Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.02.1975, Page 14

Skólablaðið - 01.02.1975, Page 14
ARNIBJÖRNSSON - VIDTAL Á mörkum þorra og góu lögðum við undirritaðir leið okkar upp á Þjóðminjasafn. Ekki var það til að hlusta á nið aldanna eins og ætla mætti heldur til að rifja upp gamlar endurminningar og rabba við Árna Björnsson þjóðháttafræðing. En hann ritstýrði skðlablaði M.R. á árunum 1951-1952. Rétt inn af fornum róðrabáti, í kjallara safnsins, fundum við Áma5 sem bauð okkur inn í skrifstofu sína. Og eftir að hafa komið okkur fyrir þar, spurðum við hann fyrst: -Hvernig kom það til að þu settist í menntaskðla, voru framtíðarplön þín ráðin? -Þau voru áreiðanlega ekki ráðin, enda var ég ungur, en ég tilheyri seinasta árganginum, sem fer í gegnum sex bekki í menntaskóla, og erum við, að okkar mati, síðustu sönnu menntskælingarnir. En hvers vegna maður fer í menntaskóla. Það var víst ósk föður míns á dánarbeði að yngsta barnið af okkur átta systkinum gengi menntaveginn og þar sem mér líkaði rám betur en erfiðisvinna, þá lét ég það gott heita, þegar að því kom. -Hvernig var andinn í skólanum á þessum árum, var ekki rrikill rígur milli þessara tveggja deilda? -Það var alltaf viss rígur á milli þeirra, sem voru í gagnfræðadeild annars vegar og lærdómsdeildar hins vegar, einnig þegar ofar dró á milli okkar og þeirra, sem komu inn um ,'bakdyrnarM með landspróf upp á vasann úr öðrum skólum. Við þóttumst vera kjarninn, jafnvel göfugri en hinir. -Nemendur úr M.R. hafa oft verið orðlagðir fyrir merki- legheit, var ekki rígur á milli skólanna hér í Reykjavík? -Ef það var einhver skóli, sem við litum niður á, þá var það Verzlunarskólinn. En hann var eini skólinn, sem var sambærilegur að því leyti að hann útskrifaði stúdenta. En í því sambandi var oft rætt um Verzlunarskólahneykslið, þ.e. að þeim skyldi leyfast þetta. A þessum tíma var mikið setið á kaffihúsum og þá eitt- hvað sérstakt tekið fyrir t.d. Ormurinn langi í Aðalstræti, en verzlingarnir eltu okkur alltaf og þar sem okkur þótti ekki vært að vera innan um þennan lýð, færðum við okkur yfir á Hressó, en sama sagan endurtók sig, þannig að við fórum á þann fræga stað, Laugaveg 11, af því að við vildum sem minnst samneyti hafa við þetta fólk. Annars veit ég ekki hvað við meintum mikið með þessu, en þó hafði maður á tilfinningunni, að það væri eitthvað göfugra í manni blóðið heldur en í þessum verzlingum. -I grein, sem Thor Vilhjálmsson skrifar í afmælisrit, sem gefið var út þegar skólinn átti 120 ára afmæli, segir hann m.a. "Þegar ég fer að hugsa um þessi ár í menntaskól- anum, þá man ég eftir því að hafa leiðst,. Mér leiddist svo mikið í menntaskólanum, að síðan hefur mér ekki leiðst.” Leiddist þér þegar þú varst hér í skólanum? -Eflaust hefur það stundum komið fyrir, en afstaða mín er alveg þveröfug við hugmyndir Thors, vegna þess að mér þótti þetta svo viðburðaríkt og umfram allt þægilegt líf. Satt bezt að segja, þá hálfkveið ég fyrir því að fara úr skólanum, vegna þess að ég vissi áð þá tæki alvara lífsins við. Maður var þarna eins og í náðarfaðmi þessarar Alma Mater. -En svo við snúum okkur að skólablaðinu og hlut þínum í því, hvenær var það þá sem þú sazt fyrst í ritnefnd, og voru einhverjar sérstakar orsakir fyrir því að þú bauðst þig fram í þetta embætti? -Það var vorið, sem ég sat í þriðja bekk. Þá var ég boðinn fram til ritnefndar og var því í fjórða bekk í þeirri nefnd, en í fimmta bekk og hálfan veturinn þegar ég var í sjötta bekk var ég ritstjóri blaðsins. Hvers vegna ég gaf kost á mér man ég ekki svo glöggt. Oftast voru það klíkur, sem sameinuðust um einn ákveðinn mann, og þannig var það