Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 17

Skólablaðið - 01.02.1975, Blaðsíða 17
hann ekki annað en gefa fyrirskipun, fyrirskipun um árás með vetnisvopnum og örðum múgmorðstækjum, og mannkynið var dauða- dæmt. Enginn mundi treysta sér til að mótmæla. Hver einstakur, sem í framkvæmdunum stæði, mundi hugsa um sitt verk og enga hugmynd hafa um afleiðingarnar eða tilganginn. Enginn mundi trúa því, að fyrirskipun, sem faðir minn gæfi5 væri gefin £ brjálæði og stríddi gegn hagsmunum þjðarinnar. Allir vissu, að hvert orð og hver skipun, sem frá föður mínum kom, var vandlega hugsuð og endanlega samþykkt sem skynsamlegasta lausnin. Faðir minn var ekki einræðisherra, alls ekki. Hann var lýðræðislegur leiðtogi Fimmta ríkisins, en völd hans voru þetta mikil. Ég sat þarna í stólnum og hlustaði á hann lýsa því ó- hugnarlega lífi, sem mannkynið ætti í vændum, ef Fjórða ríkið næði yfirhöndinni. Það var ófögur mynd. Hann endurtók það hvað eftir annað, að hann gæti ekki sætt sig við að hverfa úr þessum heimi, vitandi vits5 að þær rolur, sem eftir lifðu. létu traðka öllum sönnum hugsjónum og andlegum verðmætum í skítinn, en mannkynið tæki upp lifnaðarhætti, sem væru hvort tveggja í senn dýrslegir og ónáttúrulegir. Faðir minn var furðulega rólegur, og varla hægt að sjá það á honum, að hann væri brjálaður. En hver sem heyrði hann segja fullan hug sinn gat ekki verið í vafa. Hann var ákveð- inn í því að framkvæma áform sitt fyrir miðnætti þann 15. marz5 og nú voru 36 klukkutímar til stefnu. Ég varð stöðugt æstari í skapi, eftir því sem ég gerði mér betur ljóst, hvílíkur voði var á ferðum. Að lokum gat ég ekki stillt mig lengur. Eg sagði honum, að ég myndi gera allt, sem í mínu valdi stæði til að hindra hann í áformi sínu og koma honum frá. Rimma okkar var hörð en ekki löng, því að hann vísaði mér á dyr. Lokakveðja hans var sú, að ég mætti óttast um líf mitt, ef ég segði frá fyrirætlun hans eða stæði í vegi fyrir honum á einhvern hátt. Eg ætlaði að svara og segja, að ég væri hvort eð er dauðadæmdur eins og allir aðrir, ef það tæk- ist ekki, en ég komst ekki til þess. Faðir minn dró fram skammbyssu, og ég hraðaði mér út úr húsinu. Ríkisráðsfundur hafði verið boðaður á hádegi daginn eftir, og ég hafði því einn sólarhring til stefnu. Fyrsta verk mitt var að tala við kunningja mína og vini úr hópi æðstu ráðamanna landsins og leita aðstoðar þeirra. Þetta voru ungir, framgjarnir og róttækir menn, sem ég hafði kynnzt á ríkisráðsfundum og við önnur stjórnarstörf, og í sannleika sagt þeir einu, sem ég gat nokkurrar hjálpar vænzt af. Ihaldssemi var sannarlega ekki einkenni þeirra, heldur rétt og snör handtök, þegar mikið lá við. Þó var þetta mál einum of stórt fyrir þá flesta til að þeir gætu kingt því. Ég hafði reyndar engan tíma til að útskýra málið rækilega. Hver mínúta var dýrmæt, og á fundi ríkisráðsins varð ég að hafa fjölmennt og harðsnúið lið. En hvílíkt vantraust og hvílíkt ábyrgðarleysi á hættustund' Sárafáir þorðu að hætta á að gera nokkuð. Völd