Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 71
Við þökkum fyrir stuðninginn
Tvennt bjargar sjúklingum
sem fara í hjartastopp: hjarta-
hnoð og hjartastuðtæki,
sagði dr. Felix Valsson, svæf-
inga- og gjörgæslulæknir hjá
Landspítala, í viðtali.
Felix gaf góð ráð um endurlífgun,
fyrstu viðbrögð við hjartastoppi og
auðvelda notkun hjartastuðtækja
sem birtust í blaði Hjartaheilla og
eru enn í fullu gildi.
Einkenni hjartastopps eru fyrst
og fremst skyndilegt meðvitundar-
leysi og að öndun stöðvast eða
verður mjög óeðlileg. „Þegar hjarta-
stopp verður eru sérfræðingar
sjaldnast á staðnum. Fyrstu við-
brögð eru þó tiltölulega einföld og
hafi þeir, sem þar eru staddir, réttar
upplýsingar geta þeir veitt dýrmæta
fyrstu hjálp og jafnvel bjargað
mannslífi,“ var haft eftir Felix.
Mikilvægt sé að kalla strax á
hjálp, hringja í 112, ef unnt er og
gefa skýr skilaboð um hjartastopp
og staðsetningu. „Strax á eftir því
er nauðsynlegt að byrja hjartahnoð
því með hnoðinu fer blóðið á hreyf-
ingu um líkamann, þar með talið
til heila og hjarta. Með hjartahnoði
setur maður báðar hendur á mið-
hluta bringubeins og þrýstir mjög
fast, helst svo að bringubeinið gangi
inn, sirka fimm til sex sentimetra,
og hnoðar svo 100 til 120 sinnum á
mínútu,“ útskýrir Felix.
30 hnoð og blástur
Eftir hver 30 hnoð eru gefnir tveir
blástrar munn við munn. „Ef sá sem
hnoðar treystir sér ekki til að blása
af einhverjum ástæðum er samt
mjög mikilvægt að halda stöðugt
áfram að hnoða.“
Námskeið í endurlífgun eru víðs
vegar í boði, oft á vegum vinnuveit-
enda. „Hjartastuðtæki eru ótrúlega
auðveld í notkun. Þegar þau hafa
verið opnuð og sett í gang byrja þau
yfirleitt að tala og leiða fólk með
öryggi í gegnum ferlið,“ útskýrir
Felix.
Venjulega eru tveir límpúðar með
tækinu sem settir eru á sjúklinginn
og alltaf á bera húð. „Á límpúð-
unum sést með myndum hvar á að
setja þá og tækið gefur fyrirmæli
um þetta. Jafnframt því sem farið
er að leiðbeiningum þarf stöðugt
að halda áfram að hnoða. Ef tveir
eru saman er best að annar hnoði á
meðan hinn sinnir tækinu.“
Talar íslensku
Flest stuðtæki hér á landi tala
íslensku nema þau sem eru í flug-
vélum eða á öðrum stöðum sem
telja má alþjóðlega; þar er tungu-
málið yfirleitt enska.
Það getur skipt miklu um endur-
lífgun að geta leiðbeint þeim sem
koma fyrstir á staðinn um hvar
næsta hjartastuðtæki sé staðsett.
„Það er aðallega tvennt sem bjargar
sjúklingum sem fara í hjartastopp,“
sagði Felix.
„Það er að fá hjartahnoð og að
það sé gert fljótt og rétt. Alls ekki
hika við að byrja að hnoða og gera
það af þrótti og ekki vera hræddur
því það eru í raun engar líkur á að
maður geti gert skaða sem neinu
nemur.
Mögulega geta rifbein brotnað
en það er bara minniháttar mál í
stóra samhenginu. Hitt atriðið er að
fá rafstuðtæki sem allra fyrst.“
Fyrstu viðbrögð mikilvæg
Fyrstu viðbrögð geta skipt sköpum.
Síðan koma yfirleitt sérhæfðir
sjúkraflutningamenn eða heil-
brigðisstarfsfólk á staðinn. Ef
sjúklingurinn hefur náðst í gang
er hann fluttur á sjúkrahús og þá
hefst næsta stig meðferðar, sem
getur verið hjartaþræðing ef grunur
leikur á að orsökin sé kransæða-
stífla. Oft er tekin sneiðmynd af
höfði til að ganga úr skugga um
að ekki sé blæðing í heilanum.
Síðan hefst gjörgæslumeðferð
sjúklingsins, sérstaklega ef um er
að ræða meðvitundarleysi. Það er
alltaf ótti við skemmdir á heila því
hann þolir bara mjög stuttan tíma
án blóðflæðis en hlutverk hjarta-
hnoðsins er ekki síst að halda blóð-
flæði til heilans því hnoðið heldur
pumpunni gangandi að verulegu
leyti. Ef tekst að koma hjartanu í
takt með rafstuði tekur það sjálft
við dælingunni sem er auðvitað
það æskilegasta.
Kæling hjálpar
Ýmsar aðferðir hafa verið reyndar
til að minnka skaða. Ein aðferðin er
kæling, að kæla sjúklinginn allan.
Það sést mjög greinilega þegar
heilinn er kældur að þá minnkar
orkunotkun hans sem getur numið
allt að 10 prósentum fyrir hverja
gráðu sem kælt er. Þannig er maður
að hvíla heilann á meðan hann er
að jafna sig. n
Fyrstu viðbrögðin dýrmætust
Allir ættu að
kynna sér notk-
un sjálfvirkra og
hálfsjálfvirkra
hjartastuð-
tækja. Mikil-
vægt er að fólk
kynni sér hvar
hjartastuðtækin
er að finna, til
dæmis innan
fyrirtækja.
5LAUGARDAGUR 30. október 2021 VELFERÐ