Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 74
Allt í einu
höfðum
við allan
tímann í
heiminum
til að æfa
okkur.
Það er þvílíkur heiður
að fá að spila fyrir
fullum sal af fólki eftir
svona langan tíma í
samkomutakmörk-
unum.
Dominik Winter-
ling, fram-
kvæmdastjóri
sinfóníuhljóm-
sveitarinnar
Hljóðfæraleikarar í einni
bestu sinfóníuhljómsveit
heims iða í skinninu að fá að
spila í fyrsta sinn fyrir Íslend
inga í Hörpu. Framkvæmda
stjóri hljómsveitarinnar
tók við stöðu sinni í miðju
útgöngubanni og segir hljóm
sveitina hafa einstakan hljóm,
þökk sé galla í hönnun tón
leikasalarins í Amsterdam.
Ein þekktasta sinfóníu
hljómsveit heims, Kon
unglega Concertgebouw
hljómsveitin frá Hollandi,
heldur tónleika í Eldborg
arsal Hörpu þann 10. nóvember og
er ljóst að þetta verður einn stærsti
menningarviðburður á Íslandi í
langan tíma.
Dominik Winterling, fram
k væmdastjór i sinfóníuhljóm
sveitarinnar, er ekki Hollendingur
sjálfur heldur Þjóðverji. Hann fædd
ist í þorpinu Zwiesel, sem stendur
í litlum dal umkringt mögnuðum
fjallgarði sem teygir sig yfir í þjóð
garðinn í Bavaríu.
Hann hefur á síðustu árum kynnt
sér fallegustu og stærstu tónleika
salina í Evrópu eins og Elbphil
harmonie í Hamburg þar sem hann
starfaði sem framkvæmdastjóri
styrktarsjóðs, tónleikasali í Heidel
berg þar sem hann stýrði tónlistar
hátíð og svo að sjálfsögðu Konung
lega Concertgebouw tónleikasalinn,
heimkynni Concertgebouw hljóm
sveitarinnar.
Næst fær Dominik að hlýða á fagra
hljóma sinfóníuhljómsveitar sinnar
í Eldborg í Hörpu og segist hann iða
í skinninu að fá að sjá salinn. Sama
gildi um hljóðfæraleikarana sem
hoppuðu af gleði þegar þeir heyrðu
að förinni væri heitið til Íslands.
Með einstakan samhljóm
Dominik var staddur í Amsterdam,
heimaborg hljómsveitarinnar, þegar
Fréttablaðið náði af honum tali sím
leiðis á dögunum.
„Við ætlum að sýna Íslendingum
það besta sem við höfum upp á að
bjóða. Við viljum leyfa Íslendingum
að heyra þennan sérstaka hljóm sem
við höfum þróað í gegnum tíðina.“
Aðspurður hvað hann eigi við
með „sérstökum hljóm“ útskýrir
Dominik að hljómsveitin sé einstök á
heimsvísu, þökk sé heimavelli þeirra
í Amsterdam.
Konunglegi Concertgebouw
tónleikasalurinn, heimili hljóm
sveitarinnar, er frægur fyrir hljóm
burð sinn og er talinn með bestu
tónleikasölum í heiminum ásamt
Sinfóníuhöllinni í Boston og Musik
verein í Vínarborg. Það sem vekur
athygli er að salurinn er með frá
bæran hljómburð fyrir áhorfendur
en alveg hræðilegan fyrir flytjendur
á sviðinu. Vegna þess þurfa hljóð
færaleikararnir að sperra eyrun og
stilla sig vel hver inn á annan. Þetta
er því einstaklega samheldin hljóm
sveit með magnaðan og silkimjúkan
samhljóm, að sögn Dominik.
„Þetta er einstakur hljómur og
ég hef svo gaman af því að heyra
hljómsveitina spila í mismunandi
tónleikasölum. Við höfum skoðað
myndir af Eldborg og getum ekki
beðið eftir að heyra hljóminn í
salnum.“
Hljómsveitin var stofnuð árið
1888 og með henni hafa færustu
listamenn sígildrar tónlistar starfað
en þar má nefna Richard Strauss,
Gustav Mahler og Igor Stravinsky.
Í sveitinni eru hljóðfæraleikarar
frá 25 löndum. „Engir Íslendingar
því miður þó hér séu aðdáendur
Íslands,“ segir Dominik.
Á efniskránni í Hörpu eru tvær
stórbrotnar sinfóníur, hin epíska
sjötta sinfónía Dmítríj Shostakov
itsj og hin tregafulla sjötta sinfónía
Pjotr Tsjaíkovskí, með undirtitilinn
„Pathétique“.