þeirra og áhrif voru í hættu, ef ég færi með rangt mál. A hinn bóginn var hættan of fjarlæg, lygileg og ópersónuleg til að hún hefði nokkur áhrif. Mjög margir héldu, að ég væri að undirbúa byltingu og ætlaði mér með þessu bráðsnjalla ráði að velta föður mínum úr sessi, en taka sjálfur völdin. Aðrir litu á mig vorkunn- araugum, sannfærðir um, að það væri ég en ekki faðir minn, sem væri brjálaður. Ég skal fúslega viðurkenna það nú, að báðar þessar hug- myndir voru miklu líklegri en sannleikurinn sjálfur. En ég skildi það ekki þá. Mér var ógerlegt að skilja, hvernig þeir gátu setið aðgerðarlausir. Allan þennan dag og næstu nótt var ég á þönum úr einum staðnum á annan. Hvarvetna mætti ég tortryggni og vantrú, og aðeins mjög fáir féllust á að veita mér lið. Allmargir lofuðu að athuga málið, þegar á fundinn kæmi, en ég vissi sem var, að það var aðeins kurteisi. Skömmu áður en ríkisráðsfundur hófst þann örlagaríka dag, 15* marz, tókst mér að ná tali af föður mínum. Hann var mjög reiður við mig og í æstu skapi, og samtalið varð því ekki langt. En mér tókst þó að fá um það örugga vitneskju, að hann hafði í engu breytt áformi sínu og var enn ákveðinn í að láta til skarar skríða fyrir miðnætti þennan dag. Fundur ríkisráðsins var settur á hádegi og stóð langt fram eftir degi. Ég hafði sett allt mitt traust á þennan fund. Hann var seinasta vonin, og þar varð ég að sigra. Fundurinn var einvígi milli mín og föður míns, - og hann Ég heyrði, að faðir minn var vaknaður og gekk um gólf inni í klefanum. Klukkan var stundarfjórðung gengin í tólf. 45 mínútur voru eftir. Ég sat í sófa í miðri stofunni, og fyrir framan mig á borðinu lá hlaðin skammbyssa. Jakkinn minn lá á stól úti við gluggann og í öðrum vasanum var einnig hlaðin byssa. Skyndilega heyrði ég þungt högg, sem barst út úr klefan- um. Það var líkast því, að faðir minn hefði fallið í gólfið. Ég kallaði til hans og spurði, hvort nokkuð væri að. Hann svaraði ekki, en ég heyrði hann stynja, eins og hann væri fárveikur. Ég kallaði enn til hans. Fyrst var þögn, síðan heyrði ég hann tauta: "Loksins er ég að deyja." Mér þótti þetta heldur ótrúlegt og spurði, hvað væri að honum. Hann stundi lengi og svaraði síðan: "Mér er að blæða út.M Ég varð orðlaus af undrun. Eftir stutta þögn hélt hann áfram veikum rómi og mjög hægt: "Þetta er undarlegt. Hvers vegna gat ég ekki beðið? SjálfsmorðT Ja, guð hjálpi mér. Þvílík heimskaT Og aðeins tæpur klukkutími eftir. Af hverju gat ég ekki beðið? En ég skil þetta vel. Auðvitað átti ég að deyja svona. Auðvitað' Sonur minnT Vertu sæll. Ég skil þig fullkomlega. Þetta var það eina, sem þú gazt gert. Gangi þér ávallt vel." Hann þagnaði. Ég stóð sem stirðnaður nokkrar sekúndur. Það var mín sök, að faðir minn hafði framið sjálfsmorð. Mig langaði mest til að fleygja mér í gólfið og hágráta. En sú hugsun stóð ekki við nema brot úr sekúndu. Ég réðist á skápinn eins og trylltur maður og þeytti bókunum út í stofuna. Lásinn var þungur. Loksins tókst mér að opnaí Fyrir innan hurðina stóð