eflasuSt einnig með mig. -Var það ekki oft pólitískt hvernig sú kosning fór? -Jú, sérstaklega í embætti eins og inspector scholae og ritstjóra sem þóttu pólitískt mikilvæg, þar sem þeir komu stundum fram út á við fyrir hönd skólans. Það er rétt að hafa það í huga að þetta gerist á árun- um um og eftir 1950 þegar Kalda stríðið var í algleymingi. En þá voru sérstakar kosningar í stjórn Framtíðarinnar og börðust menn þar eins og ljón, enda hörð pólitísk kosning. Við vinstri menn töpuðum alltaf vegna þess að Heimdellingarn- ir og "þögli meirihlutinn" voru svo sterkir, en af þessari vonlitlu baráttu lærðum við margt í pólitískum starfsháttum, og það varð okkur gott veganesti síðar meir. -Þú minntist þarna á skiptingu milli hægri og vinstri afla innan Framtíðarinnar, kom hún ekki fram í blaðinu? -Við reyndum að halda blaðinu nokkuð ópólitísku vegna þess áhrifavalds, sem rektor og ábyrgðarmaður blaðsins höfðu. Stefna skólayfirvalda var þá að halda nemendum utan við þá ólgu, sem var í þjóðfélaginu. Innganga Islands í Atlantshafsbandalagið var nýafstaðin, Keflavíkursamningurinn og koma hersins 1951» Hins vegar komu oft einstaka greinar, sem tókst að hleypa í gegn, en við það risu menn upp önd- verðir og fóru fram á svargrein í blaðið, sem við að sjálf- sögðu birtum. Sjálfur var ég fylgjandi því að fá meiri umræður inn í blaðið um pólitísk mál (sbr. grein Arna bls. 28, 3.tbl. 28. árg.), en þó innan vissra takmarka vegna þess að pólitískt þvarg hefur alltaf hneigð til að verða hálf ófrjótt. -Hvernig var blaðið unnið á þessum árum, var auðvelt að fá nemendur til að skrifa í blaðið? -Ritnefndin reyndi að safna efni, en það gekk illa eins og ævinlega, að fá menn til að skrifa í blaðið. Hins vegar vissum við af ákveðnum mönnum, sem voru skrifglaðir, og þess vegna var yfirleitt leitað til þeirra. Eg á þar við t.d. Hannes Pétursson, Dr. Þorvarð Helgason, Emil Eyjólfsson frönskufræðing, Einar Laxness, en hann ritaði oft fræði- legar greinar. Guðmundur Sigvaldsson jarðeðlisfræðingur var þá oft talinn með efnilegri skólaskáldum, Jökull Jakobsson, Þorgeir Þorgeirsson (verri), Sveinn Einarsson, Jón Böðvars- son, en ritfærasti maðurinn var almennt talinn Kristján Arna- son, grísk-latínisti, sem þá sá m.a. um þáttinn Blekslettur. -A sínum tíma komst þú með nýjan haus á skólablaðið, sem enn er öðru hverju notaður og Dandimannaþáttinn. Hvernig kom það til? -Varðandi hausinn á blaðinu, þá væri miklum áfanga náð, ef hann hyrfi að eilífu burt úr blaðinu, því hann er að mlnu mati sá ógeðfelldasti, sem notaður hefur verið. Og þar af leiðandi eitt að mínum embættisglöpum. Dandimannaþátturinn er þannig til kominn, að ég hafði fengið að erfðum gömul skólablöð frá frænda mínum, og þar sem ég var að fletta þeim rakst ég á þátt, sem var einhverj- ir palladómar um menn eins og Agnar Bogason og Gunnar Nor- land. Þar sem mér fannst að þessi þáttur gæti orðið merk heimild síðar meir, þ.e. samtíma lýsingar á nemendum, sem voru áberandi í skólalífinu, ákvað ég að taka hann upp að nýju. Það vildi svo til, að við vorum að lesa Heimsósóma Skáld - Sveins í fimmta bekk hjá Þórhalli Vilmundarsyni, en þar kemur þetta fyrir. "Verða margir dandimenn forsmáðir." Og þar sem dandimenn þýðir dáindismenn eða heiðursmenn fannst mér þetta ágætis nafn. Sá fyrsti, sem varð fyrir valinu, var þáverandi hringjari, Ríkharður Pálsson tannlæknir, og var skrifuð mjög skemmtileg grein um hann, og tók höfundur hennar af mér strangan eið uiaxxá nafn hans yrði ekki af mér strangan eið um að nafns hans yrði ekki getið, og ha hann hef ég haldið. En þar sem svo langt er frá liðið tel ég að engan ætti að saka þó að ég uppljóstri