Fréttablaðið - 30.10.2021, Side 94
Pöntun að verðmæti
4,2 milljarðar dollara.
njall@frettabladid.is
Samk væmt Tw itter-reik ning i
Lucid Air-rafbílaframleiðandans er
afhending á Lucid Air Dream Edi-
tion bílunum hafin. Þar birtu þeir
mynd af bílaflutningabíl með sex
stykki af þessum stóra og öf luga
fólksbíl. Ekkert kemur þó fram um
hversu margir bílar verða afhentir
í þessari lotu, en alls verða 520
Dream Edition-bílar framleiddir.
Hver þeirra skilar 1.080 hestöflum
og er með hvorki meira né minna en
840 km drægi, enda kostar eintakið
22 milljónir íslenskra króna.
Samkvæmt áætlunum fyrirtæk-
isins miðuðust fyrstu afhendingar
við daginn í dag svo að þær áætl-
anir virðast ætla að standast. Þegar
hafa 13.000 bílar verið forpantaðir
af Air Sedan-bílnum sem kostar frá
10 milljónum króna. Tesla Model S
kostar frá 12,5 milljónum króna á
Íslandi svo að þessi fjöldi pantana
þarf svo sem ekki að koma á óvart. n
Lucid Air hefur afhendingar
Það dugir ekkert minna en sverasta gerð af Peterbilt-trukk til að ferja sex
stykki af nýja Lucid Air Dream Edition rafbílnum.
Fimmta kynslóð Range Rover
kemur á markað á næsta ári
og mun kosta frá 28 millj-
ónum króna. Hann verður í
boði í bensín- og dísilútgáfum
en einnig er von á tengiltvinn-
út gáfu 2023. Hann verður líka
fáanlegur í sjö sæta útgáfu í
fyrsta skipti.
njall@frettabladid.is
Range Rover er bíll sem breytist ekki
oft og mikið en þegar það gerist
eru það fréttir fyrir bílaunnendur.
Hann hefur verið við lýði í hálfa öld
og kemur nú í sinni fimmtu kyn-
slóð. Þó að ytra útlit hans virðist
vera meira í áttina að hægri þróun
er ekki sama sagan um innihaldið,
en bíllinn kemur nú í fyrsta skipti í
tengiltvinnútgáfu og með sjö sæta
möguleika. Hann er fyrsti bíll Land
Rover sem byggður er á nýja MLA-
Flex undirvagninum. Sá undirvagn
getur bæði nýtt sér brunahreyfla,
tengiltvinnútfærslur og rafdrif ein-
göngu. Þess vegna verður nýr raf-
drifinn Range Rover kynntur árið
2024.
Fimmta kynslóðin, fyrsti Range
Rover-jeppinn með sjö sæt a
möguleika í lengri útgáfu bílsins.
Sú útgáfa er með 200 mm lengra
hjólhafi en hefðbundin gerð hans.
Að sögn Bjarna Þ. Sigurðssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra Land
Rover, mun bíllinn kosta frá 28
milljónum króna. „Bensínútgáfan
verður nærri 30 milljónum en
tengil tvinnútgáfan kemur ekki fyrr
en með 2023 árgerðinni og liggur
því verð ekki fyrir á honum,“ segir
Bjarni.
Um tvær tengiltvinnútgáfur
verður að ræða, og eru það P440e og
P510e sem báðar byggja á sömu sex
strokka línuvélinni. Báðar verða
með 38,2 kWst raf hlöðu og 141
hestaf la rafmótor en bensínvélin
verður með forþjöppu og í tveimur
af lútfærslum. Skilar sú af lminni
434 hestöf lum og 620 Nm togi en
sú af lmeiri 503 hestöf lum og togi
upp á 700 Nm. Sá bíll er 5,7 sek-
úndur í hundraðið og nær 140 km
hraða í rafdrifinu eingöngu. Báðar
útgáfurnar munu geta ekið allt að
100 km á hleðslunni og mun hann
geta hlaðið á allt að 50 kW hleðslu-
stöð. Í hefðbundinni heimahleðslu
tekur um fimm klukkustundir að
fullhlaða bílinn.