faðir minn, eilítið gleiður, saman hnipraður, andlitið þrútið og rautt, augun ægileg. Hann var alheill' Eitt andartak horfðumst við í augu. Hann hafði blekkt mig, blekkt mig stórkostlega. Þrír stundarfjórðungar voru eftir. Það var nægur tími. Og þarna stóð hann, tilbúinn að stökkva á mig. Andartakið var liðið. Mér tókst að halda jafnvægi, þrátt fyrir kraftinn, sem fylgdi stökkinu. Við tókumst harkalega á, feðgarnir, jafnstórir og svipaðir að styrkleika. Hlaðin byssan lá enn á borðinu í miðri stofunni. Ég reyndi að forðast, að hann sæi hana, en það tókst ekki. Þegar hann sá hana, trylltist hann um allan helming. Augnablikssýn brá fyrir augu mér eins og leiftri. Ég sá gegnum gluggan, hvar þau stóðu, ungu elskendurnir, á Frelsis- torginu undir stóra birkitrénu og kysstust. Þessi sjón gat af sér örstutta hugarsýn. Ég sá fyrir nrér gamlan og tötrum búinn Araba, mann, sem enga hugmynd hafði um aðrar þjóðir, um stefnur eða hugsjónir - aðeins fátækur betlari, lifandi mann- persóna. Ég var að berjast fyrir þetta fólk' Skyndilega virtist faðir minn fá tröllaukinn kraft. Hann hrinti mér af miklu afli aftur á bak, svo að ég skall í gólfið. Þarna stóð hann, ægilegur ásýndum, yfir syni sínum. Hann var sannarlega ekki í nokkrum vafa, hvað hann ætlaði næst að gera. Ég verð að viðurkenna, að þótt ég hefði næstum grátið einni mínútu áður, af því að ég hélt, að faðir minn væri að deyja, þá vissi ég nú upp á hár, hvert mitt hlutverk var. Hann var standandi, ég lá. Ég var miklu nær byssunni í jakkanum en hann borðinu. Annar hlaut að verða á undan, annar hlaut að deyja. Og þarna barðist ekki aðeins maður við mann um lífið, heldur mannkynið við dauðann. Og kapphlaupið hófstí Hvert einast mannsbarn veit, hvor okkar var á undan að skjótaí Ég gizka á, að forskotið hafi verið um það bil þrjár sekúndur. Þrjár sekúndur, - það er stuttur tími. Þarna hafði sá örskammi tími meiri afgerandi áhrif á líf og fram- tíð mannkynsins en tugir og jafnvel hundruð fyrri alda. Eigum vér að gleðjast eða harma, hvernie fór? Einn, tveir, þrírl Skotið reið afl Júl Sannarlega skulum vér gleðjast yfir því, að það var faðir minn en ekki ég, sem skaut á undan. Mannkynið stefndi í glötun, og faðir -minn myrti það. Mér er spurn. Hvernig væri annars umhorfs hjá okkur. Astandið væri hálfu verra. I stað þess að sitja hér í góðum fagnaði handan við gröf og dauða, áhyggjulausir og fullir lífsþróttar og gleði og brjóta til mergjar torráðnustu gátur alheimsins eða rannsaka hina endasleppu sögu mannkynsins, þá hímdurn við nú í atómtrylltri veröld, annað hvort uppskrúfuð af taugaæsingi eins og vatn í hvirfilvindi eða svefndrukkinn af lífsleiða. Herra forseti, faðir minn, háttvirtir félagar Hins sam- einaða vísindafélags sagnfræðinga og annarra áhugamann um sögu mannkynsins! Lyftum glösum vorum og skálum í þessum dýru veigum fyrir Drottni allsherjar. Honum sé ævinlega þökk, að fór sem fór. Janúar 1958. Ragnar Arnalds. 