Fréttablaðið - 30.10.2021, Page 104
Það er nefnilega það
fyndna sko, hann sagði
ekki neitt! Hann
minntist ekkert á
skrautið og settist bara
niður eins og hann
væri kominn í venju-
lega íbúð.
Eva Möller á mjög líklega
hryllilegustu íbúðina á
Akureyri, að minnsta kosti
um helgina, en hrekkjavakan
gaf henni tilefni til að skreyta
íbúðina hátt og lágt. Meðal
annars með It-dúkku svo fátt
eitt sé nefnt.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég er nú búin að skreyta,“ segir Eva
sem er lögst í f lensu og hefur því
frestað afmælis- og hrekkjavöku-
teitinu sem átti að vera um helgina
um viku.
„Ég fékk tryggingasölumann í
heimsókn í gærkvöldi. Það var pínu
vandræðalegt,“ segir Eva hlæjandi
en tryggingasölumaðurinn mætti
tveimur beinagrindum í anddyrinu.
Hvað sagði hann?
„Það er nefnilega það fyndna sko,
hann sagði ekki neitt! Hann minnt-
ist ekkert á skrautið og settist bara
niður eins og hann væri kominn í
venjulega íbúð,“ segir Eva.
Heimatilbúinn hryllingur
Þegar talið berst nánar að hrekkja-
vökuskrautinu segir hún: „Svona
sjötíu prósent af þessu sem ég á er
bara heimatilbúið. Ég klippti út
leðurblökur og setti á spegilinn inni
á baði.
En það sem ég er örugglega stolt-
ust af er að ég breytti Baby Born
dúkku í Baby It, með blöðru og öllu,“
segir hún létt í bragði um aðlögun
barnaleikfangsins að einni þekkt-
ustu ófreskju hryllingskóngsins
Stephens King.
„Hún er ógeðsleg sko,“ bætir Eva
við. Þá bjó hún auk þess til ljós úr
þremur öðrum dúkkuhausum.
Eva viðurkennir að íbúð hennar sé
frekar hryllileg.
„Hún er pínu „scary“. En það
fyndnasta er að þau byrjuðu að
spila jólalög í morgun og mig langar
eiginlega að setja upp jólaskraut
líka,“ segir hún í gríni. Hún segist
þó sennilega muni bíða með það í
nokkrar vikur í viðbót.
Hrekkjavökuvæddi HA
Eva er ekki hætt að skreyta og ætlar
að bæta við meira hrekkjavöku-
skrauti næstu helgi, þegar hún
heldur upp á afmælið sitt. Aðspurð
að því hvað valdi þessum áhuga á
hrekkjavöku, segir Eva:
„Ég hef bara hrikalega gaman af
búningum og hef dressað mig upp
í alls konar skemmtilega búninga,
ekkert endilega „scary“,“ útskýrir
hún. Eva var skemmtanastjóri í
Háskólanum á Akureyri í tvö ár.
„Þá hafði enginn trú á Halloween-
partíi,“ segir Eva. Hún hafi þó keyrt
á það og fengið það í gegn að lokum.
„Og nú er búið að halda það þar
á hverju ári síðan,“ segir Eva. Hún
hefur sjálf verið dugleg að sækja
hrekkjavökuteiti eftir að skóla-
göngunni lauk.
„Svo var árlegt Halloween-partí
hjá vinkonu minni sem hún og
systir hennar héldu á hverju ári og
þar var var farandbikar, sem hún
smíðaði sjálf, fyrir besta búning-
inn,“ segir Eva. „Þannig að þetta
er svona mikið í kringum mig og
margir á sömu bylgjulengd og ég.“ n
Tryggingamaðurinn sagði
ekkert við hryllingnum
Eva skilur ekkert eftir óskreytt í hús-
inu, ekki einu sinni baðherbergið.
Eva er meira að segja með grasker
sem gefur frá sér hljóð og talar.
Eva fékk gest í gær sem kippti sér
ekkert upp við beinagrindurnar.
svavamarin@frettabladid.is
Kristín Linda Kaldal, heildrænn
heilsuþjálfari, hvetur foreldra til
að vanda nammivalið um helgina
þegar litlir uppvakningar, nornir
og önnur hrikaleg börn ganga milli
húsa og biðja um grikk eða gott.
