Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 36
„Það er engin tilviljun að mottóið
okkar er „svo þér líði vel“. Við
leitumst nefnilega við að finna
bestu efni í heiminum til að bjóða
viðskiptavinum okkar upp á,“
segir Hildur Þórðardóttir, versl-
unarstjóri Rúmföt.is. „Við verslum
eingöngu beint við verksmiðjur
sem vefa efnin sín sjálfar. Þann-
ig sleppum við öllum milliliðum
og getum boðið sængurföt á mjög
hagstæðu verði og í meiri gæðum
en gengur og gerist.“
600 þráða sængurfötin frá Rúm-
föt.is hafa slegið í gegn að hennar
sögn. „Bæði vegna þess hversu
dásamlega gott er að sofa undir
þeim og ekki síður hvað þau koma
flott úr þvotti. Annaðhvort skal
hengja þau beint upp úr þvottavél-
inni eða skella þeim eitt augnablik
í þurrkarann fyrst og hengja svo
upp, og þau eru tilbúin á rúmið.“
Yndislega mjúkt og gott
Hægt er að fá 600 þráða sængur-
fötin bæði með áprentuðu mynstri
og einlit. „Smekkur fólks er svo
misjafn. Mér finnst eldri kynslóðin
frekar vilja mynstrað á meðan yngri
kynslóðin vill einlit og stílhrein. En
auðvitað er þetta ekki algilt. Sumir
vilja einlit en með smá hreyfingu
í efninu eða mynstri ofið í efnið,
sem kallast þá damask. Við seljum
hágæða damask rúmföt frá Curt
Bauer sem fólki hefur líkað alveg
afskaplega vel við.“ Hún segir að í
nokkur skipti hafi viðskiptavinir
komið í búðina með gömul sængur-
föt og sagt ekkert vita hvaða merki
þetta væri, en beðið um nákvæm-
lega eins. „Þá var það Curt Bauer í
öllum tilfellum. Bómullin er með-
höndluð þannig að hún krumpast
sáralítið og samt er efnið yndislega
mjúkt og gott.“
Einstök efni
Hún segir að nýlega hafi þau fundið
verksmiðju sem framleiðir alveg
dýrindis 900 þráða efni. „Við pönt-
uðum nokkur sængurföt frá þeim
og það var algjör draumur að sofa
undir þeim, eins og að sofa undir
silki. Kosturinn við þessi bómullar-
sett, fram yfir silkið, er að þau má
þvo á 60 gráðum, en silkið bara á
30 gráðum. Slopparnir okkar eru
líka vinsælir en þeir eru úr 100%
bómull. Þeir eru fullkomnir eftir
sturtuna því þeir anda svo vel og
hleypa rakanum út. Samt eru þeir
hlýir og notalegir í morgunmatnum
eða þegar maður vill hafa það kósí á
kvöldin.“
Auk þess eru Rúmföt.is í sam-
starfi við mjög flotta verksmiðju á
Ítalíu. „Verksmiðjan vefur sérstak-
lega fyrir okkur ákveðin efni, svo
óhætt er að fullyrða að enginn
sé með eins í heiminum eins og
við. Þetta þýðir líka að við getum
pantað fyrir hótel, veitingastaði og
gistiheimili, umhverfisvæn sængur-
föt og servéttur, sérofið fyrir hvern
viðskiptavin, með merkinu þeirra
og í litunum þeirra. Ég veit að mörg
hótel eru að fá umhverfisvottanir á
allt sem snýr að starfseminni hér á
landi, en með því að kaupa rúmföt
í gegnum okkur, geta þau verið viss
um að sængurfötin standist líka
staðlana.“
Dásamleg silkikoddaver
Í Bandaríkjunum og Bretlandi
eru ítölsk rúmföt ákveðinn gæða
standard segir Hildur. „Hótel
getur auglýst að það sé með ítölsk
sængurföt og þar með vita gestir að
sængurfötin eru betri en gengur og
gerist. Ég var til dæmis á ferðalagi
um daginn og gisti á fínu hóteli á
besta stað í bænum. Allt var alveg
meiri háttar, nema sængurfötin
voru gróf og hrjúf. Ég er orðin svo
vön því að sofa í mjúku að ég finn
svo mikið fyrir því þegar vantar
upp á gæðin. Sum hótel hér á landi
eru ekkert að spá í að fólk er farið
að gera meiri kröfur. Ég veit til
dæmis um eitt fimm stjörnu hótel
hér á landi sem er með rúmföt úr
pólýesterblöndu, sem mér finnst
alveg ótrúlegt.“
Talandi um gæði þá segir Hildur
að verslunin selji dásamleg silki-
koddaver sem allar konur ættu að
eiga þar sem silkið fer einstaklega
vel með hárið. „Það f lækist og
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Slopparnir
okkar eru líka
vinsælir en þeir
eru úr 100%
bómull. Þeir eru
fullkomnir eftir
sturtuna því
þeir anda svo
vel og hleypa
rakanum út.
Samt eru þeir
hlýir og nota-
legir í morgun-
matnum eða
þegar maður vill
hafa það kósí á
kvöldin,“ segir
Hildur Þórðar-
dóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Bómullin í rúmfötunum frá Curt Bauer krumpast lítið
Vandað 600 þráða satín.
Sum sængurfötin eru með ótrúlega
fallegu og litríku mynstri.
Hágæða damask rúmföt frá Curt Bauer.
brotnar síður og ég þarf varla að
greiða mér á morgnana þótt ég
sé með sítt hár. Konur með þurra
húð tala um að þær vakni minna
krumpaðar á morgnana með silki-
koddaver. Auk þess er lítið mál
að þvo silkið. Ég set mitt í bleyti í
volgt vatn með pínu silkisápu ein-
hvern sunnudagsmorguninn. Læt
það bíða í 10 mínútur, skola svo og
vind það létt og hengi upp.“
Góð þjónusta í boði
Sem verslunarstjóri segir Hildur að
hlutverk sitt sé einfalt. „Mitt hlut-
verk í búðinni er að hjálpa fólki að
velja þau sængurföt sem henta því
best.
Sumir vilja efni sem eru þurr-
ari viðkomu, aðrir vilja mjúkt
satínefni. Sjálf elska ég áprentuðu
satínefnin, allt frá 300 þráðum
upp í eðalfína 900 þræði. Ekki má
síðan gleyma silkidamaskinu sem
margir Íslendingar draga fram á
jólunum. En við eigum landsins
mesta úrval af ítölskum lúxusrúm-
fötum úr silkidamaski.“ n
Verslunin Rúmföt.is er staðsett
að Nýbýlavegi 28. Sími: 565 1025.
Skoðið úrvalið á glæsilegri vef-
verslun rumfot.is.
Blágrátt blómamynstrið setur mildan svip á herbergið.
Bleiki liturinn setur skemmtilegan svip á rúmið.
Við verslum ein-
göngu beint við
verksmiðjur sem vefa
efnin sín sjálfar. Þannig
sleppum við öllum milli-
liðum og getum boðið
sængurföt á mjög hag-
stæðu verði.
2 kynningarblað A L LT 30. október 2021 LAUGARDAGUR