Morgunblaðið - 18.06.2021, Side 14

Morgunblaðið - 18.06.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er víðanokkurtuppnám í stjórnmálum landa sem við á þessari breiddargráðu í Atlantshafinu fylgj- umst hvað best með. Miðpunktur okkar eigin tilveru virðist þó í bærilegu jafnvægi. Þingmenn lokuðu á eftir sér á Austurvelli laust fyrir þjóðhátíð og munu láta lítið fyrir sér fara næstu átta vikur, en blása svo í lúðra. Þeir gefa sér að stjórnmál nái illa eyrum þjóðar um okkar skammvinnu sumartíð. Mörg lönd boða sínar reglu- legu kosningar í september, svo sem Þýskaland og Svíþjóð, og þykir hentugt. Vel má ímynda sér að kosningar hér seint í september, eftir stutta og snarpa baráttu, geti gefist vel. Það er reyndar ekki víst að nú fáist full reynsla á slíkan kosn- ingatíma. Það sérstaka nú er að ýmsir láta að því liggja að flokk- arnir þrír sem að stjórn standa telji kosningarnar eiginlega formsatriði. Stjórnarmyndunin hafi í raun farið fram. Nú síðast varð formaður Framsóknar- flokks ekki skilinn öðruvísi en þannig og hinir forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar höfðu áður tjáð sig með áþekkum hætti. En að sjálfsögðu hafa allir hefð- bundinn fyrirvara um að ekkert óvænt komi upp úr kjörköss- unum. Í gær bárust fréttir um að Svíar væru loks komnir með upp í kok með að hafa sænska sósíal- demókrata í síendurnýjaðri minnihlutastjórn þó að stuðn- ingur fólksins við þá sé sá minnsti í heila öld. Fréttir sem borist hafa frá Svíþjóð hafa óneitanlega verið með nokkrum ólíkindum. Svíþjóð hafði yfir- bragð festu og stöðugleika ára- tugum saman, svo að stundum minnti mest á deyfð og leiðindi. En síðustu árin hafa helst minnt á tryllinginn í Síkakó vestra undir stjórn demókrata þar sem skothríð og óeirðir lita lífið. Frá Svíþjóð berast iðulega fréttir um að lögregla treysti sér ekki til að bregðast við bænaróskum um hjálp nema hafa fengið tóm til að safna liði og fara fjölmenn og velvopnuð inn í einstök hverfi. Þetta er nokkurt feimn- ismál í fyrirmyndarríkinu svo sumir utan þess hafa samúð með því. Sjálfsagt er það þess vegna að „RÚV“ hér berast helst eng- ar fréttir af ástandinu þar. En það má vera að fréttir frá ná- grönnum okkar í Namibíu gangi fyrir og taki upp allt rekstrarfé þess. En nú hafa loks vaknað þau sjónarmið í Svíþjóð að rétt geti verið að taka mið af kosninga- úrslitum þegar raðað er í ríkis- stjórn en ekki láta regluna halda, að sá flokkur sem fái mest afhroð skuli fá mest völd. Í Frakklandi bendir margt til að aðdragandi og úr- slit kosninga á næsta ári gætu orðið athygl- isverð. Fréttir berast þaðan um að Michel Barnier, samninga- maður við Breta um helst enga útgöngu þeirra úr ESB, gæli við að bjóða sig fram sem forseti Frakklands. Hann segist enga formlega ákvörðun hafa tekið um framboð en neitar engu. Fréttaskýrendur í París, sem ekki eru í hópi þeirra sem hrifn- astir eru af þessu hugsanlega framboði, sögðu þó í gær að það væri ágætt skref hjá honum að hafa komið sér heim til Frakk- lands eftir óendanlega komm- isseratilveru í Brussel og byrjað að skoða sig um. En Barnier kynnti heimkomu sína með því að leggja til að nú yrði gert þriggja ára hlé á innflutningi „flóttafólks“ til Frakklands á meðan ástandið væri metið. Fyrrnefndir bættu því við að sjálfsagt þyrfti Barnier slíka pásu, eftir að hafa verið 20 sinn- um lengur í Brussel en Napól- eon var á Elbu, til að róta sér í gegnum gamlar fréttir. Macron forseti var ekki orðinn fertugur þegar hann strauk úr fóstri frá Hollande forseta sem var kom- inn með fylgismælingar sem sýndu í prósentum sömu hæð og regnvatn mældist í sentimetrum í rennusteinum í París eftir þokkalegt skýfall. En Barnier hafði tekið eftir því að það gafst vel fyrir Macron að stofna nýjan flokk