33 *árg.4«tbl. sigraði' Hvílík vonbrigðií Strax í upphafi fundarins skildi ég, að faðir tefldi fram öllu því, sem hann átti til. Hann sat þögull í sæti sínu, festa og öryggi skein úr hverjum andlits- drætti, og ógerlegt var að sjá það á honum, að nokkuð sér- stakt væri á seyði. Hann var sannarlega leikari af guðs náð. Á hinn bóginn þurfti ég að einbeita mér að því að koma þessum leikara úr jafnvægi, láta hann missa tök sín á hlutverkinu og opinbera þá staðreynd, að hann væri brjálaður. Ég varð að skjóta á veikan punkt og hitta nákvæmlega. Ég veit ekki, hvort mér tókst það, en faðir minn þagði allan þennan fund. Ég hafði skipulagt aðförina að honum mjög vel og nákvæm- lega ásamt stuðningsmönnum mínum. Nokkrir ungir fulltrúar risu á fætur og gerðu hver af öðrum fyrirspurnir til stjórn- arinnar um ýmis atriði þessa máls. Undrun og órói breiduu um sig, og flestir skildu, að eitthvað mjög óvenjulegt lá í loftinu. Þá stóð ég á fætur og bað um orðið. Ég tefldi fram öllu, sem til var. Ég lýsti því yfir, að vegna ofþreytu hefði faðir minn bilað á geðsmunum og væri því stórhættu- legur maður. Hann væri í þann veginn að hefja skyndiárás á óvinina með kjarnorkuvopnum, árás, sem allir vissu, að táknaði allsherjardauða, og ríkisráðið yrði að koma í veg fyrir áform hans. Ég krafðist þess, að hann yrði settur af, eða umræður þessar yrðu gerðar almenningi kunnar, en þetta var lokaður fundur og bannað að skýra frá, hvað þar gerðist, og einnig, að almenningur yrði minntur á þá grein stjórnar- skrárinnar, að enginn mætti framkvæma árásarfyrirskipun, nema hún vari undirrituð af framkvæmdaráði. Eg man, að ræða mín hafði stórkostleg áhrif. Það var eins og sprengju hefði verið varpað í salnum. Fyrst var grafarþögn, síðan hófust geysilegar umræður manna á milli. Sekúndu eftir sekúndu beið ég, beið eftir svipbreytingu á föður mínum. Allir störðu á mig og hann. Eldur brann í loftinu. Hann sat sem fastast, náfölur og þungbrýndur. Hvað mundi hann þola þetta lengi? Hvenær mundi hýðið springa? Nokkrir ráðherrar gengu til föður míns og ráðguðust við hann. Ég heyrði ekki, hvað þeim fór á milli, en ég sá, að hann var stuttur í spuna. Mínúta leið. Ekkert gerðist. Að lokum steig utanríkis- ráðherra í ræðustól og flutti stutta ræðu. Hann sagðist skilja vel, að faðir minn svaraði engu. Sonur hans hefði greinilega misst bæði ráð og rænu og ekki væri frekar eyðandi orðum að þessu. Það eina, sem faðir minn gæti gert, væri að fá mig með góðu til að fara á geðveikrahæli. Aðrar ræður voru á svipaða leið. Ég gerði örvæntingarfulla tilraun til þess að sannfæra þá, en ég hætti þv£ fljótt. Það var gagns- laust og hafði heldur aldrei verið ætlunin. Faðir minn hafði staðizt prófraunina, og ég hafði tapað. Klukkan sex um kvöldið lauk fundinum. Eg stóð einn og yfirgefinn, stimplaður föðurníðingur og vitfirringur. Sex klukkutimar voru til stefnu. Innan þess tfma yrði strfð haf- ið, sem gerði mannheim að gjalti. Ég fékk mér sæti á bekk f mannhafinu á Frelsistorginu framan við Stjórnarhöllina, þar sem faðir minn bjó nú einn. Á bekk andspænis mér undir stóru eikartré sátu ungir