Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1975, Síða 6

Skólablaðið - 01.02.1975, Síða 6
Þegar hún fer að bera sig saman við karlmanninn í hans íþróttum, verður hún oftast léttari á metunum. Og það er eðlilegt að hún verði það, og mesta heimska að bera á móti því. En í sínum íþróttum er hún karlmanninum fremri, og þær á hún að leggja stund á. Karlmenn hafa aldrei álit á henni til karlmannsverka og vilji hún einskorða sig við þau, verður hún aldrei í hávegum höfð. En allir karlmenn virða þær konur. sem eru vel að sér á kvenna vísu. Þess vegna held ég konunni það heppilegast að haldaáfram að vera kona, og kappkosta ekkd að líkjast karlmanninum. Það hefur áreiðanlega rétt á sér, þegar sagt er um konu, að hún sé ókvenleg. Og kvenlegar ættu konur alltaf að vera. Þá njóta þær sín. Þá kem ég að öðru atriðinu í kröfum Sverris, sundrun heimilisins. Það er harla undarlegt að nokkur skuli taka sér svo stór orði í munn, að kalla heimilið helvíti barnanna, eins og þeir gera Sverrissinnar. Ég á mjög bágt með að halda það sprottið af öðru en þekkingarleysi á þessu sviði. Er ekki einmitt heimilið börnunum það sama sem hreiðrið er ungunum, skýli og vernd fyrir öllum veðrum, í öllum merking- um þess orðs? Hvað sem á bjátar, er þó alltaf hægt að flýja heim undir verndarvæng foreldra og systkina. Heimilið safnar fjölskyldunni saman og þar glæðast flestar þær fegurstu hug- sjónir í hugum barnann, sem verða þeim leiðarljós á lífsbraut- inni. Og margur mun á fullorðinsárunum hugsa til æskuheimilis síns með innilegu þakklæti, og minnast þess, hve margt hann á því upp að unna. Sverrir, svo mikill sögumaður, þekkir á- reiðanlega mörg þess dæmi úr mannkynssögunni, að heimilið hafi orðið, jafnvel mikilmennum, öll stoð þeirra og stytta, og jarðnesk paradís. En því miður eiga ekki allir slík heimili, og mörg eru mjög sleem. En það má ekki dæma út frá þeim og draga þá ályktun, að öll heimili skuli leggjast niður. Ef ekkert væri heimilið, myndi börnunum vera komið fyrir á upp- eldisstofnunum. Það er svo ótrúlega margt, sem af þessu mundi leiða eins og hver maður sér. Barnið missti t.d. alla aðbúð móðurinnar, og vita allir hvað það hefði að segja. Og svo er það svo ótal margt, sem heimilið hefur fram yfir aðra staði, að missir þess væri mikið tjón fyrir alla. Enginn skilji orð mín svo, að ég álíti Sverri hafa dæmt út frá sínu eigin heimili. Auðvitað er skoðun hans mynduð á athugun allra þeirra heimila sem hann þekkir. En ég álít, sem sagt, að skoðun hans sé röng. Og það, sem hann finnur heimilinu aðallega til foráttu er, að það kæfi hugsjónir barnanna. Eg hef aldrei fyrr heyrt þessu haldið fram. Allir sannir foreldrar reyna að glæða fagrar hugsjónir hjá barninu en ekki drepa þær. En flesta mun renna grun í af hvaða rótum þessi umhyggja fyrir velferð konunnar og barnsins muni vera runnin, þegar þeir heyra dæmið, sem Sverrir tók á fundinum sæla. Ég ætla að leyfa mér að birta það. Það var þannig: Ef barn á ríkra manna heimili aðhyllist skoðanir jafnaðarmanna, myndu þær strax vera kæfðar af foreldrunum. Mann fer nú að gruna að þessi kenning sé eitthvað pólitísk. Jafnaðarmenn ætla að sýna kvenþjóðinni fram á hve hún sé kúguð af karl- mönnunum og fá hana í lið með sér. Þeir knýja á þar sem garð- urinn er lægstur, því þeir búast við að allt kvenfólk sé leið- itamir sauðir, og kalla til þeirra með fagurgala og fleður- látum. Þegar jafnaðarmenn eru búnir að leysa kvenfólkið úr ánauð, búast þeir náttúrulega við hjálp þess í stjórnmálum á eftir. Þannig er að mínu áliti málið vaxið þegar öllu er á botninn hvolft. Ot frá þessu verður einnig bölvun heimilisins skiljanleg. Börnunum á að koma á uppeldisstofnun, til þess að hægt sé að ná tökum á þeim nógu ungum. Kenna þeim strax kver jafnaðarmanna, þ.e. hverju misrétti þau séu beitt og hve allir menn séu ranglátir. Það er ekki við því að búast, að allir gleypi við þessari stefnu, án þess