Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 10
Hugmyndir okkar sem
vorum ung á þessum
tíma gengu út á frjáls-
lyndi og framfarir.
Eiríkur Berg-
mann, prófessor í
stjórnmálafræði
Alþjóðlegar stórkrísur hafa
getið af sér pólitíska öfga-
flokka en þeim verður helst
að falli að meginstraums-
flokkar taka upp stefnu þeirra
og gera að sinni. Um þetta
er fjallað í bókinni Þjóðar-
ávarpið.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Meginstraumsstjórn-
málaflokkar víða um heim hafa á
síðustu árum tekið upp stefnu popúl-
ískra nýþjóðernisflokka af jaðrinum
og í rauninni stolið af þeim glæpnum.
Þetta er ein af megin ályktunum
Eiríks Bergmann, prófessors í stjórn-
málafræði, í bókinni Þjóðarávarpið
sem kom út í gær. Í bókinni rekur
Eiríkur sögu þjóðernispopúlista í
hálfa öld.
„Ég lít á þetta að einhverju leyti
sem varnarrit fyrir hið frjálslynda
lýðræði. Mér finnst frjálslynt lýðræði
Vesturlandanna vera fyrirbæri sem
er einhvers virði að halda í, en undan
því hefur verið grafið og það er vel
hægt að sjá fyrir sér að það molni úr
því,“ segir Eiríkur.
Um aðdraganda þessa verkefnis
segir hann: „Ég var tvítugur þegar
Berlínarmúrinn féll árið 1989 og
hugmyndir okkar sem vorum ung á
þessum tíma gengu út á frjálslyndi,
framfarir og opnun og maður horfði
fram á að landamæri myndu smám
saman mást út í komandi fram-
tíð. Þannig að fyrirheit ársins 1989
voru um einhverja slíka sammann-
lega framtíð,“ segir Eiríkur. Svo hafi
Vesturlönd og heimurinn smám
saman sveigst af þessari leið og aftur
til íhaldssemi í aukinni aðgreiningu
milli þjóða og landsvæða og í ástand
sem er mjög langt frá þeirri sýn sem
Eiríkur deildi með jafnöldrum sínum
á fall járntjaldsins.
Í bókinni greinir Eiríkur útbreiðslu
þjóðernishyggju eftirstríðsáranna,
sem hefur aukna popúlíska vídd, og
skoðar muninn á henni og þjóðernis-
hyggjunni sem var við lýði fyrir stríð.
„Þegar maður skoðar þetta svona
verður nokkuð augljóst að það eru
stórir atburðir og yfirleitt krísur sem
færa pólitík af þessum toga áfram,“
segir hann.
„Eftir seinni heimsstyrjöldina var
þjóðernishyggja algerlega útskúfuð
og verður í rauninni forbönnuð í vest-
Glæpnum stolið
af nýþjóðernissinnum
2012-2013: Enn hertist á múslimaandúð með auknum flóttamannastraumi
eftir arabíska vorið og útlendingaandúðin varð megn. Orðræðan varð ljótari
en áður og flóttafólki jafnvel líkt við hjarðir villidýra í fjölmiðlum.
2008: Þjóðernispólitík sem áður var á jaðri vestrænna
samfélaga færist inn á miðju í kjölfar efnahagshrunsins.
2001: Í kjölfar falls Tvíburaturnanna í New York færist
múslimaandúð inn í meginstraum stjórnmálanna.
1989: Andúð á verkafólki rís í vestri og valdboðsflokkar
koma fram í austri á árunum eftir fall Berlínarmúrsins.
1972: Í kjölfar olíukrísu, skora þjóðernispop úl ískir áskorendaflokkar á hólm það samráðskerfi sem hafði komist á
eftir seinni heimsstyrjöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
2019-2021: Þjóðernispopúlistar reyna að tengja faraldurinn við fólk af
framandi uppruna. Þrengt er að borgararéttindum víða. Hnattrænt flóð
samsæriskenninga og falsfrétta gerir heilbrigðisyfirvöldum erfitt fyrir.
rænum þjóðfélögum,“ segir Eiríkur en
rekur svo hvernig hver krísan á fætur
annarri dregur fram nýja þjóðernis-
popúlíska flokka sem skora ríkjandi
öfl á hólm. Upp úr krísunum komi
fram „algerar jaðarfígúrur, fólk sem
talið er algerlega óboðlegt í siðaðri
stjórnmálaumræðu, eins og Jean-
Marie Le Pen í Frakklandi og Mogens
Glistrup í Danmörku.
