Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 24

Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 24
Ég hitti tvo þeirra um daginn og sýndi þeim fingurna hreyfast. Þeir skríktu bara eins og smá- strákar, tóku upp símana og tóku mynd- bönd, fannst þetta alveg frábært. Ég var pabbi og rafveitu- virki og með allt mitt á hreinu og svo allt í einu hafði ég ekkert og hver er ég þá? Allt frá því hræðilegt slys umturnaði lífi Guðmundar Felix Grétarssonar árið 1998 hefur hann dreymt um að verða heill á ný. Fyrir níu mánuðum rættist sá draumur þegar hann varð fyrstur manna til að fá á sig grædda handleggi og axlir í hálfs sólarhrings langri aðgerð. Við Guðmundur tölum saman í gegnum sam- skiptaforritið Zoom sem þjóðin hefur lært að nýta sér í heims- faraldri. Blaðamaður í eldhúsi sínu í Vesturbænum og Guðmundur á sjúkrahúsi í Lyon. „Ég er hér alla virka daga frá klukkan níu til svona hálf fjögur í endurhæfingu,“ segir Guðmundur sem lítur á daglegar sjúkrahúss- heimsóknirnar sem sinn vinnudag. „Þetta er voða þægilegt system, að vakna á morgnana og fara eitthvert, vera í rútínu. Maður kann að meta helgarnar betur núna,“ segir Guð- mundur sem viðurkennir að æfing- arnar taki á en segir þær þó venjast. „Æfingarnar ganga út á sjúkra- og iðjuþjálfun og svo er hér líkamsrækt líka. Á vöðvana eru einnig notuð rafskaut til að örva þá svo þeir rýrni hægar,“ segir hann æðrulaus og bætir við að hann bara mæti og geri það sem honum sé sagt. Horfði á fingurna allan daginn Níu mánuðir eru liðnir frá aðgerð- inni og birti Guðmundur um miðjan mánuð myndband af sér á samfélagsmiðlum þar sem hann lyftir hægri hendi og hreyfir fingur, nokkuð sem ekki var búist við að gerðist svo f ljótt. Talið var að það tæki heilt ár fyrir hann að geta hreyft olnbogann og um tvö ár að fá mögulega tilfinningu í fingurna. En ferlið er margbreytilegt og fingurnir sem Guðmundur hefur notið að geta hreyft undanfarnar vikur láta nú ekki eins vel að stjórn. Þótt hann sakni þess að dáðst að þeim hreyfast er ástæða þess að hann getur síður stjórnað þeim eins og er tilkomin af góðu. „Það eru vöðvar á innanverðum upphandleggnum og þar eru tvær sinar sem toga í þessa þrjá fingur sem ég var farinn að geta hreyft. Þessir vöðvar fóru að virka svo ég fór fyrst að geta hreyft vísifingur og núna vísifingur, baugfingur og löngutöng. En svo þegar virkni vöðva eykst, þeir og sinarnar strekkjast, leitar höndin nú í að vera meira svona,“ segir hann og sýnir bogna fingurna. „Það er svolítið spælandi því ég gat setið allan daginn og horft á puttana hreyfast. En um leið og vöðvar aftan á upphandleggnum sem rétta úr fingrunum fara að virka, fer ég aftur að geta rétt úr þeim og beygt þá. Á meðan það er að koma inn einn og einn vöðvi gerist þetta svona.“ Það er augljóst að þessar framfar- ir hafa glatt handhafann Guðmund en að þessari tímamótaaðgerð komu um 50 læknar, hvað ætli þeim finnist um stöðuna? „Það eru þrír læknar yfir þessu 50 manna teymi. Ég hitti tvo þeirra um daginn og sýndi þeim fingurna hreyfast. Þeir skríktu bara eins og smástrákar, tóku upp símana og tóku myndbönd, fannst þetta alveg frábært.“ Læknunum er eðli málsins létt að vel gangi enda mikið undir hjá þeim. Ég hef ekki alltaf verið til fyrirmyndar Guðmundur Felix er farinn að geta lyft hægri hendi og hreyft þrjá fingur aðeins níu mánuðum eftir aðgerð, töluvert fyrr en björtustu vonir stóðu til. MYND/BENEDIKT SNÆR Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is  „Þegar farið er í svona lagað, þar sem mikil óvissa fylgir, getur það orðið rosalega gott fyrir ferilskrá þeirra en ef illa hefði farið hefði það alveg öfug áhrif og gæti alveg eyðilagt trúverðugleika þeirra. Þeir taka allir áhættu með mannorð sitt með þessu og eru því eðlilega ánægðir að sjá árangurinn.