Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 12
thorgrimur@frettabladid.is
PORTÚGAL Portúgalska þingið sam-
þykkti í gær frumvarp að lögum sem
eiga að heimila líknardráp í landinu.
Þetta er í annað skiptið á árinu sem
frumvarp þess efnis hefur verið sam-
þykkt á þinginu. Þingið lögleiddi
líknardráp upphaflega í janúar síð-
astliðnum, en stjórnlagadómstóll
Portúgals komst að þeirri niður-
stöðu að lögin samrýmdust ekki
stjórnarskrá. Í nýrri útgáfu laganna
er tekið fram að heimilt sé að beita
líknardrápi ef um er að ræða alvarleg
meiðsli sem valda því að sjúklingur
þarfnist aðstoðarmanns eða vélar
til að takast á við dagleg verkefni og
ekki sé von um bót eða bata.
Lögin bíða enn undirskriftar Mar-
celo Rebelo de Sousa forseta, sem
vitað er að hefur verið tregur til að
staðfesta lögin og gæti aftur vísað
þeim til stjórnlagadómstóls. Áætlað
er að þing verði rofið á næstunni og
efnt til nýrra kosninga í janúar eftir
að vinstrif lokkar felldu fjárlaga-
frumvarp ríkisstjórnarinnar. Flokk-
arnir hafa sætt gagnrýni fyrir að
samþykkja líknardrápsfrumvarpið,
en ekki fjárlögin. n
OF SNEMMT ...
Fyrir sætar og safaríkar
klementínur?
Krónan
mælir með!
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Formaður jafnréttisnefndar
Evrópuþingsins, Evelyn Reg-
ner, er hér á landi til að afla
upplýsinga um kynjajafnrétti
á Íslandi og aðgerðir Íslend-
inga. Hún segir að leiðin að
jafnrétti sé löng og erfið en að
það megi ekki gefast upp.
lovisa@frettabladid.is
JAFNRÉTTI Formaður jafnréttis-
nefndar Evrópuþingsins, Evelyn
Regner, segir að það sé hægt að læra
margt af Íslendingum þegar kemur
að jafnrétti kynjanna en að það
verði að gæta að bleikþvotti hér á
landi og að jafnrétti þýði ekki ein-
ungis kynjajafnrétti.
Evelyn er hér á landi til að af la
upplýsinga um aðgerðir Íslendinga
til að stuðla að jafnrétti á vinnu-
markaði, en nefnd hennar fjallar
nú um nýja tillögu framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins um
launagagnsæi.
Er launajafnrétti draumur eða
markmið sem við munum ná?
„Auðvitað munum við ná því en
það verður að taka það fram að það
er erfið vinna. Það er ekkert sjálf-
sagt og allir þeir áfangar sem við
höfum þegar náð, sem konur hafa
í fortíðinni barist fyrir, er ekki eitt-
hvað sem sjálfgefið er að haldi sér.
Það þarf að viðhalda því alla daga og
það þarf að þróa það áfram og það
er það sem við erum að gera núna,“
segir Evelyn.
Hún segir að í drögunum að til-
skipun framkvæmdastjórnarinnar
sé fjallað um mikilvægi þess að safna
gögnum og tölum, en ítrekar að það
sé ekki markmiðið sjálft, markmiðið
er launajafnrétti, en gögnin eru leið
að markmiðinu.
Evelyn segir að það sem þau séu
alltaf að læra meira um sé um raun-
verulegt virði vinnunnar, bæði laun-
aðrar vinnu og ólaunaðrar vinnu.
„Ólaunuð vinna er ástæðan fyrir
því að konur hlaupa um með ósýni-
legan bakpoka á bakinu í gegnum
lífið. Það er erfitt að komast áfram
þannig,“ segir Evelyn.
Hún segir að málið sé þó flókið að
því leyti að lög og bindandi aðgerðir,
þó nauðsynlegar, séu ekki nóg, því
ef það á að nást jafnrétti í þessum
skilningi verði allir að vera sam-
mála um það og stefna þangað og að
aðgerðirnar verði að vera einfaldar
og tímasettar.
Af hverju ertu á Íslandi? Erum við
góð fyrirmynd?
„Kynjajafnrétti og Ísland eru sam-
ofin. Þetta er vörumerki Íslands,
félagslega og stjórnmálalega. Það er
náttúran og eldfjöll og svo kynjajafn-
rétti. Það er svo gott að geta komið
hingað og lært af fólki hér,“ segir Eve-
lyn, en í heimsókn sinni hefur hún
hitt ráðherra, alþingismenn, fólk frá
einkareknum fyrirtækjum og verka-
lýðsforystu auk þess sem hún hefur
hitt forsvarsfólk félagasamtaka. Þá
hitti Evelyn Vigdísi Finnbogadóttur,
fyrrverandi forseta.
„Það sem við höfum lært er að
kynjajafnrétti er vörumerkið, en að
við verðum að verða meðvituð um
„bleikþvott“ [e. pink washing]. Það
er frábært að segja að kynjajafnrétti
sé vörumerki Íslands, en það á að
vera eitthvað meira en stimpill sem
fyrirtæki og stofnanir státa sig af.
Fólkið á að búa við það og það á að
innleiða það,“ segir Evelyn og bætir
við:
„Íslandi gengur kannski betur en
öðrum, en það er ekki sanngjarnt að
launamunur kynjanna sé 14 prósent.
Það er engin ástæða til þess,“ segir
Evelyn og að í þessu samhengi sé
mikilvægt að hugsa um virði vinnu
og hvernig störf eru skilgreind og
launuð eftir verkefnum.
„Það er fólk sem vinnur við það
að losa rusl. Þau sem gera það inni,
hreingerningakonur, þéna miklu
minna en þeir sem losa rusl úti, sorp-
hirðumenn. En hver er munurinn?
Er það hitastigið?“ segir Evelyn og
spyr hvaða breytur skipti máli og
hvort þær þurfi ekki að vera í enda-
lausri endurskoðun.
„Hávaði skiptir máli þegar störf
eru metin og það sem við komumst
að er að hávaði á vinnustöðum þar
sem er hugsað um börn, í leikskólum
og hjá dagforeldrum, var metinn á
sama hátt og á venjulegum vinnu-
stað. Er það viðeigandi? Nei, en það
þýðir að það þarf að bera saman
aftur og aftur, og vinna okkar er að
komast að því hvaða breytur á að
nota,“ segir Evelyn. Þetta þurfi að
gera reglulega. n
Konur hlaupa um með
ósýnilegan bakpoka á sér
Evelyn segir að vörumerki Íslands séu jafnrétti og náttúra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Evelyn Regner,
formaður jafn-
réttisnefndar
Evrópuþingsins
Portúgalar lögleiða
líknardráp í annað sinn
Portúgalska þingið kaus um nýtt
frumvarp til að heimila líknardráp í
landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
12 Fréttir 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