Þetta voru svona náungar sem
gerðu aldrei kröfur um að vera við-
teknir eða samþykktir. Þeir voru
jaðarmenn sem ætluðu að berja
á kerfinu utan frá. Svo sjáum við
hvernig pólitík sem áður var algerlega
forboðin verður smám saman viður-
kennd eins og gerist í þessum bylgju-
hreyfingum.“ Með þessum hætti hafi
hin hefðbundnu stjórnmálaöfl í raun
stolið glæpnum.
„Þetta má kalla fullnaðarsigur
Danska þjóðarflokksins, þegar Sósí-
aldemókratar, af öllum stjórnmála-
flokkum, tóku upp stefnu Danska
þjóðarflokksins eins og hún lagði sig
í málefnum innflytjenda og útlend-
ingamálum. Þannig náðu Sósíal-
demókratarnir völdum á nýjan leik.
Danski þjóðarflokkurinn tapaði hins
vegar sínu fylgi. Ekki vegna þess að
pólitík hans hafi verið hafnað heldur
þvert á móti vegna þess að pólitík
hans sigraði.“
Sömu sögu megi segja af þróuninni
í Bretlandi þar sem nýfrjálshyggjan
færðist af jaðrinum yfir á miðjuna í
þremur skrefum. „Fyrst er það Breski
þjóðernisflokkurinn BNP, sem var
einhvers konar bullhreyfing snoðin-
kolla sem náðu fylgi fyrir um þrjátíu
árum. Þeir kölluðu sig nýnasista og
voru útbíaðir í nýnasistatáknum,“
segir Eiríkur og bætir við: „Svo kemur
UKIP og étur upp fylgi BNP. Öllum
nasistatáknum er útrýmt og orð-
ræðan færð í það sem er ásættanlegt
og viðtekið hjá Nigel Farage, sem er
bara gamall kaupsýslumaður í jakka-
fötum. Hann er samt svona áskorandi
af jaðri sem þykir ekki boðlegur í
fínni stássstofum Breta.“
Svo nær Brexitstefna UKIP flugi.
„Þá gerist það að Íhaldsflokkurinn
tekur yfir Brexitstefnu UKIP og í
rauninni étur flokkinn upp til agna
og fylgi UKIP fellur. Aftur er það ekki
vegna þess að pólitík hans er hafnað
heldur þvert á móti vegna þess að
breski Íhaldsflokkurinn, sjálft esta-
blismentið í Bretlandi, tekur yfir þá
stefnu UKIP sem áður var talin á jaðri
hins boðlega.“
Þessi dæmi og fleiri varpa, að mati
Eiríks, ljósi á að það sem talið var
óásættanlegt og forboðið verður ekki
bara samþykkt og viðtekið heldur
verður jafnvel að grundvelli stjórn-
málanna 50 árum síðar.
Þótt þessi saga gefi ekki tilefni til
bjartsýni segist Eiríkur frekar vera
bjartsýnismegin fyrir hönd lýð-
ræðisins. Það geti gengið í einhvers
konar endurnýjun lífdaga. „En það
hefur kannski verið vandamálið að
lýðræðiskerfi Vesturlanda hafa ekki
fengið að þróast með eðlilegum hætti.
Það getur hins vegar, með nýsköpun í
lýðræðisháttum, gengið í endurnýjun
lífdaga og blómstrað og dafnað. Það
stendur upp á okkur sem erum á vell-
inum núna í dag að fjalla um þetta
og skoða þetta og sýna annars vegar
fram á hættuna sem að því steðjar
en líka að benda á einhverjar leiðir
áfram.“ n
10 Fréttir 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