Þjóðmál - 01.06.2019, Page 12
10 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
V.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sem
iðnaðarráðherra brugðist við fullyrðingum
þeirra sem óttast að Ísland sé á leið undir
forræði fagstofnunar ESB á sviði orkumála,
ACER, með því að flytja frumvarp sem reisir
þröskuld gagnvart ósk um að ráðast í fram-
kvæmdir vegna sæstrengs. Hún vill að til
þess þurfi heimild alþingis og hefur Haraldur
Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokk-
sins, kynnt hugmynd um að ákvörðun um
sæstreng yrði lögð fyrir þjóðina í atkvæða-
greiðslu.
Þetta eru nýmæli vegna sæstrengs en
hugmyndir um hann hafa verið til umræðu
í að minnsta kosti 40 ár. Til dæmis ræddi frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, um
sæstreng við Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, þegar þær hittust í
Downing-stræti í London í febrúar 1982.
Ólöf Skaftadóttir, ritstjóri Fréttablaðsins,
ræddi við Þórdísi Kolbrúnu iðnaðarráðherra
og birtist samtal þeirra í blaðinu laugar-
daginn 13. júlí. Ráðherrann sagði:
„Það er augljóst að það er deilt um orku-
pakkann. Ég hef lagt mig fram um að koma
upplýsingum á framfæri. Ég hef átt hrein-
skiptin samtöl við alls konar Sjálfstæðisfólk
og aðra um orkupakkann. Við höfum lagt í
mikla vinnu, breytt málinu og brugðist við
áhyggjum. Það að vera stjórnmálamaður
snýst ekki um að hlusta á skoðana kannanir
eða beygja sig fyrir þeim eða þegar einhver
skrifar um mál með ákveðnum hætti heldur
að hlusta á sína sannfæringu og klára mál,
þó þau séu erfið. Ég fór ekki í pólitík af því
að ég héldi að það væri auðvelt. Þriðji orku-
pakkinn er hluti af öðru, stærra samhengi.
Hluti af því að standa vörð um EES. [...]
Málið snýst um réttindi neytenda og
upplýsinga skyldu orkufyrirtækja sem
eru að mestu opinber. Umræðan hefur
að miklu leyti snúist um sæstreng. Alveg
óháð þriðja orkupakkanum væri hægt að
leggja sæstreng. Það er jafn erfitt að gera
það núna og áður. En vegna umræðunnar
höfum við girt fyrir það að hægt sé að
leggja sæstreng með ákvörðun eins
ráðherra einhvern tíma í framtíðinni. Nú
er það allt Alþingi sem þarf að samþykkja
slíka framkvæmd og opnað hefur verið á
þjóðaratkvæðagreiðslu um framkvæmdina
ef einhvern tímann kæmi til þess að slík
framkvæmd kæmist á dagskrá. Því hún er
ekki á dagskrá þessarar ríkis stjórnar.[...]
Ég er þeirrar skoðunar að EES-samningurinn
sé einn okkar mikilvægasti fjölþjóða-
samningur. Það var Sjálfstæðisflokkurinn
sem leiddi okkur inn í það samstarf undir
forsæti Davíðs Oddssonar. Það var heilla-
skref.
Umræða um sæstreng á milli Bretlands og Íslands er ekki nýtilkomin. Frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti Íslands, ræddi um sæstreng við Margaret Thatcher, forsætis ráðherra
Bretlands, þegar þær hittust í Downing-stræti í London í febrúar 1982.