því, en það var Magnús Þórðarson framkvæmdarstjóri NATO á Islandi, sem gat verið bráðskemmtilegur penni, enda áttum við ófáar á- nægjustundir saman. -Þú minnist þarna á NATO. Kom innganga Islands í Atlantshafsbandalagið, vorið 1949, mikið við við sögu í skól- anum? —Jú, vissulega, því það voru nokkrir nemendur, sem voru í hópi hvítliða inni í Alþingishúsinu þrítugasta marz og sama kvöldið var haldinn fundur uppi í T-stofu hjá Fram- tíðinni, að vísu ekki um þetta efni, en umræðurnar snerust mest um þetta mál. Ég var óttalegur barnfugl þá, en ég man eftir því að verðandi inspector scholae, Arni Gunnarsson flutti tillögu þess efnis að víta ætti þá nemendur, sem tóku þátt í kylfuliðinu, og þá man ég að ólafur Haukur Olafsson, fráfarandi inspector, nú kvensjúkdómalæknir, snerist öndverð- ur gegn þessari tillögu vegna þess að honum fyndist það helvíti hart, ef víta ætti menn fyrir það eitt að gegna borgarelegri skyldu. Þá var borin fram tillaga um að þakka þeim, en báðar voru felldar. -Hvað skipti nemendum í pólitískar raðir á þessum tíma, þar sem nemendur virðast annars vegar hafa verið harðir sovét-kommar og hins vegar íhaldsseggir? -A þessum tíma var mjög einföld skipting á báða bóga. Annað hvort varstu með eða á móti. Þ.e. Rússadindill eða Kanasleikja. Þeir Heimdellingar álitu, að við, sem þeir kölluðu komma, fengjum skipanir beint frá Sósíalistaflokknum, en því fór svo fjarri, því að fæstir okkar, sem eitthvað bar á í pólitík í skólanum vorum I Æskulýðsfylkingunni eða einhverju slíku. T.d. fórum við eitt sinn á fund hjá Æsku- lýðsfylk;ingunni bara til þess að gera sprell. Tildrög þessa voru þau, að ölafur Jens Pétursson, sem að vísu var fylking- armaður, átti að halda ræðu þar á fundi og við mættum lík- lega 10-20 manna hópur og hlustuðum á ölaf, en gengum við s svo búið út til þess að sýna fundinum að öðru leyti háðung. Eg var sjálfur hálfgerður hlutleysingi fram eftir öllu, en þar semég var eitthvað á móti Heimdellingum fékk ég útnefn- inguna kommúnisti. Því má scgja að þessi vinstrimennska hafi frekar verið eðlisávísun en það að maður væri sérlega lesinn í þessum fræðum eða bundinn ákveðnum flokki. Lærð- ustu Marxistar á mínum árum fannst mér vera þeir Þorvarður Helgason, Wolfgang Esselstein og Jakob Jakobsson, nú fiski- fræðingur. -Hver var afstaða vinstrimanna þá gagnvart Sovétríkjunum? -Þeir, sem gengu svo langt að kalla sig kommúnista, voru þeim mjög vinsamlegir, en það er ekki þar með sagt að þeir hafi trúað á Stalín, eins og á kreppuárunum, þegar það var viðtekin skoðun að Sovét væri framtíðarríki, enda vissu þeir þá ekki betur Þeir sem voru að mynda sér sína sósíalistísku afstöðu upp úr 1950 voru frekar efagjarnir gagnvart Sovétríkjunum, og afstaða mín var t.d. sú, að þó svo þeir hefðu klúðrað þessu öllu fyrir austan, þá ætti það ekki að vera dómur um sósía- lismann sem slíkan. -Telur þú að pólitísk afstaða nemenda hafi mótazt af því hvaðan þeir komu úr þjóðfélaginu? -Ég tel að uppruni manna hafi ekki skipt neinu höfuð- máli I pólitískri afstöðu. Sem dæmi um það má nefna suma þá, sem komu úr verkamannastéttum og vildu komast þá, sem komu úr verkamannastéttum og vildu "komast áfram" eftir emhættisbrautinni. Fyrir þá var vænlegast að halla sér að þeim, sem völdin höfðu, þ.e. Sjálfstæðisflokknum eða Framsókn. Einnig má á það benda að margir, sem koma frá svokölluðum betri fjölskyldum, eru hinir æstustu kommar á yngri árum, eins og við höfum ágætt dæmi um nú á dögum, þ.e. Marx-Leninistarnir, sem eru jafnvel úr auðstétt lands- ins. Annars er þetta verðugt verkefni til að gera félags- lega könnun á. 14

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.