Fleiri útgáfur verða í boði með
mildri tvinntækni en sú aflminnsta
er þriggja lítra dísilvél sem skilar
296 hestöflum. Sex strokka bensín-
vélin verður 394 hestöf l en einn-
ig verður 4,4 lítra V8 vél með 523
hestöfl í húddinu og 750 Nm tog.
Sá bíll verður aðeins 4,6 sekúndur í
hundraðið. Allar útgáfur verða með
átta þrepa sjálfskiptingu og lággír. n
Range Rover frumsýndur
í sinni fimmtu kynslóð
Meðal nýjunga í innréttingu er stór 13,1 tommu upplýsingaskjár með Ama-
zon Alexa og Spotify ásamt Apple CarPlay og Android Auto.
Að framan er útlitið mýkra ásamt endurhönnun á ljósum og grilli en flestir skynjarar bílsins eru í stuðaranum.
njall@frettabladid.is
Hertz Global Holdings Inc. hefur
lagt inn pöntun fyrir 100.000 Tesla-
raf bílum en það er viðlíka pöntun
og pöntun Amazon á jafnmörgum
sendibílum frá Rivian-raf bílafram-
leiðandanum. Pöntunin mun þýða
4,2 milljarða dollara í söluverð-
mæti fyrir Tesla.
Þessi samningur getur þýtt
seinkanir á af hendingum til við-
skiptavina Tesla því að af henda
þarf bílana á næstu 14 mánuðum.
Bloomberg-fréttaveitan heldur því
fram að Hertz þurfi að borga lista-
verð miðað við upphæðina og hafi
ekki fengið afslátt eins og venjan er
með svona stór viðskipti.
Frá og með nóvember næst-
komandi verður hægt að leigja
Tesla Model 3 frá Hertz-leigum í
Bandaríkjunum og hluta Evrópu.
Leigutakar munu hafa aðgang að
Supercharger hraðhleðsluneti Tesla,
en Hertz er einnig að koma sér upp
sínum eigin hleðslustöðvum. Á
Íslandi hefur verið hægt að taka
langtímaleigu á Tesla Model 3 fyrir
159.000 krónur á mánuði. n
Hertz pantar 100.000 Teslur
Langflestir Tesla-bílanna verða af Model 3 gerð til að byrja með.
hokuspokus.is
Opið Laugard til 20
& sunnud til 18
njall@frettabladid.is
Búist er við að ný BMW 7-lína verði
kynnt áður en árið er úti. BMW
ætlar að byggja bílinn á undirvagni
sem leyfir bæði rafmótor og/eða
brunahreyfil og mun þá rafútgáfan
fá i7-nafnið. Talið er að nýtt útlit
bílsins muni fela í sér endurhönnun
á framenda BMW þar sem dagljós
verða í húddinu en aðalljósin inn-
felld í stuðarana. Stóra nýrnagrillið
fær þó að halda sér og bæði verður
hægt að fá bílinn í hefðbundinni og
lengri útgáfu.
BMW hefur ekki gefið upp nein-
ar tækniupplýsingar fyrir nýju
7-línuna en þar sem hann þarf
að keppa við bíla eins og nýjan
Mercedes-Benz EQS, sem er með
780 km drægi, þarf það að vera
umtalsvert. EQS er með 107 kWst
rafhlöðu en 7-línan gæti fengið 105
kWst rafhlöðuna úr iX sem ætti að
gefa honum rúmlega 700 km drægi.
Þó að brunahreyflar verði einnig í
boði er ólíklegt að V12- vélin haldi
áfram. Líklegast er talið að allar
nýjar útgáfur fái 48V tvinntækni
ásamt tengiltvinnútgáfu. n
Ný 7-lína BMW fær einnig rafútgáfu
Búast má við breyttu útliti ljósa á nýja bílnum sem verður með nýju sniði.
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 30. október 2021 LAUGARDAGUR