Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 7

Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 7
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 5 Stuttu síðar varð Wow air gjaldþrota (sem hafði þó ekkert með verkalýðsbaráttuna eða kjaramál að gera) og tónninn breyttist. Öllum mátti verða ljóst að ekki yrði lengra komist með þessa baráttu. Meira að segja Eflingar- forystan, sem seint verður kennd við nokkra skynsemi, áttaði sig á því. Þá stigu Samtök atvinnulífsins og ríkisstjórnin það furðulega skref að koma til móts við kröfur þeirra sem höfðu með orðræðu sinni skaðað atvinnu- og efnahagslífið í allan vetur. Þegar VR var við það að brotna og almenningur var búinn að átta sig á því að Efling var ekki að starfa í þágu hins almenna launamanns mætti ríkisstjórnin á vettvang með 45 aðgerðir til stuðnings því sem menn vilja kalla lífskjarasamning. Innan þeirra aðgerða má svo sem finna ágætis liði en þær eru að miklu leyti kostnaðarsamar. Embættismenn fjármálaráðuneytisins hljóta nú að vinna hörðum höndum að því að skrifa minnisblöð til stjórnmálamanna þess efnis að ekki verði hægt að lækka skatta á næstu misserum. *** Að öllu óbreyttu munum við sjá töluvert um uppsagnir og frekari hagræðingu innan atvinnulífsins í haust þegar áhrif samningsins koma fram. Lífskjarasamningurinn verður atvinnulífinu og ríkisvaldinu dýr en mun ekki bæta lífskjör nema að litlu leyti. Það hefði frekar átt að leyfa verkalýðs- forystunni að rekast á vegg hins raunverulega. Bæði Samtök atvinnulífsins og ríkisvaldið hefðu átt að halda þetta lengur út og standa í lappirnar. Þetta var -og er - ekki bara barátta um tæknilegar útfærslur á kjarasamningum, heldur barátta um hugmyndir, barátta um frjáls markaðshagkerfi, frjáls viðskipti o.s.frv. Halda menn að það fólk sem enn situr í verkalýðsfélögunum, með alla þá digru sjóði sem þar er að finna, sé búið að pakka saman í þeirri baráttu? *** Það eru þó ekki minni verkefni sem bíða hins opinbera þótt enginn virðist ætla sér að taka á þeim. Hagstofan birti nýlega tölur um heildarlaun fullvinnandi launamanna fyrir árið 2018, sem voru að meðaltali 721 þúsund krónur á mánuði. Þegar horft er á dreifingu heildarlauna var algengast að mánaðarleg heildarlaun væru á bilinu 550 til 600 þúsund krónur (í framhjáhlaupi má nefna að félags- menn VR eru að miklu leyti með þessi laun og hærri – þannig að það hefði seint tekist að sannfæra þá um að fara í verkfall). Það sem allir ættu aftur á móti að hafa áhyggjur af er að á meðan heildarlaun á almennum vinnumarkaði voru að meðaltali 729 þúsund krónur á mánuði árið 2018 voru heildarlaun ríkisstarfsmanna 818 þúsund krónur að meðaltali. Meðallaun hjá ríkinu eru því tæplega 100 þúsund krónum hærri en í einkageiranum. Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi setið í ríkisstjórn síðastliðin sex ár bendir ekkert til þess að ríkisstarfsmönnum muni fækka. Hinn opinberi eftirlitsiðnaður mun halda áfram að blása út, ráðuneytin stækka, stjórnsýslan stækkar, það þarf verkefnastjóra í alls konar verkefni, mannauðsstjóra til að stýra þessu og þannig mætti áfram telja – vel og lengi. Einkageirinn þarf bara að halda áfram að vera duglegur, menn þurfa að mæta vel í vinnuna og leggja mikið á sig, jafnvel taka aukavinnu þegar svo ber undir, því þessi laun ríkisstarfs- manna greiða sig ekki sjálf. Gísli Freyr Valdórsson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.