Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 22
Fáir eiga
annan eins
sess í
hjörtum
Íslendinga
og Guð
mundur
Felix sem í
átta ár beið
handa
ágræðslu í
Lyon.
Sýningin er ekki við
allra sálna hæfi heldur
stranglega bönnuð
börnum undir átján
ára enda við öllu að
búast á þessum kyn
þokkafulla hryllings
kabarett.
Tugir íslenskra stjórnmála- og
embættismanna f lykkjast nú til
Glasgow á loftslagsráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna til fundar við
kollega sína sem margir hverjir
eru langt að komnir og sumir
hverjir á einkaþotum, ef marka
má reynsluna. Ætli einhver hafi
reiknað út kolefnisspor loftslags-
ráðstefnunnar og hve mörg tré þarf
að gróðursetja til að kolefnisjafna
hana?
Í byrjun næstu viku verður svo
þing Norðurlandaráðs haldið í
Kaupmannahöfn. Þar koma saman
stórar sendinefndir frá öllum
Norðurlöndunum í glaum og gleði
í næstum heila vinnuviku.
Stjórnmála- og embættismanna-
stéttin, sem fyrir Covid fór jafnan
á minnst einn til tvo fundi erlendis
í hverjum mánuði, er nú eins og
kýrnar á vorin og ræður sér hreint
ekki fyrir kæti. Eftir næstum tvö
ár í fjötrum fjarfunda og símtóla
er tilveran að verða eðlileg á ný.
Aftur er hægt að versla í útlönd-
um í stað þess að panta á netinu
eða borga íslenskt verð. Aftur er
hægt að komast í fríhöfnina. En
vitanlega snýst þetta ekki um fríð-
indi heldur embættisskyldur og
þýðingarmikla fundi. Einhverjir
verða að fórna sér í þetta fyrir
okkur hin.
En hver hefur veitt þessu fólki
umboð til að þyrpast á loftslags-
ráðstefnu og Norðurlandaráðs-
þing? Hér situr starfsstjórn og
Hefði ekki
verið hægt
að sýna
gott for
dæmi?
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Eins og kýrnar á vorin
Alþingi hefur ekki komið saman
eftir kosningar og getur raunar ekki
komið saman þar sem óvissa ríkir
um hvort það sé löglega kjörið.
Orkar það ekki líka tvímælis að
Sameinuðu þjóðirnar skuli smala
saman þúsundum manna á risa-
ráðstefnu, og það um loftslagsmál,
nú þegar Covid hefur sýnt okkur að
f lestir geta unnið meira heima og
sinnt fundasetum í gegnum tölvu?
Hefði ekki verið hægt að sýna gott
fordæmi? n
Búrlesk-hópurinn Dömur og
herra stendur fyrir fullorðins-
kabarett í hrekkjavökuanda
í Þjóðleikhúskjallaranum í
kvöld, laugardagskvöld.
bjork@frettabladid.is
Hrekkjavakan hefur haslað sér völl
hér á landi, sjálfur dagurinn er á
morgun, en fjölmargir fagna honum
alla helgina og er búrlesk-hópurinn
Dömur og herra þar fremstur á
meðal jafningja með fullorðins-
kabarett þar sem allt getur gerst.
Aðstandendur lofa djöflum, upp-
vakningum og ósóma í bland við
dónaskap, grasker og grín. „Fram
koma kynósa köngulær, daður-
sjúkir draugar, banhungraðar blóð-
sugur, hugljúfir hamskiptingar, sexí
slöngur og jafnsexí slöngutemjarar
auk fjölda annarra yfirnáttúrulegra
ofurvera og ógeðslistamanna sem
fagna sér og öðrum af kæti og list.
Sérstakur gestur er Íslandsvinurinn
og hryllingstrúðurinn geðþekki
Jelly boy the Clown,“ segir drag-
drottningin Gógó Starr sem jafn-
framt er kynnir kvöldsins.