“ Var fullkominn kandídat Þessari stóru og flóknu aðgerð fylgir löng endurhæfing auk þess sem Guðmundur þarf að vera á ónæmis- bælandi lyfjum það sem eftir er, til að koma í veg fyrir að líkaminn hafni höndunum. Lyfjunum fylgja ýmiss konar aukaverkanir og eru ótal dæmi um að fólk þoli þau illa eða alls ekki. Sjálfur hefur Guð- mundur verið á ónæmisbælandi lyfjum frá því að hann fór í lifrar- skipti fyrir nítján árum. „Þá var ég settur á þessi lyf svo ég hafnaði ekki lifrinni og það er í raun ástæðan fyrir því að ég fæ að fara í þessa aðgerð. Það hefði verið erfitt að réttlæta það að setja einhvern á þessi lyf án þess að vera að bjarga lífi hans. En þar sem ég var á þeim fyrir var ég fullkominn kandídat.“ Guðmundur rifjar upp að þegar hann var í rannsóknum á sjúkra- húsinu í Lyon árið 2011 hitti hann konu sem hafði fengið tvær hendur ágræddar við miðja upphandleggi og aðgerðin gengið mjög vel. „Maður þurfti að skoða vel til að finna örin þar sem hún sat og lék sér í tölvuspili í símanum sínum. Hend- urnar virkuðu alveg rosalega vel. En hún er búin að láta taka þær af – því lyfin fóru svo illa í hana.“ Sjálfur segist Guðmundur þola lyfin nokkuð vel þó að þau geri það að verkum að hann þurfi aukreitis að taka bæði blóðþrýstings- og bak- flæðislyf. „Að öðru leyti slepp ég nokkuð vel. Maður hefur reyndar ekki alveg sömu orkuna og úthaldið, maður eldist aðeins fyrr og kannski lifir ekki alveg jafn lengi en að öðru leyti trufla þau mig ekki í daglegu lífi.“ Kvíðinn og spenntur Í dag, laugardag, kemur saga Guð- mundar út í bókinni 11.000 volt sem Erla Hlynsdóttir skrásetti. Guð- mundur segir tilfinninguna sérstaka þó að hann hafi sagt sögu sína oft og víða, enda sé í bókinni farið nánar í smáatriði. „Maður er bæði kvíðinn og spenntur. Ég tók þann pólinn í hæðina að vera ekki að velja bara þá hluta sögunnar sem láta mig líta vel út. Það gefur ekki rétta mynd af stöðunni. Ég hef ekki alltaf verið til fyrirmyndar,“ segir hann einlægur. Guðmundur var 26 ára rafveitu- virki og fjölskyldumaður með fjög- urra ára og þriggja mánaða gamlar dætur, þegar hann lenti í slysinu árið 1998. Guðmundur, sem þá starfaði fyrir Rafveitu Reykjavíkur, vann við viðgerð á háspennulínu við Hafra- vatn þegar hann fyrir misskilning snerti línu sem ekki hafði verið tek- inn straumur af. Hann féll átta metra niður úr staurnum, hryggbrotnaði á þremur stöðum, brákaðist í háls- liðum, rifbein losnuðu frá hryggjar- súlunni og það kviknaði í hand- leggjum hans. Guðmundur komst fyrst til meðvitundar tæpum þremur mánuðum síðar, lá á sjúkrahúsi í um átta mánuði þar til við tók fjórtán mánaða endurhæfing á Reykjalundi. Leiddist út í neyslu „Það er ekkert óeðlilegt við það að fólk sem missir allt harki það bara ekki af sér og láti sem ekkert hafi í skorist, það er bara ekki þannig,“ segir Guðmundur sem leiddist út í neyslu um tíma en hefur nú verið virkur í AA-samtökunum í tæpa tvo áratugi. „Fyrstu tvö árin var ég bara á spítala og neyslan byrjaði aðeins þar í takt við það þegar verið var að minnka önnur lyf. En þetta var auðvitað svolítið verndað umhverfi á spítala þar sem maður hafði allt til alls. Það er þegar ég útskrifast af Reykjalundi og fer heim sem hlut- irnir virkilega fara til helvítis.“ Guðmundur útskrifaðist árið 1999 og segir tímabilið til 2001 hafa reynst honum virkilega erfitt. 24 Helgin 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.