gulden í suðri. Eftir sameiningu þýsku ríkjanna 1871 var komið á einni mynt, marki (þ. Goldmark). Efnahagslegur ávinn- ingur samstarfs af þessu tagi var öllum augljós.3 Fljótlega eftir sameiningu ítölsku ríkjanna var komið á fót myntbandalagi ítala, Frakka, Belga og Svisslendinga, og voru lög þar að lútandi samþykkt í viðkomandi ríkjum árið 1865. Þetta samstarf var nefnt latneska myntbandalagið (fr. union latine, ít. unione monetaria latina). Myntin var slegin úr gulli, silfri, nikkel og kopar og jafngild að þyngd og stærð, þannig að fyrir einn franskan franka fékkst einn belgískur franki, einn svissneskur og ein ítölsk líra. Latneska myntsamstarfið byggðist ekki á yfirþjóðlegum stofnunum, heldur eingöngu á því að gjaldmiðlar aðildar- ríkja samkomulagsins voru staðlaðir og þannig gerðir gjaldgengir í viðskiptum landa á milli. Samstarfið hófst formlega 1866 milli stofnríkjanna fjögurra, en tveimur árum síðar bættust Spánverjar og Grikkir í hópinn. Einn peseti og ein drakma jafngiltu þá einum franka. Árið 1889 fjölgaði ríkjum samstarfsins enn frekar er Rúmanía, Búlgaría, Venesúela, Serbía og San Marínó gerðust aðilar.4 í þessum löndum voru gjaldmiðlar jafngildir franka, nema hvað Serbar munu beinlínis hafa notast viðfranska peninga. Myntir þessara ríkja litu eins út, en hvert ríki hafði þó sitt skjaldarmerki öðru megin og mynd hvers konungs um sig hinum megin. Hér má því sjá augljósa hliðstæðu við evrumynt nútímans. Raunar voru á sama tíma uppi hugmyndir um víðtækara myntbandalag og árið 1865 urðu þreifingar um stofnun sameiginlegs myntbandalags allrar Norðurálfu og þá með þátttöku Breta. Fljótlega kom í Ijós að ekki gat náðst samstaða um hlutfall gulls í myntum beggja vegna Ermarsunds og þá hefðu Bretar þurft að taka upp tugakerfi í sínum gjaldmiðli. Slík breyting var eðlilega of byltingarkennd á dögum Viktoríu drottningar. Árið 1999 varð aftur Ijóst að Bretar yrðu ekki þátttakendur í nýjum sameiginlegum gjaldmiðli Norðurálfu, en það er önnur saga. í París höfðu menn þó ekki gefið mynt- samstarfvið Breta upp á bátinn og árið 1867 reifuðu franskir stjórnmálamenn hugmynd- ina um alþjóðamynt (fr. monnaie universelle) með þátttöku Frakka og Breta auk hins rísandi efnahagsveldis Bandaríkja Norður- Ameríku. Hugmyndir um sameiginlega mynt allrar Norðurálfu, eða alla vega meginlands- ins voru mjög í tísku á þessum árum og eðlilega fylgdust Bretar með þróun mála. Walter Bagehot, ritstjóri The Economist, velti upp áhyggjum af því að Bretar yrðu utan slíks bandalags með þeim orðum að þeir kynnu að verða skyldir eftir úti í kuldanum -,,be left out in the cold".5 Erfiðleikar Grikkja við upptöku sameigin- legrar myntar í nútímanum eru lýðum kunnar, en fjármálakreppur og efnahags- legur óstöðugleiki höfðu verið fylgifiskur gríska ríkisins allt frá því að Grikkir komust fyrst undan yfirráðum Tyrkjasoldáns 1832. Ekki leið að löngu eftir inngöngu Grikkja í myntsamstarfið er stjórnvöld þar í landi hófu að draga úr gullinnihaldi myntarinnar og þar með sviku þau samkomulagið. Raunar kvað svo rammt að þessu að Grikkjum var vísað úr samstarfinu 1908 og grískar drökmur þar með ekki lengur gjaldgengar í viðskiptum utan Grikklands. Grikkir gerðust þó aðilar að bandalaginu aftur tveimur árum síðar. Páfastóll mun einnig hafa gefið út mynt sem 66 ÞJÓÐMÁL

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.