Ekki skylda að mæta í búningi
„Íslendingar eru heldur betur búnir
að kveikja á hrekkjavökunni og við
vitum að margir gestir ætla að mæta
í búningi, en það er alls ekki skylda!“
Hvað ætlar Gógó sjálf að gera á
sýningunni?
„Það kemur í ljós. Það verður sexí
og hræðilegt. Hræðilega sexí allt
saman. Það er rosalega gaman að
blanda saman búrlesk-glamúrnum
og svo þessum draugagangi. Þetta er
fjórða hrekkjavökusýning hópsins
og alltaf mikil tilhlökkun.
Sýningin er ekki við allra sálna
hæfi heldur stranglega bönnuð
börnum undir átján ára enda við
öllu að búast á þessum kynþokka-
fulla hryllingskabarett,“ segir hún
og hvetur alla til að koma og láta sér
bregða í nýuppgerðum og endur-
bættum Þjóðleikhúskjallara.
Sýningin fer fram í Þjóðleikhús-
kjallaranum í kvöld, 30. október,
klukkan 21 og miðar eru fáanlegir
á tix.is. n
Djöflar og dónaskapur
Búrlesk-hópurinn Dömur og herra hefur haslað sér völl á Íslandi með lostafullum og lífsglöðum fjölbragðasýningum
og er íslenskukunnátta ekki skilyrði fyrir því að skemmta sér á sýningunum. MYNDIR/AÐSENDAR
Sýningin fer fram í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, laugardag, og hefst kl. 21.
Hópurinn lofar graskerjum og gríni.
Gógó Starr,
kynnir sýningar-
innar lofar kyn-
þokkafullum
hryllings-
kabarett.
Við mælum með
BJORK@FRETTABLADID.IS
Það er ekkert óeðlilegt við það að
fólk sem missir allt harki það bara
ekki af sér og láti sem ekkert hafi
í skorist, það er bara ekki þannig,“
segir Guðmundur Felix Grétarsson
meðal annars í viðtali í þessu tölublaði. Guð-
mundur, sem lenti í skelfilegu vinnuslysi árið
1998, leiddist út í neyslu um tíma eftir slysið
en hefur nú verið virkur í AA-samtökunum í
tæpa tvo áratugi.
Fáir eiga annan eins sess í hjörtum Íslend-
inga og Guðmundur Felix, sem í átta ár beið
handaágræðslu í Lyon í Frakklandi. Hand-
langarinn sem nú er orðinn handhafi hefur
vakið aðdáun fyrir æðruleysi og léttleika í
aðstæðum sem sannarlega væru mörgum
ofviða. Sjálfur segir Guðmundur þetta snúast
um ákvörðun: „Maður þykir raunsær ef maður
horfir á slæmu hliðarnar, en það eru alltaf
þessar tvær hliðar,“ segir hann í viðtalinu.
„Við höfum alltaf val,“ segir hann og lýsir því
að hann hafi einfaldlega tekið ákvörðun um
að leita að því góða í öllum kringumstæðum.
Þetta snýst nefnilega ansi oft um það og það
veit maðurinn sem missti allt í blóma lífsins. n
Við höfum alltaf val
Níu lífum Bubba
Er nokkuð búið að mæla nóg með
sýningunni Níu líf í Borgarleik-
húsinu? Kraftur, orka, einlægni
og hreinskilni eru orð sem koma í
huga eftir rússíbanareið um líf eins
ástkærasta tónlistarmanns þjóðar-
innar, Bubba Morthens. Og svo tón-
listin, þvílík tónlist!
Veitingastaðnum Selva
Latín veitingastaðurinn og barinn
Selva á Laugavegi er svo sannarlega
ferskt innlegg í f lóru miðbæjarins.
Kokteilarnir og kræsingarnar eru
í mið- og suður-amerískum anda.
Rommaðdáendur ættu að verða
ánægðir með úrvalið. Rækjurnar
eru ljúffengar og bornar fram eins og
listaverk. Og síðast en ekki síst ætti
quesadillað engan að svíkja – hvort
sem er í kjöt- eða veganútfærslu! n
22 Helgin 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
30. október 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