Þjóðmál - 01.06.2019, Qupperneq 7
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 5
Stuttu síðar varð Wow air gjaldþrota (sem
hafði þó ekkert með verkalýðsbaráttuna eða
kjaramál að gera) og tónninn breyttist. Öllum
mátti verða ljóst að ekki yrði lengra komist
með þessa baráttu. Meira að segja Eflingar-
forystan, sem seint verður kennd við nokkra
skynsemi, áttaði sig á því.
Þá stigu Samtök atvinnulífsins og ríkisstjórnin
það furðulega skref að koma til móts við
kröfur þeirra sem höfðu með orðræðu sinni
skaðað atvinnu- og efnahagslífið í allan
vetur. Þegar VR var við það að brotna og
almenningur var búinn að átta sig á því að
Efling var ekki að starfa í þágu hins almenna
launamanns mætti ríkisstjórnin á vettvang
með 45 aðgerðir til stuðnings því sem menn
vilja kalla lífskjarasamning. Innan þeirra
aðgerða má svo sem finna ágætis liði en þær
eru að miklu leyti kostnaðarsamar.
Embættismenn fjármálaráðuneytisins hljóta
nú að vinna hörðum höndum að því að skrifa
minnisblöð til stjórnmálamanna þess efnis
að ekki verði hægt að lækka skatta á næstu
misserum.
***
Að öllu óbreyttu munum við sjá töluvert
um uppsagnir og frekari hagræðingu innan
atvinnulífsins í haust þegar áhrif samningsins
koma fram. Lífskjarasamningurinn verður
atvinnulífinu og ríkisvaldinu dýr en mun ekki
bæta lífskjör nema að litlu leyti.
Það hefði frekar átt að leyfa verkalýðs-
forystunni að rekast á vegg hins raunverulega.
Bæði Samtök atvinnulífsins og ríkisvaldið
hefðu átt að halda þetta lengur út og standa
í lappirnar. Þetta var -og er - ekki bara barátta
um tæknilegar útfærslur á kjarasamningum,
heldur barátta um hugmyndir, barátta um
frjáls markaðshagkerfi, frjáls viðskipti o.s.frv.
Halda menn að það fólk sem enn situr í
verkalýðsfélögunum, með alla þá digru sjóði
sem þar er að finna, sé búið að pakka saman í
þeirri baráttu?
***
Það eru þó ekki minni verkefni sem bíða
hins opinbera þótt enginn virðist ætla sér að
taka á þeim. Hagstofan birti nýlega tölur um
heildarlaun fullvinnandi launamanna fyrir
árið 2018, sem voru að meðaltali 721 þúsund
krónur á mánuði. Þegar horft er á dreifingu
heildarlauna var algengast að mánaðarleg
heildarlaun væru á bilinu 550 til 600 þúsund
krónur (í framhjáhlaupi má nefna að félags-
menn VR eru að miklu leyti með þessi laun
og hærri – þannig að það hefði seint tekist að
sannfæra þá um að fara í verkfall).
Það sem allir ættu aftur á móti að hafa
áhyggjur af er að á meðan heildarlaun á
almennum vinnumarkaði voru að meðaltali
729 þúsund krónur á mánuði árið 2018 voru
heildarlaun ríkisstarfsmanna 818 þúsund
krónur að meðaltali. Meðallaun hjá ríkinu eru
því tæplega 100 þúsund krónum hærri en í
einkageiranum.
Þrátt fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi setið
í ríkisstjórn síðastliðin sex ár bendir ekkert til
þess að ríkisstarfsmönnum muni fækka. Hinn
opinberi eftirlitsiðnaður mun halda áfram
að blása út, ráðuneytin stækka, stjórnsýslan
stækkar, það þarf verkefnastjóra í alls konar
verkefni, mannauðsstjóra til að stýra þessu
og þannig mætti áfram telja – vel og lengi.
Einkageirinn þarf bara að halda áfram að vera
duglegur, menn þurfa að mæta vel í vinnuna
og leggja mikið á sig, jafnvel taka aukavinnu
þegar svo ber undir, því þessi laun ríkisstarfs-
manna greiða sig ekki sjálf.
Gísli Freyr Valdórsson