Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 6
Sandreyðar sjást helst
við Ísland síðla sumars
og á haustin.
Það er engin ástæða
fyrir okkur hjá hinu
opinbera að fjarlægja
fólk frá náttúrunni.
Elliði Vignisson,
bæjarstjóri
Ölfuss
Ölfus opnar dyrnar fyrir gesti
um helgina sem vilja koma og
skoða sandreyðina sem rak á
land í vikunni. Sveitarfélagið
ætlar ekki að urða hvalinn
fyrr en eftir helgi svo að sem
flestir geti komið og notið.
benediktboas@frettabladid.is
ÖLFUS Sveitarfélagið Ölfus hefur
tekið ákvörðun um að ráðast í
urðun sandreyðarinnar, sem rak
upp í fjöru við Þorlákshöfn, eftir
helgi. Er það gert til að gefa áhuga-
sömum færi á að skoða hvalinn í
blíðunni um helgina.
Veðurspá er með besta móti
og vill Sveitarfélagið Ölfus hvetja
íbúa á höfuðborgarsvæðinu og í
nágrannabyggðum til að gera sér
dagamun með því að skoða hvalinn
sem svo heppilega vill til að er afar
aðgengilegur. Áhugasömum er bent
á bílastæði við golfvöllinn en þaðan
er örstuttur gangur að hvalnum.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í
Ölfusi, segir að það sé ekki algengt
að hval reki upp á land og hann sé
stoltur af því að geta boðið bæjar-
búum upp á slíka sýningu.
„Það er ekki á hverjum degi
sem svona stórhveli í svona góðu
ásigkomulagi skolar á land. Flest
bendir til að hvalurinn sé nýdauður.
Hann liggur í þessari fallegu fjöru á
aðgengilegum stað þannig að okkur
fannst full ástæða til að gefa fólki
helgina til að koma og berja hann
augum,“ segir Elliði.
Á vef Náttúrufræðistofnunar
segir að sandreyður haldi til á heit-
tempruðum eða hitabeltissvæðum
á veturna. Yfir sumarið leita sand-
reyðar í kaldari sjó til fæðunáms og
sjást helst við Ísland síðla sumars og
fram á haust. Sandreyðar geta orðið
60 ára gamlar. Kálfar eru á spena í
6-7 mánuði en algengt virðist að um
þrjú ár líði á milli kálfa hjá hverri
kú. Sandreyður er, ásamt langreyð-
um, hraðsyndastur allra hvala og
geta náð allt að 40 kílómetra hraða
á klukkustund.
Sandreyður er þriðja stærsta
tegund reyðarhvalaættarinnar og
vegur yfir 20 tonn.
„Bæjarbúar eru ánægðir með að
fá að skoða hann. Hér er bæjarhátíð
sem stendur yfir og kallast Þollo-
ween sem er skírskotun í Hallo-
ween og það er stöðug dagskrá alla
helgina,“ segir Elliði. Allt gangi þetta
út á drauga, forynjur og hryllilegar
verur. „Þannig að dauður hvalur
kemur beint inn í það mengi þó
hann sé nú óttalega vinalegur þarna
í f læðarmálinu.“
Elliði segir að bæjarbúar muni
taka vel á móti hvalagestum helgar-
innar með sinni góðu sundlaug og
hvetur gesti til að fá sér ís á eftir.
„Íslendingar búa í nágrenni við
náttúruna og það er engin ástæða
fyrir okkur hjá hinu opinbera að
fjarlægja fólk frá náttúrunni, segir
bæjarstjórinn.
