Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 27
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 25
„Við erum að móta menntastefnu til ársins
2030. Markmið hennar er að gera íslenska
menntakerfið framúrskarandi,“ segir Lilja
strax við upphaf viðtalsins, hvar hún situr
með fullt fang af gögnum sem sýna stöðu
menntakerfisins í dag og spár um framtíðina.
Það fer ekkert á milli mála að ráðherrann er
búinn að vinna heimavinnuna sína. Það er
sjálfsagt og eðlilegt að hefja samtal okkar á
umræðu um menntamál.
„Við höfum verið að skoða menntavísinda-
rannsóknir til að meta stöðu Íslands í dag,
hvar við stöndum varðandi lesskilning,
stærðfræði, náttúrulæsi og svo framvegis,“
segir Lilja.
„Staðreyndin er sú að við höfum gefið eftir, eins
og kemur fram í alþjóðlegu menntarannsókn
Efnahags- og framfara stofnunarinnar PISA.
Ísland var yfir meðaltali Norðurlandaríkja árið
2000 í stærðfræðiskilningi en nú erum við
komin neðst. Það er staða sem ég tel að sé
óásættanleg. Ég hef verið að skoða hvernig
við búum til framúrskarandi menntakerfi út
frá samanburðarrannsóknum við ríki sem
náð hafa góðum árangri. Þar erum við helst
að horfa helst til Finnlands og Kanada og
jafnvel Singapúr og Suður-Kóreu. Hins vegar
er ljóst að menntastefnan verður íslensk
og nýtir þann sterka menningarlega grunn
bókmennta og verkvits sem þróast hefur hér.
Ég hef þá trú að stefnumótun eigi að nýta
styrkleikana sem fyrir eru en maður verður
að hafa dug og hugrekki til að breyta því
sem betur má fara. Sjálf hef ég lært og unnið
í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu og lít til
þeirrar reynslu við mótun menntastefnu.“
Lilja segir að til þess að byggja upp framúr-
skarandi menntakerfi sé nauðsynlegt að hlúa
að starfsumhverfi kennara enda sé það eitt
einkenni þeirra menntakerfa sem þykja skara
fram úr.
„Kennarar þurfa að upplifa það að sam-
félagið kunni að meta störf þeirra, það sé
eftirsóknarvert að vera kennari og að færri
komist að en vilja,“ segir Lilja.
„Við létum gera svokallaða færnispá til að
meta þörfina á fjölda kennara fram í tímann.
Besta sviðsmyndin sýndi að árið 2032 myndi
vanta 1.600 kennara en sú versta sýndi vöntun
upp á 2.300 kennara. Við höfum verið að
útskrifa á bilinu 75-80 kennara á ári á meðan
við þurfum að vera að útskrifa 270. Eitt af
verkefnum mínum var að móta stefnu til
framtíðar og bregðast við þessu. Við gerðum
áætlun sem fól í sér að fimmta árið væri tekið
í starfsnámi, því það var mikið fall í aðsókn
í kennaranám eftir lengingu. Samhliða því
kynntum við styrki fyrir starfsnámið og þegar
kennarar hafa lokið mastersnámi sínu fá þeir
800 þúsund krónur. Einnig veitum við umbun
fyrir eldri kennara sem taka starfsnema að
sér. Allt hefur þetta nú verið framkvæmt og
það var 45% aukning í innritun í kennara-
nám í Háskóla Íslands síðasta vetur. Ég er
mjög ánægð með þessa vinnu og einkar
gott samstarf við forystu kennara, Samband
íslenskra sveitarfélaga, menntavísindasvið
Háskóla Íslands og Háskóla Akureyrar og
önnur ráðuneyti.“
Kennaranám var fyrir ekki svo löngu lengt úr
þremur árum í fimm. Voru það ekki mistök?
„Flest ríki hafa lengt kennaranám, þannig að
ég held að það séu ekki mistök,“ segir Lilja.
„En það má gagnrýna hvernig það var fram-
kvæmt því það lá ekki fyrir hvað kennarar
fengju aukalega fyrir lengra nám. Ef þú
ætlar að lengja nám þarftu að búa til hvata
þannig að lenging námsins skili einhverju.
Byrjunarlaun eru svipuð því sem gerist í
samanburðarlöndum en það vantar hvata
fyrir kennara til að vinna sér inn frekari ábata.
Kennarafrumvarpið, sem samþykkt var í
vor, er liður í þessu. Með því gildir leyfisbréf
kennara á öllum skólastigum. Ég veit að
það eru margir sem fóru inn í kennaranám
vitandi að þeir hefðu þennan sveigjanleika.
En ég ítreka að það þarf að hlúa vel að starfi
kennara. Það muna allir, þegar þeir hugsa
til baka, eftir góðum kennurum. Þess vegna
eigum við að veita þessu starfi meiri viður-
kenningu og aukinn sveigjanleika ef við
ætlum að vera með framúrskarandi kerfi.“