Þjóðmál - 01.06.2019, Page 98
96 ÞJÓÐMÁL Sumar 2019
Umræða
Í síðustu tveimur heftum Þjóðmála hefur
verið birtur listi yfir þá gesti sem tekið hafa,
að beiðni þáttarstjórnenda, þátt í umræðum
undir liðnum Vettvangur dagsins í stjórnmála -
þættinum Silfrinu sem sýndur er á sunnu-
dögum í Ríkissjónvarpinu.
Þegar vorhefti Þjóðmála kom út hafði 121
gesti verið boðið að taka þátt í umræðum
undir fyrrnefndum lið. Af þessum gestum var
hægt með sanngjörnum hætti að flokka 63
þeirra sem vinstrimenn. Hlutföllin höfðu því
haldist svo gott sem óbreytt frá því í aðven-
tunni. Af 121 gest mætti flokka 21 til hægri
og 23 í miðju. Aðrir, 14 talsins, voru óflokkaðir
eftir pólitísku litrófi.
Þegar Silfrið fór í sumarfrí í lok maí höfðu 142
gestir þegið boð um að taka þátt í umræðum
í þættinum.
Vinstri menn mega vel við una því af þessum
142 gestum má flokka 73 þeirra til vinstri,
eða 51% allra gesta. 28 gesti, eða 20%,
mætti flokka í miðju og 27 þeirra, eða 19%, til
hægri. 14 gestir, eða um 10%, eru óflokkaðir.
Vinstri menn unnu Silfrið í ár. Þá er bara
spurning hvað gerist næsta vetur. Í lögum
um um Ríkisútvarpið ohf. er skýrt kveðið á
um skyldu til óhlutdrægni og fyllstu hlut-
lægni í allri umfjöllun og fréttaflutningi.
Eftirfylgni á þessum lögum er þó ávallt háð
huglægu mati.
Silfrið: Vinstrið vann í ár
Sérlega spennandi bók um óhugnanleg
morð en rannsókn þeirra markaði upphaf
bandarísku alríkislögreglunnar, FBI.
Sagnfræðilegt meistaraverk og um leið
frábær sakamálasaga.
Mögnuð saga ungrar hugrakkrar
Jasídastúlku sem var rænt úr
þorpi sínu árið 2014 og seld í
kynlífsþrælkun fyrir vígamenn
Íslamska ríkisins (ISIS).
Áhrifamikil bók!
Margverðlaunuð bók!
TVÆR NÝJAR BÆKUR FRÁ AB