að smjatta fyrst. Og þó að mörgum verði á að hrækja á eftir getur það tæplega kallast matvendni. Kenningin er afskaplega væmin, því sé hún krufin til mergjar, fellur hún marflöt á sínu eigin bragði. Hún heimtar frelsi kvenna, en vill þó kúga konur til þess að líkjast sem mest karlmönnuniim. Trausti Einarsson. SVARTIL.... Trausti Einarsson hefur sent nSkólablaðinu" grein eftir sig, er heitir "Kvenfrelsi". En þótt greinin beri þetta nafn þá er ég þó aðalpersónan í leiknum, svo að ætla mætti að hann teldi mig nokkurs konar persónugerving kvenfrelsisins. Kann ég þeirri virðingu vel, þótt hún sé, því miður, mjög óverð- skulduð. I grein þessari ræðir hann um skoðanir mínar á frelíi kvenna, er ég lét í ljós á fundum í nFramtíðinnin, er rætt var um kvenfrelsismálið. Ræðst hann all harkalega á þær, en jafnframt kastar hann til mín persónulegum hnútum, sem ekki koma við máli því, sem hér liggur fyrir. Hann kveður mig t.d. vera svo pólítískan, að hvenær sem ég standi í ræðustól, þá sé ég kominn út í pólitík og hreyti úr mér skömmum yfir þá, sem gefi sig ekki alla að stjórnmálum. Þessi orð eru af lít— illi góðgirni sögð og með enn minni sannindum. Þau eru eins fjarri réttu lagi, semframast má verða, og gæti ég fengið um það vitnisburð margra skólabræðra minna, sem meta meira sann- leikann, en T.E. gerir, enda þótt hann gefi nú í skyn, að all gott samkomulag sé á milli sín og sannleikans. Ennfremur segir hann mig róa öllum árum að misklíð og óánægju manna á milli. Slík ummæli hljóma ókunnuglega í eyrum mínum. Ég 'Veit ekki til, að ég hafi komið fram sem friðspillir manna iá milli, og vísa ég því þeim ummælum heim til föðurhúsanna. En ef það eru friðspjöll kölluð, að ég veki máls á einhverju því, sem allir eru ekki á einu máli um, þá er nú satt að segja orðið fjandi erfitt að lifa hér á jarðríki, svo ekki raskist friðurinn. Mér þykir því margt vera í grein Trausta,, sem sprottið er að persónulegri óvild til mín, og er það þó furðulegt, þar sem ég hefi átt fá viðskipti við mannin, nema hvað ég rökræddi við hann á "Framtíðar"-fundi um sögunám, er hann hélt þar frábærlega vitlausa ræðu um það efni. Þá vil ég loks beiðast undan þeirri vegtyllu, er Trausti gerir mér, er hann kallar mig á einum stað í grein sinni "mannkyns- fræðara". Ég lít nefnilega ekki svo mikið á mig, að ég ætli mig vera "þann, sem koma skal", þótt Trausti kannski geri það. Skal ég svo víkja að aðalefni greinar hans og því, sem okkur greinir þar á. T.E. hefur mál sitt á að skýra frá því, að nú sé sá mað- ur uppi, sem Sverrir heiti, og að þessi maður ætli sér ekki minni hlut en þann, að hafa endaskipti á einu lögmáli náttúr- unnar. Hann ætli að gera konuna að karlmanni (sicl). Ég ef- ast ekki um, að Trausti segi það satt, að sig "furði stórkost- lega" á slíkum býsnum. En sem betur fer hef ég aldrei haft slík stórræði í huga, né heldur sagt nokkrum frá því. Þetta er ekkert annað en hugarburður Trausta sjálfs. Hann byggir því grein sína á vitlausri forsendu, og því er ekki að kynja þótt "miðbikið sé áátalaust, og endinn afskaplegur”. En þessi upphafsorð hans sýna glögglega, hve mjög hann misskilur grundvallarskoðun mína á kvenfrelsismálinu og konuna sjálfa. Hann hyggur sem sé, að konan muni líkjast æ meira karlmanninum að eðlisfari, ef hún vinni sömu störf og hann. Við skulum at- huga þessa kenningu nokkuð nánar. Ég hygg ekki. Það má sanna það með fjölda mörgum dæmum, að kvenrithöfundar standa karlmönnum í engu að baki, hvort sem er á sviði lista eða vísinda. Og við þurfum ekki að leita til kvenrithöfunda til að afsanna hinar rakalausu fulljrrðingar T.E. Ég hefi hér á borðinu fyrir framan mig bók eina enska, er heitir MThe woman's pastM, eftir L.K. Yates,(London 1918). Það er skýrsla um hið mikla starf, er enskar konur unnu í hergagnaverksmiðjum brezku á stríðs- árunum, þegar karlmennirnir fóru til vígvallarins og mann- fátt gerðist heima í Englandi, flykktust