Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 40
38 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
lífslíkur við fæðingu 33 ár á Íslandi, en árið
2016 hinar sömu og í Svíþjóð, 82 ár.10 Heilsa
hefur batnað og menntun aukist. Árið 1950
hafði um helmingur mannkyns aldrei gengið
í skóla. Árið 2010 var þessi tala komin niður
í einn sjöunda hluta mannkyns.11 Allt skiptir
þetta máli í umræðum um auð og eklu.
Tekjuhópar ósambærilegir
við farrými á skipi
Í doðranti sínum víkur Piketty að feigðarför
farþegaskipsins Titanic árið 1912 og segir, að
stéttaskiptingin um borð hafi endurspeglað
stéttaskiptinguna í Bandaríkjunum. Þótt
hinn auðugi og ógeðfelldi Hockley hafi verið
hugsmíð James Camerons, hefði hann getað
verið til.12
Þessi líking Pikettys er þó hæpin. Farþegar
um borð í skipi hafa keypt miða hver á sitt
farrými, svo að segja má, að þeir verðskuldi
hver sinn stað. Líklega voru miðarnir á þriðja
farrými á Titanic einmitt ódýrari, af því að
gestirnir á fyrsta farrými greiddu hátt verð
fyrir sína miða. Farþegar á skipi geta sjaldnast
flust milli farrýma. En í Bandaríkjunum fyrir
1914 braust fjöldi manns með dugnaði og
áræðni úr fátækt í bjargálnir, eins og dæmi
milljóna örsnauðra innflytjenda sýndi.
Hinn ógeðfelldi Hockley var ekki til. Hann var
hugsmíð. En margir raunverulegir auðmenn
voru farþegar á Titanic. Tveir þeirra, Benjamin
Guggenheim og John Jacob Astor IV, neituðu
að fara um borð í björgunarbáta, fyrr en allar
konur og börn hefðu komist þangað. Báðir
fórust með skipinu. Ida og Isidor Strauss, sem
áttu vöruhúsakeðjuna Macy’s, voru einnig
farþegar. Ida neitaði að stíga niður í björgunar-
bát án manns síns. Hún vildi eins og Bergþóra
forðum heldur deyja í faðmi manns síns.
Fátækur skipverji, George Symons, varð
hins vegar alræmdur, þegar honum var falin
umsjá björgunarbáts, sem tók fjörutíu manns.
Hann hleypti þangað sex öðrum skipverjum
og fimm farþegum af fyrsta farrými, en lagði
síðan frá.13 Fátækir menn þurfa ekki að vera
betri en ríkir. Manngæska skiptist eftir öðru
lögmáli en auður og ekla.
Fjármagn:
Hreyfing frekar en upphleðsla
Piketty telur, að við óheftan kapítalisma hafi
fjármagn tilhneigingu til að hlaðast upp: Það
vaxi oftast hraðar en atvinnulífið í heild.
En er þetta rétt? Er fjármagnið óbifanlegt?
Bandaríska tímaritið Forbes birtir árlega lista
um ríkustu milljarðamæringa heims. Árið
1987 voru sex af tíu efstu japanskir, aðallega
eigendur fasteigna. Auður þeirra er nær allur
horfinn. Hinir sænsku Rausing-bræður, sem
voru í sjötta sæti, ávöxtuðu fé sitt betur, en
þó aðeins um 2,7% á ári. Reichmann-bræður,
sem voru í sjöunda sæti, urðu síðar gjaldþrota,
þótt einn þeirra ætti eftir að efnast aftur.
Kanadíski kaupsýslumaðurinn Kenneth Ray
Thomson náði besta árangri á meðal hinna
tíu ríkustu í heimi. Hann ávaxtaði fé sitt þó
ekki nema um 2,9%. Hagvöxtur er oft meiri.14
Piketty líkir stéttaskiptingu í
frjálsu hagkerfi við stéttaskiptingu
á farþegaskipi eins og Titanic,
þar sem sumir ferðast á fyrsta
farrými. En í frjálsu hagkerfi fara
menn iðulega á milli tekjuhópa,
og sumir brjótast úr fátækt í
bjargálnir.