Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 30
Steinunn Ólína Þorsteinsdótt-
ir leikkona er farin á fullt í
leiklist og sjónvarp eftir langt
hlé og nýtur þess til fulls. Hún
segir konur hafa sterkari rödd
í listaheiminum nú en áður.
Sjálf er hún ástfangin og tekur
sjálfa sig ekki of alvarlega.
Ég er bara hægt og rólega
að ná vopnum mínum og
nú er ég fastráðin í Þjóð-
leikhúsinu eftir að hafa
verið verkefnaráðin þar
undanfarin ár og ég er hæstánægð
með það,“ segir Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir leikkona.
Steinunn Ólína lék f y rst í
atvinnuleikhúsi aðeins fimmtán
ára gömul. Þá fór hún með hlutverk
í söngleiknum Land míns föður hjá
Leikfélagi Reykjavíkur. Hún útskrif-
aðist svo úr leiklistarskóla í London
tvítug að aldri.
Steinunn tók sér langt hlé frá leik-
húsinu og hefur unnið hin ýmsu
störf síðan. Hún hefur starfað sem
blaðamaður, ritstjóri og grænmetis-
bóndi svo fátt eitt sé nefnt. Nú er
hún komin aftur í leiklistina og
segist njóta þess.
„Leikhúsið er magnaður vinnu-
staður en alls ekki fyrir viðkvæma.
Þegar best lætur er leikarastarfið
heilandi áskorun, því í leiknum fær
maður kærkomna hvíld frá sjálfum
sér. Það er stórkostlega ofmetið að
vera maður sjálfur,“ segir Steinunn,
sem um þessar mundir stjórnar sjón-
varpsþættinum Stóra sviðið á Stöð 2.
Hún fer einnig með stórt hlutverk í
kvikmyndinni Leynilöggu sem nú er
í sýningu í kvikmyndahúsum.
Leynilöggan
„Leynilöggan var framleidd við afar
sérstakar aðstæður. Í fyrsta lagi var
tökutíminn stuttur en öll myndin
var tekin upp á 20 dögum. Í öðru
lagi vorum við eins og aðrir að glíma
við Covid-takmarkanir þannig að
það er eiginlega kraftaverk að við
skyldum ná að koma bíómyndinni
heim og saman á þessum tíma.“
Auðunn Blöndal fer með aðal-
hlutverk í myndinni en á skjánum
má einnig meðal annarra sjá Egil
Einarsson, Sverri Þór Sverrisson
(Sveppa) og Steinþór Hróar Stein-
þórsson (Steinda Jr.). Hannes Þór
Halldórsson, fyrrverandi mark-
vörður íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu, leikstýrir myndinni.
„Hannes er mjög agaður leikstjóri,
eiginleiki sem hann hefur ef laust
úr fótboltanum og skýra sýn. Hann
og þessir herramenn allir sem að
myndinni standa eru aldir upp á
amerískum hasarmyndum og vissu
algjörlega upp á tíu hvað þeir vildu
búa til og mér finnst þeim hafa tek-
ist ætlunarverk sitt.“
Steinunn segir Leynilögguna á
vissan hátt spegla hasarmyndir
níunda áratugarins. Teygt sé á klisj-
um í bland við húmor og „mann-
eskjulegheit“ sem verði trúverðug
í undarlegum heimi myndarinnar.
„Það má líka benda á að í lang-
flestum amerískum hasarmyndum
eru konur persónuleikalaus fylgi-
tungl sem eru rétt til staðar til að ýta
undir mikilfengleik hasarmynda-
stjörnunnar. Í Leynilöggunni eru
öll kvenhlutverkin þýðingarmikil
og allar hafa þær eitthvað til síns
máls. Það er ánægjulegt og alls ekk-
ert sjálfsagt.“
Aðspurð að því hvernig sam-
starfið við Audda, Sveppa, Steinda
og Egil hafi gengið segir Steinunn
Ólína það bæði hafa gengið vel og
verið skemmtilegt. ,,Ég hef eins og
alþjóð fylgst með þeim öllum án
þess að leiðir okkar hafi legið saman
áður. Þetta eru af burðamenn allir
sem einn og þótt við höfum ekki
starfað í sömu verkefnum áður þá er
afstaða okkar til sköpunar ekki ólík
við nánari kynni,“ segir hún.
,,Ég hef aldrei tekið sjálfa mig sér-
staklega alvarlega, sem ég tel minn
mesta kost, og það gera þeir ekki
heldur. Þeir eru óhræddir við að
Aldrei tekið sjálfa sig
sérstaklega alvarlega
Steinunn Ólína
segir leikhúsið
magnaðan
vinnustað sem
sé þó alls ekki
fyrir viðkvæma.
Hún nýtur þess
að vera komin
aftur í leik-
listina og segir
að í leiknum fái
menn kær-
komna hvíld frá
sjálfum sér.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Steinunn Ólína fer með hlutverk lögreglustjórans Þorgerðar í hasarmyndinni
Leynilöggunni sem nú er í sýningu í kvikmyndahúsum landsins. MYND/AÐSEND
taka sénsa og gera sig að fíf lum, ég
kann að meta það,“ bætir Steinunn
við.
„Þetta eru fullorðnir menn sem
skilja mikilvægi þess að leika sér og
fíflast, það sem er mannsandanum
lífsnauðsynlegt. Ég hef sagt áður að
þeir séu frjálsir andar, þeir burðast
ekki með þá íþyngjandi sjálfsmynd
að vera „listamenn“ en eru engu að
síður býsna merkilegir listamenn
hver á sinn hátt.“
#Metoo
Steinunn Ólína er óhrædd við að
viðra skoðanir sínar og það hefur
hún meðal annars gert í tengslum
við #metoo. Hún hefur starfað lengi
í leikhúsheiminum á Íslandi og segir
að sér vitanlega hafi vel verið tekið
á ágreiningsmálum innan leikhúss-
ins, nema kannski í kjölfar #metoo.
„Allt í einu var eins og sumir
stjórnendur vissu ekki lengur hvert
hlutverk þeirra væri eða hvaða
háværa kór þeir ættu að hlýða. Mér
finnst stórkostlega orðum aukið að
innan listabransans hafi viðgengist
linnulaust kynferðislegt of beldi
gagnvart konum. Það er einfaldlega
ekki satt,“ útskýrir Steinunn.
„Það er í fyrsta lagi ekkert í
íslensku samfélagi sem kallast á við
heiminn í Hollywood þar sem karl-
menn með endalaust fjármagn geta
orðið úrslitavaldar um framgang
kvenna í starfi. Til þess eru valda-
menn í íslenska lista- og menning-
argeiranum einfaldlega ekki nógu
valdamiklir.“
Hún segir hliðstæðuna við raun-
veruleikann enga og valdastrúktúr-
inn ekki sambærilegan. „Í öðru lagi
eru íslenskar konur sjálfstæðar og
framúrskarandi duglegar, treysta
flestar, vona ég, á eigin verðleika og
hæfni óháð áliti karlmanna og eru
að mínu mati flestum betri í því að
skapa sér sín tækifæri sjálfar,“ segir
hún.
„Upp hafa komið of beldismál
innan leikhús- og kvikmynda-
bransans eins og í öðrum atvinnu-
greinum, því skíthælar af öllum
kynjum eru til og heimskulegt að
halda að skíthælahætti megi
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
Þetta eru
fullorðnir
menn sem
skilja
mikilvægi
þess að
leika sér og
fíflast, það
er manns-
andanum
lífsnauð-
synlegt.
30 Helgin 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