áður en nýtt framboð var tilkynnt og fá þannig „fjarlægð“ frá Hollande, sem allt fram til þess hafði borið Macron á höndum sér. Barnier vill nú blása lífi í einhvers konar nýja blöndu af hægriblokk sem hann geti leitt og tekist á við Marine Le Pen. Þegar hún hefði svo unnið hann í fyrstu umferð, án þess að fá hreinan meirihluta, gætu vinstrimenn flykkst á bak við hægrimanninn Barnier og „komið í veg fyrir“ að fröken Le Pen verði næsti forseti Frakk- lands. Þessi gamalkunna form- úla hefur dugað fram að þessu og ekki er víst að hún sé orðin eins útjöskuð og sænska aðferð- in að verðlauna sænska sósíal- demókrata með áframhaldandi völdum eftir hvert tap þótt orðið sé aldarmet! Þeir sem bera sig eftir frétt- um frá Svíþjóð, og taka þær nærri sér, gætu þó farið að ímynda sér að engin lausn þar geti verið verri en þessi sem er þrautreynd þar. Kannski gætu Frakkar loks vaknað upp við sinn vonda draum líka. Svíþjóð er hætt að ganga upp. Svíar vita það. En þora þeir að viðurkenna það?} Huldar fréttir og hörmulegar Í gær fögnuðu Íslendingar þjóðhátíð- ardeginum. Við gleðjumst saman á ári hverju hinn 17. júní og heiðrum þá sem börðust fyrir sjálfstæði Íslands. Við erum stolt af því að hafa öðlast sjálfstæði og vera þjóð meðal þjóða. En hvað gerir þjóð að þjóð? Algeng skil- greining á þjóð er þegar hópur fólks uppfyllir ákveðin skilyrði, þ.e. deilir sameiginlegri sögu, menningu, þjóðarvitund og síðast en ekki síst sameiginlegu tungumáli. Þjóð þarf ekki endilega að deila sameiginlegu land- svæði. Við Íslendingar erum vissulega, sem eyríki, landfræðilega afmörkuð þjóð en ís- lenskan er samt sem áður meðal þess sem gerir íslensku þjóðina að þjóð. Okkur ber því að standa vörð um tungumálið okkar því ís- lenskan er ekki einungis hluti af okkar dag- lega lífi, heldur varðveitir tungumálið sögu okkar og menningararf. „Tungan geymir sjóð minning- anna,“ sagði frú Vígdís Finnbogadóttir í sinni fyrstu ræðu sem forseti íslenska lýðveldisins hinn 1. ágúst árið 1980 og það eru mikil sannindi fólgin í þeim orðum. Í því alþjóðlega umhverfi sem við búum við í dag verð- ur sífellt mikilvægara að standa vörð um íslenskuna – okkar dýrasta arf. Að tryggja varanleika hennar verður aðeins gert með markvissum aðgerðum. Grunnurinn er auðvitað góð íslenskukennsla í skólum landsins, aðgengi og stuðningur að bókum á íslensku og öðru afþreyingar- efni. Kvikmyndir og tölvuleikir eru yfirleitt á ensku. Vissulega hjálpar slíkt efni mikið við að læra ensku en það reynist oft vera á kostnað ís- lenskunnar. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningar- málaráðherra hefur lagt áherslu á fjölmargar aðgerðir í sinni ráðherratíð sem beinast að varðveislu tungumálsins. Ráðherra hefur t.a.m. lagt áherslu á að gera íslensku að gjaldgengu tungumáli í stafrænum heimi þar sem til dæmis gervigreind og raddstýrð tæki spila stór hlutverk í lífi fólks. Sjálfseignar- stofnunin Almannarómur og SÍM – sam- starfshópur um íslenska máltækni hafa leitt vinnu á þeim vettvangi, undir forystu ráð- herra. Fyrstu áfangar þess verkefnis fela í sér gagnasöfnun en síðan verður smíðaður hugbúnaður með stoðtólum fyrir máltækni, vélrænar þýðingar, málrýni, talgreini og tal- gervil. Þá má nefna nýleg samskipti menntamálaráðherra við afþreyingarrisann Disney um útgáfu myndefnis gegnum Disney plús. Í kjölfar samskipta ráðherra við fyrirtækið hefur Disney tryggt íslenska textun og/eða talsetningu á fleiri en 600 myndum eða þáttum á Disney+. Meðal þeirra eru Star Wars-myndirnar og Marvel-myndirnar, sem eru vinsælar meðal allra aldurshópa. Það eru einmitt svona hlutir, svona dugnaður og frum- kvæði, sem eiga þátt í varðveislu tungumálsins. Silja Dögg Gunnars- dóttir Pistill Okkar ástkæra og