Þjóðmál - 01.06.2019, Side 33
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 31
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið duglegur
að gagnrýna frumvarpið, en það tekur þó
mið af því stuðningskerfi sem fjármála- og
efnahagsráðherra hefur verið að innleiða á
síðustu árum. Það er dálítil þversögn í þessu,“
segir Lilja og brosir.
„Það var ekki vilji til þess að fara í aðgerðir
á borð við það að afnema virðisaukaskatt,
því sú aðgerð nær ekki yfir fríblöð og annað
slíkt og gagnast því ekki öllum. Við vitum þó
að þær aðgerðir sem hafa verið boðaðar og
það frumvarp sem liggur fyrir skiptir héraðs-
miðlana mjög miklu máli. Þeir eru ekki minna
mikilvægir en miðlar á höfuðborgar svæðinu.
Mikilvægast er þó að Íslendingar hafi aðgang
að íslensku efni, íslenskri umfjöllun um
málefni líðandi stundar og svo framvegis, og
þess vegna er mikilvægt að styðja einkarekna
miðla. Þá er um leið mikilvægt að eignarhald
á fjölmiðlum sé gagnsætt. Þannig að það er
að mörgu að huga í þessu, en ég ætla mér að
koma þessu í gegn.“
Í hvaða mynd?
„Sjálfstæðisflokkurinn og VG hafa einnig
komið að þessu frumvarpi. Þegar ég mæli
fyrir frumvarpinu á þingi geri ég ráð fyrir því
að Sjálfstæðisflokkurinn standi með sínum
eigin tillögum en annars á þetta eftir að
koma í ljós,“ segir Lilja.
Telur þú að Sjálfstæðisflokkurinn hafi vilja til
þess að taka RÚV af auglýsingamarkaði?
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýrt þessu
ráðuneyti lengi og ekki lagt upp í þá vegferð
fram til þessa. Ég held að það myndi hjálpa
til í stóra samhenginu og við verðum að
taka mið af þeirri upplýsinga- og samskipta-
byltingu sem við erum stödd í,“ segir Lilja.
Lilja lauk stúdentsprófi MR 1993 og stundaði skiptinám í stjórnmálasögu Austur-Asíu við Ewha-háskólann í Seúl 1993–94.
Hún lauk BA-próf í stjórnmálafræði HÍ 1998, og hafði þá stundað skiptinám í þjóðhagfræði og heimspeki við Minnesota-
háskólann í Bandaríkjunum í eitt ár, og meistaragráðu í alþjóðahagfræði frá Columbia-háskólanum í New York árið 2001.