Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 51

Þjóðmál - 01.06.2019, Síða 51
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 49 4. Lýðræði og viðskipti Aukin lýðræðisþróun í Evrópu að lokinni síðari heimsstyrjöld spilar veigamesta hlut- verkið í friðarferlinu í álfunni. Evrópa var sár eftir tvær styrjaldir á stuttum tíma. Öllum var ljóst að byggja yrði álfuna upp á nýtt eftir það niðurrif sem styrjaldirnar ollu. Til að þetta gæti gerst var tvennt sem varð að tryggja; lýðræði og almenna velmegun. Ekki eru dæmi um það í sögunni að lýðræðis- ríki hafi lýst yfir stríð gegn öðru lýðræðisríki. Þýskaland var vissulega lýðræðisríki þegar nasistar náðu völdum, en það er óhætt að segja að lýðræðið hafi verið afnumið um það leyti sem seinni heimsstyrjöldin hófst. Evrópuríkin gerðu sér jafnframt grein fyrir því að til að tryggja stöðugan frið í Evrópu yrði að bæta kjör almennings. Af þeirri ástæðu voru mynduð bandalög um viðskipti fyrst og fremst. Með bættum lífsskilyrðum og aukinni hagsæld var vonast til þess að lýðræðið festi sig í sessi. Það voru sex lýðræðisríki sem mynduðu Kola- og stálbandalag Evrópu árið 1952 og lagði það grunninn að frekari Evrópusamruna. Stofnaðilar voru Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir ásamt Benelux-þjóðunum Hollandi, Lúxem- borg og Belgíu. Þessar sömu þjóðir stofnuðu Efnahagsbandalag Evrópu (forvera Evrópu- sambandsins) nokkrum árum síðar. Hlutverk ESB og forvera þess Með þessi fjögur atriði í huga eru allar líkur á því að friður hefði haldist í Evrópu óháð því hversu hraður eða hversu mikill Evrópu- samruninn hefði verið á þessum tíma. Engin ástæða er til að gera lítið úr því að Evrópu- sambandið og forverar þess spila stórt hlut- verk í þessu ferli, en leiðin að friði var alltaf í gegnum frjáls viðskipti og lýðræði – í bland við stuðning og veru Bandaríkjamanna. Á þeim tíma sem liðinn er hafa orðið til nýjar ógnir sem ríki Evrópu munu þurfa að takast á við með sameiginlegum hætti. Hryðjuverka- ógnin vofir yfir að einhverju leyti en nú bætast við umhverfisógnir og óróleiki vegna innflytjenda (þ.e. það er ágreiningur milli ríkja á meginlandinu við ríki sem eiga landa- mæri að Miðjarðarhafi og Mið-Austurlöndum), að ónefndu misvægi í efnahag ríkjanna innan Evrópusambandsins sem kemur fram í atvinnu leysi, verðbólgu, minnkandi kaup- mætti og óvissu í lífeyrisskuldbindingum tiltekinna ríkja. Það er ljóst að áskoranir ríkja innan Evrópu eru margar. Allar eru þær lýðræðisþjóðir, flestar eiga aðild að NATO, Bandaríkjamenn eru enn með herstöðvar í sumum þeirra en þær eiga sér ekki allar sama óvin. Því til viðbótar eru hagsmunir þeirra ólíkir að mörgu leyti. Sem fyrr segir má telja ólíklegt að innan Evrópu brjótist út vopnuð átök á milli ríkja – en það verða átök á vettvangi stjórnmála og viðskipta á næstu árum. Þá er spurning hvort Evrópusambandið, sem margir vilja eigna friðinn síðustu áratugi, getur haldið friðinn? Höfundur er stjórnmálafræðingur og ritstjóri Þjóðmála.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.