„Það er okkar hlutverk að auð-
velda fólki aðgengi og hvetja til þess
að njóta náttúrunnar í staðinn fyrir
að rjúka til eins og hún sé eitthvað
sem sé ekki æskilegt að njóta.“ n
Dauður hvalur í fjörunni rímar afar
vel við hátíðarhöldin í Þorlákshöfn
Veðurspá er með besta móti og vill Sveitarfélagið Ölfus hvetja íbúa á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum
til að gera sér dagamun með því að skoða hvalinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KLETTAGÖRÐUM 8—10 / HÁTÚNI 2A / SUÐURHRAUNI 2B / LYNGHÁLSI 2
TÍMAPANTANIR Á KLETTUR.IS OG Í SÍMA 590 5100
Bókaðu
dekkjaskiptin
á klettur.is
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Gunnar Þorgeirsson,
formaður Bændasamtakanna og
garðyrkjubóndi, segir miklar tafir
á afhendingu umbúða fyrir land-
búnaðarvörur í kjölfar kórónavei-
rufaraldursins. Bið eftir umbúðum
sé allt að átján vikum.
„Ég þarf að bregðast við í nauð-
vörn, því miður, þetta hefur heil-
mikil áhrif,“ segir Gunnar. „Mínir
birgjar fá ekki það sem þeir þurfa
til að framleiða umbúðirnar og þar
af leiðandi fæ ég ekki umbúðirnar,
eitt leiðir af öðru.“
Gunnar segist geta pakkað græn-
metinu sem hann ræktar og selt það
í búðir en ekki í þær umbúðir sem
hann kýs.
„Ég er búinn að vera að reyna að
kaupa pappírsumbúðir utan um
afurðirnar hjá mér síðan í janúar
en síðustu fréttir sem ég fékk voru
Erfitt að fá umbúðir fyrir grænmeti og pappír í Bændablaðið
Gunnar Þor-
geirsson, for-
maður Bænda-
samtakanna og
garðyrkjubóndi
þær að við fáum þetta ekki afgreitt
strax vegna þess að birgjarnir fá
ekki pappír.“
Gunnar hafði stefnt að því að
skipta sem mestu af sínum umbúð-
um úr plasti í pappír en segir að auð-
veldara sé að fá umbúðir úr plasti.
„Ég veit samt ekki hvað það verð-
ur auðvelt lengi, ætli menn þurfi
ekki að fara að skipuleggja sig lengra
fram í tímann og kannski fara að
huga að því að panta jafnvel rúllu-
plast fyrir næsta vor,“ segir Gunn-
ar og bendir á að rúlluplast panti
flestir yfirleitt í janúar eða febrúar.
Bændasamtökin gefa út Bænda-
blaðið og segir Gunnar að í blaða-
útgáfunni sé einnig farið að bera á
pappírsskorti.
„Við höfum fengið beiðni frá
prentsmiðjunni um áætlun um
stærð blaðanna fram að áramótum
svo þeir geti verið vissir um að eiga
pappír í blaðið.“ n
gar@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Greitt var fyrir
fimmfalt fleiri gistinætur hér á landi
í september í ár en í sama mánuði í
fyrra, samkvæmt Hagstofunni.
Viðspyrnan er mismikil eftir
þjónustustigi. Gistinætur sexföld-
uðust á hótelum en fjórfölduðust á
gistiheimilum og öðrum tegundum
skráðra gististaða, svo sem í orlofs-
húsum og á tjaldsvæðum.
Skýringin er rakin til þess að efn-
aðri ferðamenn heimsóttu landið á
nýliðnu sumri en jafnan og völdu
hótel umfram aðra gistikosti. n
Gistinætur hér
margfalt fleiri í ár
ser@frettabladid.is
STÓRIÐJA Verðmæti útfluttra iðnað-
arvara jókst um 11,7 milljarða króna
í september samanborið við í fyrra,
eða sem nemur um 46 prósentum.
Hagstofan segir að mestu muni
um aukið útflutningsverðmæti áls.
Vegna hrávöruskorts á heimsmark-
aði hafi verð á áli rokið upp.
Almennt jókst verðmæti vöruút-
flutnings sem nemur um 10 prósent-
um. Verðmæti útfluttra sjávarafurða
minnkaði þó um 17 prósent. Vegur
þar þyngst verðlækkun á ferskum
fiski og frystum heilum fiski. n
Útflutningstekjur
af áli rjúka upp
Erlendir ferðamaður á Íslandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
6 Fréttir 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