Þjóðmál - 01.06.2019, Side 83

Þjóðmál - 01.06.2019, Side 83
ÞJÓÐMÁL Sumar 2019 81 Deilur á Íslandi Um þetta leyti - haustið 1948 - varð ljóst, að Ísland kynni að eiga kost á því að verða aðili hins vestræna bandalags, sem nú var í deiglu. Mikil æsingarskrif hófust brátt í íslenskum blöðum af hálfu andstæðinga vestræns varnarsamstarfs, einkum Sameiningar- flokks alþýðu - Sósíalistaflokksins. Einnig var hörð andstaða úr hópi menntamanna, einkum á þjóðernislegum grundvelli. Var næstu mánuðina hafðu uppi harðskeyttur áróður gegn hugmyndinni um vestrænt varnarbandalag og brigslyrði viðhöfð um að ríkisstjórnin væri að hneppa þjóðina í hernaðar fjötra og fyrirgera nýfengnu sjálfstæði hennar. Hinn 7. desember 1948 skýrði bandaríski sendiherrann í Reykjavík, Richard P. Butrick, utanríkisráðherranum, Bjarna Benediktssyni, í algerum trúnaði frá því að „ráðgert væri að leita til Íslands meðal fyrstu ríkja um þátttöku í N-Atlantshafsbandalagi, þegar umræður milli þeirra aðila, sem nú [ættu] í umræðum um þessi mál, væri svo langt komið, að hlýða þætti að snúa sér til fleiri.“ Ríkisstjórnin fór af öllum ástæðum varlega í sakirnar og óskaði frekari upplýsinga, áður en formlegt boð um aðild yrði borið fram og birt opinberlega. Í samtali við bandaríska sendiherrann 11. desember tók utanríkisráðherrann strax fram, að bandarískar herstöðvar á Íslandi kæmu ekki til greina. Það mál hefði verð útrætt, er Keflavíkursamningurinn var gerður 1946. Hinn 5. janúar var síðan afhent trúnaðarorðsending, þar sem staðfest var, að Íslandi stæði aðild til boða. Íslendingar voru óvanir því að fást við hernaðarmál og höfðu skamma reynslu í meðferð utanríkismála. Þeir lögðu nú áherslu á að kynna sér allar hliðar málsins sem best, þ.á.m. afstöðu annarra norrænna þjóða, skýra sérstöðu Íslands og fá fram, hvaða skilmálar fylgdu aðild. Forsætisráðherra, Stefán Jóhann Stefánsson, hagnýtti náið samband við starfs- og flokks- bræður sína í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sósíaldemókratana Hans Hedtoft, Einar Gerhardsen og Tage Erlander, til að fylgjast með þróun mála. En mestur þungi hvíldi á traustum herðum hins fertuga utanríkis- ráðherra, Bjarna Benediktssonar, fyrrverandi lagaprófessors og borgarstjóra, sem árið áður hafði tekið við ráðherraembætti í fyrsta sinn af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Fór hann m.a. utan seint í janúar 1949 og ræddi ýtarlega við norræna starfsbræður sína og fleiri áhrifamenn. Sérstaða Íslands vegna legu þess fjarri hinum Norðurlöndunum átti sinn þátt í því, að Ísland varð aldrei beinn aðili að tilraun Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar, Þrír íslenskir ráðherrar, einn frá hverjum stjórnarflokki, fóru vestur til Washington DC í mars 1949, til þess að kynna og fá viðurkennda sérstöðu Íslands, áður en ákveðið væri um stofnaðild Íslands að NATO. Ráðherrarnir voru Bjarni Benediktsson frá Sjálfstæðisflokki, Emil Jónsson frá Alþýðuflokki og Eysteinn Jónsson frá Framsóknarflokki.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.