Þjóðmál - 01.06.2019, Side 17
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 15
Samspil kaupmáttar og framleiðni
Það er áhugavert að bera saman þróun
framleiðni vinnuafls og kaupmáttar launa.
Hagstofan hefur birt vísitölur launa í atvinnu-
greinunum sem hér er fjallað um, þ.e.
framleiðslu, byggingarstarfsemi, verslun og
flutningum, fyrir tímabilið 2005-2018.
Á súluritinu hér að ofan er sjávarútvegi
bætt við og launaþróun þar áætluð út frá
þróun meðallauna fiskvinnslufólks, en ekki
liggja fyrir opinberar tölur um launaþróun
sjómanna. Í meðfylgjandi samanburði hefur
launaþróun á almennum vinnumarkaði
í heild verið skeytt framan við talnaraðir
atvinnugreinanna á tímabilinu 1997-2005 og
hagkerfisins í heild.
Á þessum tveimur áratugum, 1997-2017, óx
kaupmáttur launa og framleiðni vinnuafls
álíka mikið í efnahagslífinu í heild, eða um
2,4-2,8% árlega að jafnaði. Það felur í sér að
framleiðni vinnuafls og kaupmáttur launa var
60-70% hærri árið 2017 en tveimur áratugum
fyrr. Framangreindur samanburður sýnir að
kaupmáttur launa og framleiðni vinnuafls
haldast í hendur til langs tíma, með tilteknum
frávikum sem eiga sér yfirleitt einfaldar
skýringar.
Hófsemd stuðlar að meiri velferð
Kaupmáttur launa jókst meira á Íslandi en
annars staðar á Norðurlöndum á árunum
1997-2017. Kaupmáttur jókst um 2,4% árlega
að jafnaði á Íslandi, 2,1% í Noregi, 1,7% í
Svíþjóð og 1,1% í Danmörku. Miklu munar
um hverja prósentu þegar litið er yfir langt
tímabil. Þannig var kaupmáttaraukningin
í heild 61% á Íslandi, 50% í Noregi, 39% í
Svíþjóð og 23% í Danmörku á þessu tímabili.
Þetta segir þó ekki alla söguna.
Árlegur vöxtur framleiðni vinnuafls og kaupmáttar launa 1997-2017
Hlutfallsleg breyting
Heimildir: Hagstofa Íslands fyrir 2008-2017, áætlun höfundar fyrir 1997-2007
2,6%
2,2%
2,0%
3,0%
3,3%
2,8%
3,1%
2,3%
2,3%
2,3%
2,6%
2,4%
Heild- og smásöluverslun
Flutningar
Sjávarútvegur
Byggingarstarfsemi
Iðnaður
Hagkerfið alls
Framleiðni
Kaupmáttur