Þjóðmál - 01.03.2016, Qupperneq 92
anna einnig getað haft áhrif á tímasetningar
á útgreiðslum úr slitabúi Landsbankans. Hinn
13. mars 2012 voru sett lög sem afnámu
sérstaka undanþágu slitabúa frá fjármagns-
höftum til að greiða til kröfuhafa (lög
nr.17/2012). Eftir það þurfti slitabú Lands-
bankans að sækja um undanþágu til Seðla-
bankans til að greiða til forgangskröfuhafa.
Undanþágubeiðnirnar vegna greiðslnanna
hinn 23. desember 2014 og 11. janúar 2016
voru langan tíma í meðförum Seðlabankans
og ríkisstjórnar. Ef ríkissjóður hefði haft beina
fjárhagslega hagsmuni af því að greiðslurnar
færi fram fyrr er hugsanlegt að afgreiðsla
undanþágubeiðninnar hefði tekið skemmri
tíma. Eftirstöðvarnar hefðu þá verið nokkrum
milljörðum króna lægri.
HEIMILDIR:
• Frumvarp til laga um heimild til handa
ijármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að
ábyrgjast lánTryggingarsjóðs innstæðueigenda
og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að
standa straum af greiðslum til innstæðueigenda
hjá Landsbanka íslands hf. Þskj. 204- 136. mál,
137. löggjafarþing. (Sótt 8.02.2016).
LBI (2015). Financial information at31.12.2014.
(Sótt 8.02.2016).
LBI (2016). Exception from Capital Controls -
final settlement of priority claims. 11. janúar
2016. (Sótt 8.02.2016).
Seðlabanki íslands (á.d.). Gengi gjaldmiðla:
Tímaraðir í Excel. (Sótt 8.02.2016).
Seðlabanki íslands (2015). Peningamál 2015/4.
62. rit. 4. nóvember 2015. (Sótt 8.02.2016).
Viðræðum um lcesave lokið - niðurstaða
liggur fyrir | Fréttasafn | Forsætisráðuneyti. (Sótt
11.02.2016).
Hersir Sigurgeirsson er dósent í fjármáium
við viðskiptafræðideild Háskóla íslands.
Greinin ersvar við spurningu um lcesave
sem sent til Vísindavefsins og birtist þar.
Spurt var: Hvað hefðu lcesave-
samningarnir sem kenndir eru við Svavar
Gestsson kostað íslenska ríkið hingað til ef
þeir hefðu verið samþykktir?
„Sósíalismi 21. aldarinnar"
Sagt er að undir markaðs-
hagkerfi verði hinir ríku
valdamiklir en undir félags-
hyggju verði hinir valdamiklu
ríkir.
Venesúela er gjaldþrota
og á barmi upplausnar eftir
að villtustu draumar félags-
hyggjumanna um að sníða af
galla frjáls markaðshagkerfis,
urðu allir að veruleika. Hvort
heldur er ný stjórnarskrá
„auðlindir í eigu þjóðarin-
nar" þjóðnýtingu „arðinn til
þjóðarinnar" nú eða draum-
urinn um jöfnuð.
Félagshyggjumenn um
allan heim hafa ekki brugðist
vondum málstað heldur
mært afnám viðskiptafrelsis,
þjóðnýtingu og
hverskyns stjórnlyndis-
tilburði valdhafa um leið og
einstaklingsfrelsi er formælt
sem rótum alls ills. fslenskir
félagshyggjumenn hafa lýst
einræðisherranum Chavez
sem „lang flottustum" en
Össur Skarphéðinsson lét
nægja að kalla hann „litríkan".
Nýjasta vonarstjarna félags-
hyggjumanna í Bretlandi
Jeremy Corbyn skrifaði:
Thanks Hugo Chavez for
showing that the poor
matter and wealth can be
shared. He made massive
contributions to Venezuela
&a very wideworld.
Stjórnmálamenn geta
einungis jafnað kjör þegna
sinna með því að jafna ofan-
frá, þ.e. með því að þrýsta
niður þeim sem standa upp
úr. Fátækir íbúarVenezuela
eru hinsvegar nú að upp-
götva að þeirra kjör hafa ekki
batnað þó svo að kjör hinna
ríku hafi versnað.
Þannig hefur dreifing
matvæla, verðlagsstjórnun,
gengisfölsun og innflutnings-
tollar einungis getið af sér
vöruskort og algera stöðnun.
Guðmundur Gunnars-
son [fyrrverandi] formaður
Rafiðnaðarsambandsins er
einn aðdáandi miðstýrðs
áætlunarbúskaps og skrifaði:
.... da Silva forseti Brasilíu,
hefur farið fyrir nýrri öldu
vaxandi félagshyggju í
S-Ameríku. Hugo Cháviz
90 ÞJÓÐMÁL