Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 2
Neyðarkall af Suðurlandsbraut
Íbúar hjúkrunarheimilisins Markar á Suðurlandsbraut virtust vera í miklum hremmingum þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar þar að garði í gær. Nokkrir
listfengir starfsmenn heimilisins stóðu fyrir því að skreyta húsið í anda hrekkjavökunnar og spöruðu sig hvergi í hryllingnum. Sjá nánar á síðu 16 – ef þú þorir.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ekkja Sigurjóns Ólafssonar
hefur leitað réttar síns hjá
lögmanni eftir langa bið eftir
lausn á rekstri safnsins.
bth@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Birgitta Spur, ekkja
Sigurjóns Ólafssonar, segist sjá eftir
að hafa gefið Listasafn Sigurjóns til
íslenska ríkisins.
„Ef íslenska ríkið hefur ekki bol-
magn til að hlúa sómasamlega að
arfleifð Sigurjóns og hugverki mínu
er það siðferðileg skylda ríkisins að
skila gjöfinni, mínum eigum og
heimili,“ segir Birgitta.
Forsaga málsins er að eftir lát
Sigurjóns stofnaði Birgitta einka-
safnið LSÓ 1984 með aðsetur í
vinnustofu hans og heimili þeirra
hjóna á Laugarnesi. Húsnæðið var
endurgert, safnið opnað almenningi
haustið 1988 og gert að sjálfseignar-
stofnun 1989.
Safnið hefur verið rekið með
styrkjum frá ríki og borg og sjálfs-
af latekjum en hrunið 2008 lék
það grátt, að sögn Birgittu. Niður-
skurður leiddi af sér að það vantaði
8 milljónir króna til að brúa bilið
milli tekna og gjalda. Sjálfseignar-
stofnunin var lögð niður og mennta-
málaráðherra, Katrín Jakobsdóttir,
veitti í júní 2012 viðtöku skuldlausri
eign sem var safn í fullum blóma.
„Með gjafabréfinu fylgdi sam-
komulag milli Listasafns Íslands og
stjórnarinnar þar sem kveðið var
á um að safnið yrði rekið „í anda
þeirrar starfsemi sem þar hefur
verið rekin“ með rannsóknarvinnu,
tónleikahaldi og fjölbreyttri menn-
ingarstarfsemi,“ segir Birgitta. Ekki
hafi verið staðið við það.
Á árunum 2012–2015 hafi verið
ríflegar fjárveitingar til LSÓ af fjár-
lögum, en þær hafi ekki komið Lista-
safni Sigurjóns til góða. Samkvæmt
skýrslu ríkisendurskoðunar í mars
2016 fór 71 prósent, eða 104 millj-
ónir, sem voru eyrnamerktar LSÓ,
til rekstrar Listasafns Íslands.
Birgitta leitaði til lögmannsstofu
sem hefur verið með málið síðast-
liðin þrjú ár. „Lilja Alfreðsdóttir
menntamálaráðherra tók vel í ósk
mína um að safnið yrði rekið sem
sjálfstæð eining með eigin stjórn og
eigið fjármagn, í líkingu við Lista-
safn Einars Jónssonar og Gljúfra-
stein,“ segir Birgitta.
Embættismenn ráðuneytisins
hafi ekki getað fallist á þetta.
„Þess í stað bauðst mér og fjöl-
skyldu minni útvistun á rekstri
safnsins til fimm ára,“ segir hún.