ylhýra Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is A fhendingaröryggi raforku til atvinnulífs og íbúa á Sauðárkróki hefur aukist til muna eftir að tvö ný tengivirki voru tekin í notkun á Sauðárkróki og í Varmahlíð. Það er tæknifyrirtækið RST Net sem sá um uppbyggingu tengivirkjanna en framkvæmdin hefur staðið yfir síðan í maí 2020. Upphaflega stóð til að klára verkið í október á síðasta ári, en tafir urðu vegna faraldursins. Kostaði hálfan milljarð Kristján Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri RST Nets, segir í samtali við Morgunblaðið að fram- kvæmdin hafi kostað um hálfan milljarð króna. Hann segir að tengi- virkin séu yfirbyggð og gasein- angruð. „Þau eru af nýrri kynslóð tengivirkja með nýjum stafrænum búnaði til mælinga og eru því svo- kölluð stafræn tengivirki,“ útskýrir Kristján. Hann segir tengivirkin hafa í för með sér meiriháttar ávinning í hönn- un, uppsetningu og rekstri. Meðal annars sparast umtalsvert magn af koparstrengjum með þessari nýju tækni. Um afhendingaröryggið segir Kristján að ónógt afhendingar- öryggi raforku og léleg flutnings- geta hafi staðið uppbyggingu at- vinnulífs á Sauðárkróki fyrir þrifum en nú ætti fyrirtækjum eins og Mjólkursamlagi KS og Dögun rækjuverksmiðju á Sauðárkróki ekki að vera neitt að vanbúnaði að efla starfsemina enn frekar. „Þessi fyrirtæki hafa þurft að treysta á rafmagn um loftlínu sem oft hefur fengið á baukinn í gegnum tíðina, eins og gerðist til dæmis í óveðrinu í lok árs 2019. Menn hafa lengi verið að þrýsta á um að fá bætt úr þessu.“ Auk gömlu loftlínunnar er nú kominn strengur í jörð frá Varma- hlíð til Sauðárkróks, á milli tengi- virkjanna tveggja. Byrjað er að flytja rafmagn um strenginn að sögn Kristjáns. Hægt að rista brauð Þriðja tengivirkið sem klárað var á dögunum er við Hnappavelli við rætur Öræfajökuls, en ferðaþjón- usta á svæðinu, þar á meðal Foss- hótelið á Hnappavöllum, hafði búið við óöryggi í afhendingu rafmagns. „Nú ættu menn að geta ristað sér brauð áhyggjulausir,“ segir Kristján og brosir. Annað svipað verkefni sem er í gangi hjá RST Neti er uppsetning stafræns tengivirkis við Lækjartún, rétt austan við Þjórsá, sem mun færa meiri raforku inn á raf- orkukerfið á Suðurlandi. Verklok eru um næstu áramót og kostar framkvæmdin um einn milljarð króna. Mikill gangur hefur verið í upp- setningu tengivirkja fyrir Landsnet á síðustu misserum, enda segir Kristján að þörfin hafi verið orðið uppsöfnuð víða um land. Spurður um áhrif faraldursins á framkvæmdirnar segir Kristján að hann hafi hægt á öllu. „Til dæmis þurftum við að fá sérfræðinga er- lendis frá í miðjum faraldrinum sem þurftu að vera í tíu daga sóttkví. Við náðum sem betur fer að búa til að- stöðu fyrir þá þannig að þeir gátu unnið í sóttkvínni.“ Fyrirtækjum á Sauðár- króki ekkert að vanbúnaði Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rafmagn Tengivirkin eru af nýrri kynslóð með stafrænum búnaði. Stafrænt tengivirki er hugtak not- að um rafmagnstengivirki þar sem rekstri þess er stjórnað með dreifðri greind rafeindatækja sem eru tengd saman með ljósleiðara. Stafrænu tengivirkin hafa í för með sér meiriháttar ávinning í hönnun, uppsetningu og rekstri. Framkvæmdir í Skagafirði hóf- ust vorið 2020 og lauk með spennusetningu í Varmahlíð 29. maí og á Sauðárkróki 1. júní 2021. Samhliða byggingu tengivirkjanna var lagður 66 kV jarðstrengur á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar sem RST Net sá um að tengja. Í tengivirkjunum sá RST Net um hönnun, útvegun og uppsetningu á öllum háspennubúnaði ásamt stjórn- og varnarbúnaði og DC- kerfum. Stjórnað með dreifðri greind STAFRÆN TENGIVIRKI FELA Í SÉR MIKINN ÁVINNING Virki Stafrænt tengivirki frá RST Neti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.