elskend- ur. Hún var klædd rauðri regnkápu, og skolleitt, hrokkið hárið liðaðist undir kragann niður á hálsinn. Hún hafði stór og björt augu, freknur á litlu nefinu og spékoppa f kinnunum. Hann var dökkhærður, hár og grannur og ef til vill dálítið klaufalegur. Líklega voru þau svona glöð, af því að þau ætl- uðu að fara að gifta sig. Hún átti ef til vill von á barni. Átti faðir minn að fá að njyrða þetta fólk? Atti faðir minn að fá að myrða þær milljónir elskenda, sem hlupu um f heiminum og gæddu hann lífi og fegurð? NeiT Ég varð að hindra hanní Ég þreifaði eftir skamm- byssunni f jakkavasanum. Hún var á sínum stað, og áður en ég vissi, var ég kominn að þrepum Stjórnarhallarinnar. I þessu húsi var ég alinn upp. Lffverðirnir voru flestir gaml- ir vinir mínir, leikbræður og verndarar. Enginn gat komizt ótruflaður í gegn um varnarmúr þeirra nema ég og faðir minn. Féeinum mínútum seinna stóð ég í bókaherbergi hans. Enginn var sjáanlegur þar inni. Ég kreppti höndina um skammbyssuna f vasa mínum. Ég hafði ekki minnstu hugmynd um, ég ætlaði að gera. Ég vissi aðeins, að eitthvað varð ég ;ra. Hvar var faðir minn? Skyndilega tók ég eftir því, að ein bókaskápsröðin fyrir miðjum veggnum gekk á misvfxl við þá næstu eins og skápurinn væri á hjörum. Eg varð lamaður af undrun og fögnuði. Faðir minn hafði farið inn í leyniherbergið bak við bókaskápinn, þar sem ýmis mikilvæg skjöl voru geymd. Hið gullna tækifæri var komiðí Ég læddist yfir endilanga stofuna að öryggishjól- inu og sneri því. Ég beið. Hafði hann heyrt nokkuð? Svo tók ég undir mig stökk og hljóp, - hljóp og slengdi mér af öllum mínum þunga á skápinn. Ég var hólpinn, faðir minn var hólpinn, mannkyninu var bjargað. Ég heyrði föður minn reka upp öskur og ráðast á hurðina af trylltum mætti. Hann lamdi, klóraði og öskraði eins og hann gat. En það var tilgangslaust. Enginn nema ég gat heyrt óp hans. Ég sagði honum, að hann ætti að dúsa þarna fram yfir miðnætti, og hann skyldi bara vera rólegur. Eftir tíma fór að draga niður f honum, og að lokum held ég, hann hafi sofnað. Tíminn leið hægt og sfgandi. Mér var ógerlegt að sitja , og ég reykti hverja sígarettuna á fætur annarri. Klukkan hálf tfu var friðurinn úti. Þjónninn kom og agði, að nokkrir ráðherrar væru að spyrja eftir föður mfnum. sagði, að hann væri ekki heima og vonaði, að þar með væri ég laus við þá. En skyndilega var hurðinni hrundið upp, og inn gengu þrír ráðherrar f fylgd með nokkrum lífvörðum. Ég varð skelfingu lostinn. Faðir minn þurfti ekki annað en að hrópa, og allt var glatað. Þeir grunuðu mig um græzku. Ég ætla ekki að reyna að lýsa þeirri taugaspennu, sem gagntók mig, þær tuttugu mínútur, sem liðu, áður en ég gat komið þeim út. Hvað eftir annað fannst mér ég heyra andar- drátt hans bak við þilið, heyra hann hósta eða hreyfa sig. Ég var náfölur og titrandi, og allir vissu það, að ég bjó yf- ir meiru en ég sagði. Að lokum fóru þeir. Mínúturnar snigluðust áfram, óbærilega hægt. 17

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.