„Síðasta útgáfa útvistunarsamn-
ingsins hefur verið í vinnslu hjá
ráðuneytum menntamála og fjár-
mála í 16 mánuði og nú er mér sagt
að það styttist í að gengið verði frá
samningnum og að árlegt fjárfram-
lag verði 19,5 milljónir króna sem
ekki verði hækkað á samningstíma-
bilinu, en sú upphæð samsvarar
rekstrargjöldum safnsins árið 2011.“
Í skýrslu ríkisendurskoðunar
kom fram „að fulltrúi ráðuneytis-
ins kvaðst raunar líta svo á að eftir
gjafagerninginn væri ekkert til sem
héti Listasafn Sigurjóns Ólafssonar.“
„Hefði ég vitað um þessa afstöðu
ráðuneytisins 2012 hefði ég aldrei
gefið hugverk mitt, Listasafn Sigur-
jóns Ólafssonar, til íslenska ríkis-
ins,“ segir Birgitta. ■
Ekkja sér eftir að hafa gefið
ríkinu Listasafn Sigurjóns
„Hefði ég vitað um þessa afstöðu ráðuneytisins 2012, hefði ég aldrei gefið
hugverk mitt,“ segir Birgitta Spur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ef íslenska ríkið hefur
ekki bolmagn til að
hlúa sómasamlega að
arfleifð Sigurjóns og
hugverki mínu er það
siðferðileg skylda
ríkisins að skila gjöf-
inni, mínum eigum og
heimili.
Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns
Ólafssonar
mhj@frettabladid.is
COVID-19 Alls hafa meira en fimm
hundruð manns greinst með Covid-
19 smit í vikunni, í gær voru þrír á
gjörgæslu. Farsóttanefnd Landspít-
ala hefur breytt heimsóknareglum
og má gestur heimsækja hvern
sjúkling í að hámarki eina klukku-
stund á dag. Farsóttanefndin hefur
áhyggjur af því að fjöldi smita muni
leiða til f leiri innlagna.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir að ekki sé búið að taka
á kvörðun um bólu setningu barna
yngri en 12 ára. Níu fullbólusett
börn á aldrinum 12 til 15 ára hafa
smitast af þeim 12 þúsund sem búið
er að bólusetja.
Már Kristjáns son, yfir læknir á
smit sjúk dóma deild Land spítala,
segir að það sé ekki hægt að bera
Co vid-far aldurinn saman við
árlegan inf lúensu far aldur þrátt
fyrir að þjóðin sé nær öll full bólu-
sett. Veiran muni veikjast á næstu
árum, eftir áratug verði hún eins og
hvert annað kvef. ■
Verði eins og
hvert annað kvef
Már Kristjáns
son, yfir læknir á
smit sjúk dóma
deild Land
spítala
gar@frettabladid.is
LÍFEYRISMÁL „Við höldum því mjög
til streitu að skerðingar á lífeyri
á móti greiðslu úr frjálsa lífeyris-
kerfinu séu ólöglegar,“ segir Helgi
Pétursson, formaður Landssam-
bands eldri borgara.
Aðalmeðferð í máli þriggja með-
lima Gráa hersins gegn ríkinu vegna
skerðinga á ellilífeyri hafi fólk tekjur
úr lífeyrissjóðum fór fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Helgi segir að er frjálsa lífeyris-
kerfið hafi verið sett á fót 1969 hafi
menn verið sammála um að það
væri viðbót. Frjálsu lífeyrissjóðirnir
hafi vaxið stórkostlega og séu nú
yfir sex þúsund milljarðar króna.
„Í litlu þjóðfélagi þá freistast
menn til að horfa á þetta og skerða
það sem á að koma á móti greiðsl-
unum úr frjálsu lífeyrissjóðunum,“
útskýrir Helgi og bendir á að
skerðingin nemi gríðarlegum upp-
hæðum. „Þarna er verið að taka 45
milljarða af einum hópi á ári.“
Helgi segir ríkislögmann hafa
komið með nýtt útspil í dómsal í
gær er hann hafi kynnt hugtakið
„nýi ellilífeyririnn“. Þetta segir
Helgi til marks um örvæntingu eftir
að ríkið hafi áður fengið meðferð
málsins frestað fjórum sinnum. ■
Telur útspil ríkisins örvæntingarfullt
Frá mótmælafundi Gráa hersins á
Austurvelli í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 Fréttir 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