Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2021
Eldgosið í Fagradalsfjalli sýnir eng-
in merki þess að vera í rénun nú
þegar þrír mánuðir eru liðnir frá því
að það hófst. Gosið hófst föstudags-
kvöldið 19. mars og hefur síðan verið
áberandi í fréttum hér nær daglega.
Fjölmargir hafa farið að gosstöðv-
unum, sumir gangandi en aðrir með
þyrlu. Við höfum fengið fréttir af
bónorðum, upptökum á tónlistar-
myndböndum, pulsusölu og fólki
sem hefur næstum farið sér að voða.
Og þetta virðist rétt svo vera að
byrja.
Samkvæmt nýjustu mælingum
mælist Fagradalshraun nú 3,23 fer-
kílómetrar. Það hefur aukist um
rúmlega 60.000 fermetra á dag frá
síðustu mælingu eða sem samsvarar
um níu fótboltavöllum á dag.
Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur segir að nokkrir hlut-
ir geri eldgosið í Fagradalsfjalli sér-
staklega áhugavert. „Í fyrsta lagi að
það markar upphaf á nýju tímabili
gosa á Reykjanesskaga. Þar hefur
ekki gosið í 800 ár. Þá hagar gosið
sér töluvert öðruvísi en flest önnur
gos sem við höfum séð. Þau hafa
jafnan verið langstærst í upphafi,
svo hefur flæðið minnkað og er
kannski stöðugt í nokkurn tíma með
sveiflum. Þarna sáum við mjög ró-
lega byrjun en svo hefur það stækk-
að talsvert. Núna eftir þrjá mánuði
er það tvöfalt stærra en í upphafi.
Þetta er hegðun sem við höfum ekki
séð á Íslandi síðustu hundrað árin og
jafnvel lengra aftur.“
Hann segir einnig áhugavert að
fylgjast með því hvernig hraunið
fyllir dali og dældir og renni um-
hverfis móbergsfjöllin. Svæðið sé
smám saman að verða eins og lands-
lag er annars staðar á Reykjanes-
skaga.
Magnús segir ómögulegt að segja
til um það hversu lengi gosið muni
standa eða hvort hraunrennslið
muni aukast frekar. Hann segir
jafnframt að þær aðgerðir sem ráð-
ist er í til að verja vegi, ljósleiðara og
fleira séu sjálfsagðar en þær muni
litlu breyta um stóru myndina.
Áhrifin ráðist af því hversu lengi
gosið stendur. hdm@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Núna Gosið eins og það leit út þegar dróni ljósmyndara Morgunblaðsins flaug yfir svæðinu á miðvikudag. Myndin, sem tekin er í átt að Merardölum, sýnir vel hversu víðfem hraunbreiðan er orðin.
Mun stærra
en í upphafi
- Þrír mánuðir frá því eldgos í Fagra-
dalsfjalli hófst - Hraunið stækkar ört
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgot
t, hollt
og næring
arríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær