Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 41
HJARTASTOPP
1. Láttu vita, hringdu í 112.
2. Byrjaðu hjartahnoð strax.
3. Leitaðu aðstoðar, finndu
næsta hjartastuðtæki.
Rétt viðbrögð
í þessari röð:
Hjartaheill eru landssamtök
sem voru stofnuð til að bæta
lífslíkur og lífsgæði íslenskra
hjartasjúklinga. Allt starf
Hjartaheilla hefur miðað
að því að bæta forvarnir,
fræðslu og aðstöðu til lækn-
inga á hjartasjúkdómum.
Framfarir læknavísindanna hafa
orðið miklar og lífslíkur fólks
sem fær hjartasjúkdóma eru mun
betri en nokkru sinni. Hjarta-
lækningar á Íslandi eru í fremstu
röð. Hátæknibúnaður er til staðar,
þrautreynt og vel menntað starfs-
lið sem jafnast á við það besta sem
þekkist erlendis. Þá er ótalinn þátt-
ur meðferðar og eftirmeðferðar.
Hjartaheill eiga sinn þátt í þess-
ari þróun og hafa lagt fram mikla
fjármuni til tækjakaupa. Fjár-
mögnun til slíks hefur farið fram
með sjálfstæðum fjáröflunum sem
og átaksverkefnum.
Hjartaheill voru stofnuð 1983
og hétu þá Landssamtök hjarta-
sjúklinga, en nafninu var síðar
breytt í Hjartaheill. Fljótlega urðu
til deildir í landshlutum og starfið
var afar öflugt. Hjartaheill gengu
í Samband íslenskra berkla- og
brjóstholssjúklinga, SÍBS, árið 1992
og eiga sjálfstæða aðild að Öryrkja-
bandalagi Íslands.
Neistinn, aðstandendafélag
hjartveikra barna, var stofnað
1995 og er deild innan Hjarta-
heilla. Starf Neistans hefur verið
þróttmikið í áranna rás og hefur
Styrktarsjóður hjartveikra barna,
sem er á vegum Neistans, veitt
ómetanlegan stuðning til foreldra
sem hafa þurft að kosta miklu til
vegna hjartveikra barna sinna,
meðal annars til nauðsynlegra
ferðalaga vegna aðgerða og margs
annars.
Á tuttugu og fimm ára afmæli
Hjartaheilla árið 2008 gengu
Hjartadrottningarnar til liðs
við samtökin en þær eru hluti af
Go-Red hreyfingunni, sem eru
alþjóðleg samtök kvenna til varnar
hjartasjúkdómum.
Hjartaheill hafa unnið mikið
brautryðjendastarf með því að
ferðast um landið ár eftir ár í
tvo áratugi og bjóða upp á fríar
mælingar á blóðþrýstingi, blóðfitu,
súrefnismettun og fjölmörgum
þáttum öðrum. Það starf er nú
komið í fastan farveg með sam-
vinnu við SÍBS og fleiri samtök
undir heitinu Líf og heilsa. Hjarta-
heill vinnur með og á í samstarfi
við fjölda samtaka og má þar
meðal annars nefna Hjartavernd.
Misskilnings eða ruglings gætir
stundum á nöfnum þessara tveggja
félaga, annars vegar Hjartaheilla
og hins vegar Hjartaverndar.
Hjartavernd eru sérfræðisamtök
sem annast rannsóknir en Hjarta-
heill eru aftur á móti óháð samtök
hjartasjúklinganna sjálfra, fjöl-
skyldna þeirra og annars áhuga-
fólks um heill hjartans, meðferð og
bættan hag hjartasjúklinga, lífsstíl
og lífsgæði. Þessi tvö sjálfstæðu
samtök sameinast hins vegar í starfi
sínu og margs konar aðgerðum að
forvörnum. Þar fara hagsmunir
þeirra mjög vel saman. n
Hlutverk Hjartaheilla er
n að sameina hjartasjúklinga, að-
standendur þeirra og áhugafólk
um heilbrigt hjarta
n að stuðla að betri heilsu og
bættum lífsgæðum í íslensku
samfélagi, með áherslu á fram-
farir í forvörnum, fræðslu og
meðferð hjartasjúkdóma
n að standa vörð um hagsmuni og
réttindi hjartasjúklinga
n að starfa faglega
n að framfylgja markmiðum sam-
takanna.
Allar nánari upplýsingar um starf-
semi Hjartaheilla má fá á heima-
síðunni hjartaheill.is
Hugsað um hjartað – með hjartanu
Hjartaheill hafa unnið brautryðjendastarf í áratugi. Hjartaheill eru samtök hjartasjúklinga og áhugafólks um málefni
hjartans og hefur haft að leiðarljósi að sameina hjartasjúklinga, aðstandendur þeirra og áhugafólk um betri heilsu.
Hjartaheill
er stoltur
styrktaraðili
Börnin bjarga
n Hjartaþræðingar hófust fyrst á
þriðja áratug síðustu aldar, en
hér á landi var farið að fram-
kvæma þær á Landspítalanum á
þeim sjöunda. Um svipað leyti
var sett á stofn hjartagjörgæsla
á Landspítala og farið var að
mynda kransæðar.
n Á tímabilinu 1971-1979 mátti
rekja tæplega helming dauðs-
falla Íslendinga til hjartasjúk-
dóma og „ … var þá svo komið að
læknar hérlendis sem erlendis
höfðu tilhneigingu til þess að
flokka þessa sjúkdóma undir
eins konar faraldur eða jafnvel
farsótt. Ekki var komin aðstaða
til þess að framkvæma hjarta-
skurðaðgerðir hér heima og var
algengast að sjúklingar væru
sendir til Englands í slíkar að-
gerðir.
n Fyrsta opna hjartaaðgerðin hér
á landi var gerð 14. júní 1986 og
það var Þórarinn Arnórsson sem
framkvæmdi hana með góðum
árangri. Þetta olli straumhvörf-
um í meðferð hjartasjúklinga.
Aðgerðum fjölgaði hratt og þær
voru orðnar 270 árið 1994.
n Stofnfundur Landssamtaka
hjartasjúklinga (LHS) var haldinn
í Domus Medica 8. október
1983. Mættu til fundarins 230
stofnfélagar og var það umfram
bjartsýnustu vonir. n
Fróðleikur
Miklar framfarir hafa átt sér stað í
lækningum hér á landi þegar kemur
að hjarta- og kransæðasjúkdómum.
Börnin bjarga var ýtt úr vör af
Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsu-
gæslu (ÞÍH) árið 2019, í samráði við
Embætti landlæknis og Endurlífg-
unarráð Íslands, stutt af frjálsum
félagasamtökum. Forsenda þess
að hægt væri að innleiða verkefnið
var að æfingadúkkur væru tiltækar
öllum skólahjúkrunarfræðingum
landsins svo kennsla í endurlífgun
geti farið fram í skólunum með
viðunandi hætti.
Styrkja var leitað og Hjartaheill
brást vel við og studdi þetta mikil-
væga og þarfa verkefni til kaupa á
æfingadúkkum. Með því að ef la
kennslu í endurlífgun og fræðslu
þar um má auka lífslíkur þeirra
sem fara í hjartastopp til muna.
Verkefnið Börnin bjarga snýst
um að innleiða með markvissum
hætti kennslu í endurlífgun í alla
grunnskóla landsins, með áherslu
á rétt viðbrögð við hjartastoppi.
Hjartaheill styður þetta verkefni af
heilum hug. n
Æfingadúkkur í öllum skólum
Æfingadúkkan sem safnað var fyrir og er notuð til að þjálfa börn í grunnskólum í viðbrögðum við hjartastoppi.
3LAUGARDAGUR 30. október 2021 VELFERÐ