konur af öllum stéttum inn í hergagnaverksmiðjurnar og unnu að hergagna- smíði sem karlmenn væru. Höfundurinn segir, að nú (þegar bókin er skrifuð) vinni 2.000.000 manna í hergagnasmiðjum og sé þriðji hlutinn konur. Þær stóðu karlmönnum í engu að feaki um dugnað og hugrekki. Þær voru jafn slyngar við fíngerð störf, sem mikillar aðgæzlu og nákvæmni þurfti við, sem við hin grófgerðari. Jafnvel þar, sem allmikilla lík- amskrafta var þörf, stóðu þær karlmönnum fullkomlega á sporði. Þetta verk enskra kvenna, var mjö lofað, sem verð- ug var, og er talið, að þær hafi átt mikinn þátt í því, að England átti sigri að hrósa að ófriðnum loknum. Þetta er eitt dæmi af mörgum, sem sýnir það og sannar, að konur hafa vaxið af að vinna karlastörf, en ekki lækkað. Af orðum T. má ráða, að hann skiptir mannlegri starf- semi í tvennt, karlastörf og kvenna. Hann dregur glögga merkjalínu þar á milli. Kvennastörf telur hann vera mest heimilisstörf og allt sem þeim fylgir, svo sem barnauppeldi o.fl., en karlastörf þau, sem vita meira út á við, utan heimilisins. En er nú þessi skipting rétt? Nei. Auðvitað er hún bandvitlaus. Það hefði mátt færa hana til sanns vegar fyrir fjórum öldum eða svo, en nú á hún ekki lengur við. T. er því nóhuggulegaM langt á eftir tímanum. Nú á síðustu tímum hafa konur numið sér ný starfssvið utan heim- ilisins og það í svo ríkum mæli, að þeð er beinn bjálfaskap- ur að skipta starfsemi mannanna, eins og T. gerir. Nú fæ ég ekki skilið orð T. öðruvísi en svo, að "kvennastörf- inM hafi gert konuna að kvenmanni úr því að MkarlastörfinM gera hana að karlmanni. Þá fer mann að renna grun í, hvað T. á við með orðinu kona. Sú er ein sönn kona, sem gegnir húsmóðurstörfum eða einhverju því, sem hægt er að telja undir "kvennastörfM. En þá þykir mér konuhugtakið vera farið að verða harla magurt og mjóslegið, er húsmæður einar hafa rétt til nafnsins kona. 1 hvaða stöðu, sem konan er, hvort sem hún sýslar um heimilisstörf og stendur fyrir heimili, eða hún stjórnar heilu landi, hvort sem hún situr við sjúkrabeð barns síns, eða hún græðir mein manna sem læknir, þá er hún alls staðar hin sanna kona. Það er því býsna fávizkulegt, að veitast að þeim konum, sem hafa haft þor í sér til þess að leita sér víðara starfssviðs, en heimilið getur veitt, og segja þær hafa glatað kveneðli sínu og fengið karlmannseðli í staðinn. Það ber vitni um, að heldur er lágt til lofts í vizkusal manna, sem slíku halda fram. T.E. skilur ekki kveneðlið betur en svo, að hann hyggur, að það strjúki úr konunni jafnskjótt og hún ttekur til þeirra starfa, sem honum hefir þóknast að merkja sem Msérstaklega karlastörfM. En ef svo væri, þá þætti !mér aú.lmikill smíðagalli á eðli mannsins frá skaparans hendi. Þá ætti auðvitað þessi sama kenning að gilda fyrir karla líka. Karlmenn ættu þá að missa sitt eigið eðli, ef þeir sinntu MkvenmannsstörfumM. Saumaskapur og eldamennska eru án efa "kvennastörfM í augum T.E. En eru þá allir skraddarar, eldamenn og matsveinar kvenmenn að eðlisfari? T. mun auðvitað segja já, en hræddur er ég um að annað yrði svarið, ef við spyrðum þessa virðulegu menn að því hvort svo væri. Nei, eðlið er miklu fastara bæði í körlum og konum, en svo, að hægt sé að hafa skipti á því, eins og þegar menn skipta um föt. Ég fullyrði því, að konur verða ekki fremur að karlmönnum þótt þær yrðu læknar, lögfræðing- ar, prestar og prófessorar, en T.E. yrði að kvenmanni, þótt hann legði fyrir sig eldamennsku og læsi kvennafræðarann spjaldanna á milli. Þegar T. er búinn að hlaupa svo mjög á sig út af eðlisummyndun konunnar, þá tekur hann að tína til þá ann- marka, semséu á því, að konan gegni ýmsum störfum í þjóð- félaginu, sem liggja utan heimilis. Hann viðurkennir, af því að hann getur ekki annað, að konan hafi gáfur til jafns við karla. En þó skortir hana eitthvað, að hans dómi. 6

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.