Fréttablaðið - 30.10.2021, Qupperneq 12
Viltu losna við gamla bílinn?
Við borgum þér fyrir hann eða hjálpum
þér við að selja hann.
Kynntu þér kosti langtímaleigu á
sixtlangtímaleiga.is – hafðu samband
við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222
eða á vidskiptastjori@sixt.is
Jeep Compass S 4XE Plugin Hybrid:
129.600 kr. mán.
Innifalið í langtímaleigu:
Þjónustuskoðanir
Tryggingar og gjöld
Hefðbundið viðhald
Dekk og dekkjaskipti sixtlangtímaleiga.is
Langtímaleiga
á hærra plani
Antonio Guterres, aðalfram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, segir nauðsynlegt
að draga úr losun um 45 pró-
sent miðað við 2010 í ákalli
sínu til allra þjóðarleiðtoga.
elinhirst@frettabladid.is
LOFTSLAGSMÁL Antonio Guterres,
aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, segir í aðsendri grein á
vef Fréttablaðsins, frettabladid.is,
að núverandi fyrirheit þjóða heims
í loftslagsmálum séu ekki nóg og að
allt stefni í ógnvænlega hitaaukn-
ingu í heiminum, langt umfram
markmið Parísarsamningsins.
Grein aðalframkvæmdastjórans
birtist á sama tíma í fjölmiðlum
víða um heim og er hún í raun ákall
til þjóðarleiðtoga og jarðarbúa
allra um að taka höndum saman í
baráttunni við loftslagsvána.
Framk væmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna fer hörðum orðum
um stöðuna og segir að mann-
legur harmleikur sé í augsýn, ef
ríkisstjórnir, sérstaklega þær í
G20-hópnum, standi ekki undir
nafni og taki að sér forystu. Annars
stefni óðfluga í miklar mannlegar
þjáningar.
„Tími diplómatísks kurteisishjals
er liðinn,“ segir Guterres.
Alþjóðleg loftslagsráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna, COP26, hefst á
morgun í Glasgow, en ráðstefnan
hefur verið kölluð ein sú mikilvæg-
asta í sögu mannkyns. Ráðstefnan
stendur í tvær vikur.
Í greininni segir Guterres: „Það
er sannarlega hægt að ná því marki
að hlýnun fari ekki yfir 1,5 gráður
á Celsius, en þá verði að draga úr
losun í heiminum um 45 prósent
miðað við 2010 á þessum áratug.“
Guterres segir enn fremur að
háværar hringingar viðvörunar-
bjalla í nýjustu skýrslu Sameinuðu
þjóðanna færi okkur heim sanninn
um að aðgerðir ríkisstjórna heims-
ins nægi ekki til að mæta vand-
anum. Því beri hins vegar að fagna
að nýjar yfirlýsingar hafi komið um
loftslagsaðgerðir sem skipti máli.
Um 50 manna sendinefnd fer
frá Íslandi á ráðstefnuna, þar á
meðal 20 fyrir hönd Stjórnarráðs-
ins. Þrír íslenskir ráðherrar sækja
COP26: Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra, Guðmundur Ingi
Tími diplómatísks kurteisishjals úti
ser@frettabladid.is
DÝRAVERND Evrópuþingið í Strass-
borg hefur bannað dýrahald í
búrum. Tekur bannið gildi í áföng-
um á næstu misserum. Alls greiddu
82 prósent þingmanna atkvæði með
banninu.
Þingmálið var fyrst á dagskrá
2018 og hefur æ síðan gengið undir
heitinu Endalok búr-aldarinnar (e.
End the Cage Age). Undanfari þess
var áralöng barátta margra dýra-
verndarsamtaka fyrir bættum hag
húsdýra.
Í greinargerð er tekið fram að Evr-
ópusambandinu beri ekki aðeins að
berjast fyrir mannréttindum heldur
og velferð dýra. „Engin dýr eiga að
þurfa að þola illa vist í þröngum
búrum til þess eins að búa til ódýr-
ari landbúnaðarvörur,“ segir þar.
Talið er að um 300 milljónir
dýra hafi að jafnaði verið í búrum
í evrópskum landbúnaði á síðustu
áratugum, allt frá fyrstu vikum lífs
síns til slátrunar. Nú þegar bænd-
um verður gert að leysa þau smám
saman úr álögum fá þeir styrki til að
laga bú sín að breyttum veruleika.
Búrabannið veldur ekki aðeins
straumhvörfum í evrópsku dýra-
haldi heldur mun Evrópusam-
bandið girða fyrir innf lutning á
kjöti dýra frá öðrum álfum sem alin
hafa verið upp og haldin í búrum. n
Evrópuþingið bannar dýrahald í búrum
Ferðamennina vantar til að kaupa
gauksklukkurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
kristinnpall@frettabladid.is
ÞÝSK ALAND Í nýrri skýrslu frá
Þýskalandi kemur fram að það hafi
verið 54 prósenta samdráttur á milli
ára í framleiðslu á gauksklukkum í
landinu á síðasta ári. Rúmlega tutt-
ugu þúsund gauksklukkur voru
framleiddar í Wiesbaden í fyrra með
áætlað markaðsvirði upp á 4,1 millj-
ón evra en árið áður voru um 43.600
slíkar klukkur framleiddar.
Í niðurstöðu skýrslunnar kemur
fram að það sé ekki skortur á klukk-
unum í verslunum enda hafi eftir-
spurnin eftir þeim hrunið á síðasta
ári með fækkun ferðamanna vegna
áhrifa heimsfaraldursins. Með
minni eftirspurn, færri vinnustund-
um og hækkandi verði á timbri sem
þarf til framleiðslu á gauksklukkum
hafi framleiðslan minnkað. n
Gauksklukkusala
dregist saman
arib@frettabladid.is
TÆKNI Móðurfélag Facebook hefur
skipt um nafn og heitir nú Meta.
Samfélagsmiðillinn heldur nafni
sínu. Meta er vísun í nýjan sýndar-
veruleika sem hefur verið í þróun hjá
fyrirtækinu síðustu ár.
Til stendur að ráða mörg þúsund
manns í vinnu í Evrópu til að þróa
sýndarveruleikann. Notast verður
við sérstakan höfuðbúnað til að geta
átt í samskiptum í gegnum netið,
unnið og spilað leiki. n
Facebook veðjar á
sýndarveruleika
Leiðtogarnir verða að
vinna verk sitt í Glas-
gow, áður en það er of
seint.
Antonio Gut
erres, aðalfram
kvæmdastjóri
Sameinuðu
þjóðanna
Frá eins árs
afmæli mót
mælaaðgerða
íslenskra ung
menna gegn
loftslagsvánni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Guðbrandsson, umhverfis- og auð-
lindaráðherra, og Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra.
En eins og nú standi sé útlit fyrir
ógnvænlega hitaaukningu í heim-
inum eða um rúmlega 2 gráður.
„Þetta er langt umfram 1,5 gráðu
á Celsius-markmiðið sem ákveðið
var í Parísarsamningnum. Það voru
þau sársaukamörk sem vísinda-
menn höfðu reiknað út sem einu
færu leiðina fyrir heim okkar. Leið-
togarnir verða að vinna verk sitt í
Glasgow, áður en það er of seint,“
segir aðalframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna í ákalli til leiðtoga
heims fyrir loftslagsráðstefnuna
COP26 sem hefst í Glasgow í Skot-
landi á morgun.n
Aðbúnaður dýra er víða bágborinn,
til dæmis hjá þessari hænu í Detriot.
12 Fréttir 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