Fréttablaðið - 30.10.2021, Blaðsíða 73
Að fara út að
ganga er mjög gott
fyrir líkamann og mælt
er með að minnsta
kosti hálftíma góðri
göngu – kraftganga er
best.
Heilsulind frá landnámi
Slagorð Thorship er Snjallari!
eða Smarter! á ensku.
Hér má sjá hvernig slagorðið er
notað með merki Thorship.
8. Merki með slagorði
Vert I Thorship 2015 09
Við þökkum fyrir stuðninginn
Það gæti komið mörgum
á óvart hvaða breytingar
líkaminn gengur í gegnum
ef þú ferð út og gengur á
hverjum degi. Göngur eru
ódýrasta hreyfing sem er í
boði og útiveran gerir öllum
gott.
Hér eru tíu atriði sem breytast:
Stóra spurningin er samt þessi,
áttu auka korter eða hálftíma á
dag til að fara út að ganga? Já, ég
er viss um það. Það þarf að setja
sjálfa/n sig í fyrsta sæti og hreyfa
sig daglega.
Að fara út að ganga er ofsalega
gott fyrir líkamann og mælt er
með allavega hálftíma góðri
göngu – kraftganga er best. Þetta
er ódýrasta hreyfing sem í boði er
og þú andar að þér fersku lofti og
getur notið þess að vera ein/n.
Gott fyrir heilann
Gerðar hafa verið rannsóknir á
því hvað ganga gerir fyrir heilann.
Samkvæmt þessum rannsóknum
þá eykur ganga endorfínið í líkam-
anum og dregur þannig úr stressi.
Að fara út að ganga gerir heilanum
það gott að það getur dregið úr
áhættunni á Alzheimer til muna.
Sjónin
Það hljómar kannski einkennilega,
en að fara og ganga daglega er mjög
gott fyrir sjónina. Að ganga eykur
þrýsting á augu og getur þannig
dregið úr gláku.
Hjartað
Að ganga eða hlaupa er gott fyrir
hjartað. Þú getur dregið úr áhættu
á hjartaáfalli og öðrum sjúkdóm-
um tengdum hjartanu. Að ganga
dregur einnig úr kólesterólinu og
eykur blóðstreymi í líkamanum.
Lungun
Að ganga er mjög gott fyrir lungun.
Þau fyllast af súrefni sem nýtist
líkamanum afar vel og eykur á
virkni lungnanna.
Brisið
Komið hefur fram í rannsóknum
að fólk sem gengur sér til heilsu-
bótar er með betra jafnvægi á glúk-
ósa í líkamanum. Þetta þýðir að þú
getur hreinlega gengið og komið
þannig í veg fyrir sykursýki.
Meltingin
Það þarf að passa upp á maga-
heilsuna. Gerir þú það þá ertu að
sporna við ristilkrabba og öðrum
vandamálum eins og hægðatregðu.
Vöðvarnir
Þegar manneskja grennist þá rýrna
vöðvarnir. Hér er verið að tala um
hin frægu tíu þúsund skref á dag.
Ef þú ert að grenna þig, þá skaltu
vinna þig upp í þennan skrefa-
fjölda á dag. Gott er að ganga upp í
móti til að auka á vöðvamassa.
Liðamót og bein
Ertu stirð/ur og með verki? Hálf-
tíma ganga á dag getur dregið úr
þessum verkjum í liðamótum.
Einnig dregur gangan úr hættu á
meiðslum og beinþynningu. The
Arthritis Foundation mælir með
því að ganga daglega.
Bakverkir
Æfingar sem reyna mikið á
líkamann geta slitið bakið illa. En
að fara út að ganga getur hins vegar
dregið úr bakverkjum vegna þess
að blóðflæði í kringum mænu og
hrygg eykst töluvert.
Hugurinn
Að ganga með öðrum frekar en
ein/n eykur góða skapið, minnkar
stress og kvíða. Það hefur einn-
ig verið talað um að það dragi úr
þunglyndi. ■
Daglegi göngutúrinn er forvörn og heilsugjafi
Sannað þykir að dagleg hreyfing, til dæmis gönguferð, er mikil heilsubót. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
7LAUGARDAGUR 30. október 2021 VELFERÐ