„Við þurfum ekki að vera vísinda-
menn til að kynna okkur hvað sé
slæmt fyrir litla kroppa sem eiga
erfiðara með að vinna úr óæski-
legum aukaefnum líkt og E321 og
soyalecitin,“ segir Kristín. „Segir ekki
allt sem segja þarf þegar það stendur
aftan á pakkningum „getur haft nei-
kvæð áhrif á athygli og athafnasemi
barna“ um skaðsemi efnanna?“
Kristín vill vekja athygli á að alltaf
sé hægt að velja betri kost og fræða
börnin í leiðinni. „Foreldrar þurfa
að taka höndum saman og velja það
sem kemur frá náttúrunnar hendi.
Augun sjá strax hvað er framleitt á
rannsóknastofu eða kemur úr nátt-
úrunni. „Eiturrauður og blár eru
mest rannsökuðu litir í matvælum,
en öll ASO-litarefni, sem ætti að
kynna sér, myndi ég vilja taka af
markaði,“ segir Kristín.
Kristín vill sjá Íslendinga bakka
um 50 til 60 ár í mataræði, „það var
allt miklu náttúrulegra“. En hún
vildi einnig fara nær hugsunarhætti
Dana og Svía sem eru mun framar
í fjölbreyttu úrvali af lífrænum
vörum og áherslum í þeim efnum
gagnvart börnum. Hún ítrekar að
við megum ekki gleyma okkar eigin
Nammið eins og túss eða appelsína
Kristín Linda
Kaldal, heild-
rænn heilsu-
þjálfari
líkama. „Það á líka að vera gaman og
við eigum ekki að hugsa um að allt
sé hættulegt, en við þurfum að hafa
þetta innan skynsamlegra marka og
velja vel.“
Kristín fjallar ítarlega um heil-
næmt líferni á Instagram-síðu sinni,
kristinkaldal. n
Hugmyndir fyrir krakkana
Haribo gúmmí án gerviefna
Hreint súkkulaði
Freyju karamellur
KITKAT
Prins Polo
Kinder egg
Tutti frutti gúmmí
Popp
Lífrænar rúsínur
Skreyttar mandarínur
Lífræn epli
Eva elskar búninga og elskar að klæða sig upp í ólíka búninga. MYND/AÐSEND
Þessi hrylli-
legi trúður
var eitt sinn
venjuleg
Baby Born.
Eva skreytir
gjörsamlega
allt húsið.
www.sleepy.is • Ármúli 17 • Sími: 6207200
toti@frettabladid.is
Þegar krakkarnir eru búnir að
koma öllu hrekkjavökugottinu í
hús er tilvalið að halda draugalegri
gleðinni áfram og þá á fátt betur
við en góð og sígild hryllingsmynd.
Þessar þrjá hafa margsannað sig
sem slíkar þótt þær séu vissulega
mishræðilegar.
Halloween (1978)
Auðvitað á engin
h r yl l i ng smy nd
betur við þetta
tilefni en tíma-
mótaverk Johns
Carpenter, Hallo-
ween frá 1978,
sem bæði hóf
bú rhníf inn t i l
vegs og virðingar
sem morðvopn eftir að hann hafði
legið í sturtubotni Hitchcocks síðan
Psycho var og hét og kynnti til sög-
unnar Michael Myers sem er svo
öflugt skrímsli að hann er enn að.
Hocus Pocus (1993)
T ó n n i n n o g
s t e m n i n g i n í
Hocus Pocus er
mun léttari og
hentar f leirum.
My nd in ger ist
í því annálaða
nornabæli Salem
í Massachusetts,
s a n n k ö l l u ð u m
hrekkjavökubæ, og segir frá baráttu
unglingspilts við að halda aftur af
þremur nornum sem eru full hress-
ar þrátt fyrir að hafa verið brenndar
á báli fyrir svartagaldur 300 árum
áður.
The Craft (1996)
Þessi unglinga-
h r ol l u r he f u r
hv o r k i t a p a ð
sjarma sínum né
krafti á þeim 25
árum sem liðin
eru frá frumsýn-
ingu. Fairuza Balk
er líka enn alveg
jafn mögnuð sem
leiðtogi ung nornasveims sem laðar
til sín nýju stelpuna í skólanum,
enda eru þeim allir vegir færir
með kukli sínu. Hafa ber í huga að
myndin hefur átt það til að kveikja
nornadrauma hjá ungum áhorf-
endum. n
Ekta myndir fyrir
hrekkjavökuna
60 Lífið 30. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 30. október 2021 LAUGARDAGUR