Þjóðmál - 01.06.2019, Side 39

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 39
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 37 Mannauður, lífeyrissjóðir og ríkisafskipti Boðskapurinn er í stystu máli þessi: Þar eð arður af fjármagni vex oftast hraðar en atvinnulífið í heild sinni, verða hinir ríku sífellt ríkari og öðlast óeðlileg ítök. Óheftur kapítalismi leiðir til ójafnari dreifingar tekna og eigna en góðu hófi gegnir. Vitnar Piketty í rækilegar rannsóknir sínar og samstarfs- manna sinna á tekju- og eignaþróun víða á Vesturlöndum. Hann vill bregðast við með alþjóðlegum ofursköttum, 80% hátekjuskatti og 5% auðlegðarskatti. Nú blasir einn galli á kenningu Pikettys við. Hann undanskilur það fjármagn, sem ef til vill er mikilvægast, en það er mannauður (human capital). Það felst í þekkingu manna, kunnáttu, þjálfun og leikni. Þótt menn eigi vissulega misjafnlega mikið af mannauði, dreifist hann þó eflaust jafnar um atvinnulífið en annað fjármagn: Hefur hver sér til ágætis nokkuð. Enn fremur verður að minna á, að nú á dögum er verulegt fjármagn í höndum lífeyrissjóða frekar en einkaaðila. Eignir lífeyris- sjóða námu árið 2017 til dæmis 183% af lands- framleiðslu í Hollandi og 152% á Íslandi.3 Þegar Piketty fullyrðir, að óheftur kapítalismi leiði til ójafnrar tekjudreifingar, horfir hann líka fram hjá þeim ríkisafskiptum, sem auka beinlínis á hana. Eitt dæmi er tollar og framleiðslukvótar, sem gagnast fámennum hópum, en bitna á neytendum. Þá má nefna ýmsar opinberar takmarkanir á framboði vinnuafls, sem gera til dæmis læknum, endurskoðendum, hárgreiðslumeisturum og pípulagningamönnum kleift að hirða einokunar hagnað. Þriðja dæmið er skráning einkaleyfa og vernd höfundarréttar: Auður Bills Gates myndaðist ekki síst vegna einkaleyfa, og Agatha Christie og J. K. Rowling urðu ríkar af höfundarrétti (svo að ekki sé minnst á Piketty sjálfan). Minna má og á niðurgreidda þjónustu við efnað fólk, sem umfram aðra sækir tónleika og sendir börn sín í háskóla.4 Tekjudreifingin verður líka ójafnari við það, er eigendur og stjórnendur fjármálafyrirtækja fá að hirða gróðann, þegar vel gengur, en senda skatt- greiðendum reikninginn, þá er illa fer, eins og sást erlendis í síðustu fjármálakreppu.5 Velmegun blessun, ekki böl Munurinn á Rawls og Piketty er að Rawls hefur áhyggjur af fátækt, en Piketty af auðlegð. Er skoðun Rawls ekki heilbrigðari? Fátækt er böl, en auðlegð blessun. Sum okkar geta sofið á næturnar, þótt öðrum gangi vel. En ef til vill var þess ekki að vænta, að Piketty gerði fátækt að neinu aðalatriði, því að mjög hefur dregið úr henni í heiminum síðustu áratugi. Samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóða- bankans bjó röskur þriðjungur mannkyns við sára fátækt eða örbirgð árið 1990. Aldarfjórðungi síðar, árið 2015, var þessi tala komin niður í einn tíunda hluta mannkyns.6 Hundruð milljóna Kínverja hafa brotist úr fátækt til bjargálna vegna þess, að Kína ákvað upp úr 1980 að tengjast alþjóða- kapítalismanum. En hagkerfið á meginlandi Kína er aðeins eitt af fjórum kínverskum hagkerfum. Lífskjarabætur hafa orðið miklu meiri í þeim þremur kínversku hagkerfum, sem reist eru á ómenguðum kapítalisma. Árið 2017 var landsframleiðsla á mann 57.700 Bandaríkjadalir í Singapúr, 46.200 í Hong Kong og 24.300 í Taívan, en aðeins 8.800 í Kína.7 Og frjálsu kínversku hagkerfin þrjú sluppu við ofsakommúnisma Maós, en í hungursneyðinni vegna „Stóra stökksins“ í Kína 1958–1962 týndu um 44 milljónir manna lífi.8 Talnarunur um tekjur mega síðan ekki dylja þá staðreynd, að lífið er almennt orðið miklu þægilegra. Kjör fátæks fólks eru nú jafnvel um margt betri en kjör ríks fólks fyrir tveimur öldum vegna bíla, vatnslagna, húshitunar og húskælingar, ísskápa, síma, netsambands, ódýrra flugferða og ótal annarra lífsgæða. Venjulegur launþegi vann fyrir 186 ljósa- stundum (Lumen-stundum) á öndverðri nítjándu öld, en fyrir 8,4 milljónum árið 2018.9 Lífið er ekki aðeins orðið betra, heldur lengra. Árið 1751 voru lífslíkur við fæðingu 38 ár í Svíþjóð, en árið 2016 82 ár. Árið 1838 voru

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.