Þjóðmál - 01.06.2019, Side 22

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 22
20 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 Þetta var upphafið. Þessi hópur tók ásamt fleiri lykilmönnum að sér að hleypa af stað breytingum. Hlutirnir þurftu að ganga hratt fyrir sig til að fyrirtækið heltist ekki úr lestinni. Ráðast þurfti í miklar fjárfestingar og huga að nýjum leiðum til fjármögnunar á þeim. Stærstu breytingarnar til að byrja með voru að endurnýja skipaflotann þannig að hægt væri að takast á við flutningakerfi austan hafs og vestan. Keypt voru ekjuskip, þau síðan stækkuð og keypt skip sem voru hönnuð fyrir gámaflutninga. Fjármögnun var að hluta til færð beint til erlendra banka, en flest íslensk félög voru fjármögnuð innanlands á þeim tíma. Þó svo að Hörður væri ekki mikill tölvumaður sjálfur skildi hann þá tækni og gerði sér grein fyrir möguleikum hennar. Á fyrstu árunum var ráðist í gerð upplýsingakerfa, bæði á fjármálasviðinu og flutningasviðinu. Þetta var mjög dýr framkvæmd, sem skilaði sér vel að lokum. Þó svo að áhugi hans á þessu sviði væri ekki mikill vissi hann að þetta var nauðsynlegt til þess að takast á við breytta tíma. Áætlanagerð var grunnur sem grundvallaði ákvarðanatöku, en vönduð áætlanagerð var ekki framkvæmd í mörgum fyrirtækjum á þessum tíma. Til að takast á við þessar breytingar innan- lands var haldið áfram með uppbyggingu í Sundahöfn. Það var mikilvæg stöð í flutninga kerfinu, því nú miðaðist allt við að lágmarka tíma skipa í höfn. Á árum áður voru skip allt að 70% af tímanum í höfn og 30% á siglingu, en nú er þessu öfugt farið og skip oftast ekki nema 25% af tíma sínum í höfnum. Vöruhús voru hönnuð miðað við gámaflutninga og til að takast á við aukna sérhæfða geymsluþörf, m.a. frystigeymslur. Samfara þessu var frystiskipum skipt út fyrir frystigáma. Það var mikil breyting og jók verulega þá þjónustu sem viðskiptamönnum bauðst. Við það fékkst verðmæt þekking inni í félaginu sem síðar var nýtt til frekari landvinninga. Lokaátak þessarar uppbyggingar var að opna eigin skrifstofur í stað umboðsmanna- kerfis og komast þannig nær uppruna og enda flutningaleiðanna með uppbyggingu flutningsmiðlunar og frekari þjónustu við viðskiptamenn. Þessar breytingar tóku nokkur ár og tóku á. Má segja að Eimskip hafi aldrei breyst jafn mikið og á þessum tíma. Forstjóri og framkvæmdastjórar Eimskipafélagsins í lok tíunda áratugarins; Þórður Magnússon fjármálasviði, Erlendur Hjaltason utanlandssviði, Þorkell Sigurlaugsson þróunarsviði (sitjandi), Friðrik Jóhansson Burðarási hf., Þórður Sverrisson flutningasviði, Hörður Sigurgestsson forstjóri og Hjörleifur Jakobsson innanlandssviði.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.