Bráðungur stjórnandi
Stjórnandinn er hinn 25 ár gamli
Klaus Mäkelä sem þrátt fyrir ungan
aldur hefur sýnt að hann er einn
Hljómsveitin iðar í skinninu að
fá að spila fyrir Íslendinga
Stjórnandi
sveitarinnar
er hinn 25 ára
gamli Klaus
Mäkelä.
Ein þekktasta sinfóníuhljómsveit heims, Konunglega Concertgebouw frá Hollandi, heldur tónleika í Eldborg í næstu viku. MYND/AÐSEND
Ingunn Lára
Kristjánsdóttir
ingunnlara
@frettabladid.is
eftir tektarverðasti hljómsveitar
stjóri Norðurlandanna um þessar
mundir. Hann er frá Finnlandi og
hefur áður komið fram í Hörpu
þegar hann stýrði Sinfóníuhljóm
sveit Íslands á sérstökum Tsjaík
ovskí og Shostakov itsjtónleikum
þar sem japanska fiðlustjarnan
Sayaka Shoji lék einleik.
Klaus er greinilega mikill aðdá
andi Tsjaíkovskí og Shostakov itsj
en hann fékk að stjórna dagskránni
að sögn Dominik. Klaus hefur áður
starfað sem aðalhljómsveitarstjóri
Fílharmóníuhljómsveitarinnar í
Osló og verður auk þess aðalhljóm
sveitarstjóri Orchestre de Paris frá
haustinu 2022.
„Klaus Mäkelä er í raun ótrúleg
uppgötvun. Hljóðfæraleikararnir
voru agndofa yfir hæfileikum hans
og færni í tónlist.“ Dominik segir
að þrátt fyrir ungan aldur sé Klaus
ótrúlega næmur og hlýr í stjórn
sinni. Hann hafi alla færni til að
verða frábært stjórnandi.
„Sem hann er reyndar nú þegar,“
bætir hann við. „Þess vegna ákváð
um við að taka hann með okkur
í tónleikaferðalagið eftir að hann
fékk að stýra hljómsveitinni í des
ember í fyrra.“
Tónleikar án áhorfenda
Dominik tók sjálfur við stöðu fram
kvæmdastjóra í mars svo hann hafði
aðeins sinnt þessu starfi í nokkra
mánuði þegar hljómsveitin ákvað
að fara að stað í tónleikaferðalag
um Evrópu.
„Ég byrjaði bara í miðju útgöngu
banni svo það var mjög sérstakur
tími.“ Hljóðfæraleikararnir sátu
ekki auðum höndum í útgöngu
banninu heldur nýttu tímann til að
æfa sig heima.
„Allt í einu höfðum við allan tím
ann í heiminum til að æfa okkur,“
segir Dominik og hlær. Hljómsveitin
hafði í nógu að snúast í kóróna
veirufaraldrinum með vikulegum
tónleikum – án áhorfenda.
„Við sendum út tónleika í gegnum
netstreymi þannig að við náðum að
spila mikið í faraldrinum og mætti
segja að hljómsveitin sé vel stillt.“
Síðastliðinn ágúst fór hljómsveit
in til Sviss, Þýskalands, Lettlands
og Slóveníu og stefnir á Búkarest í
desember.
Hlakka til að leika á Íslandi
Þetta verður fyrsta heimsókn Dom
inik og hljómsveitarinnar til Íslands
en þegar Dominik tilkynnti hljóm
sveitinni að ferðinni væri heitið til
Íslands uppskar hann mikil fagn
aðarlæti.
„Öll hljómsveitin iðar í skinninu
að fá að spila fyrir íslenska áhorf
endur,“ segir Dominik.
Hljóðfæraleikararnir hafa þó
engan tíma til að ferðast um landið
eins og túristar.
„Við mætum bara til landsins
9. nóvember, æfingin verður svo
10. og tónleikarnir það kvöld. Við
getum því miður ekki ferðast um
landið en Reykvíkingar munu
sennilega sjá hljóðfæraleikarana á
rölti um Reykjavík fyrir og eftir tón
leikana.“
Varðandi sýn hljómsveitarinnar
segir Dominik hana snúast um að
deila tónlistinni með eins mörgum
og hægt er. „Við viljum breyta lífi
fólk í gegnum umbreytandi kraft
tónlistar.“
Hann lýsir því að mikilli innlifun
þegar hljómsveitin fékk loksins að
spila fyrir áhorfendur eftir að hafa
spilað fyrir tómum sal í nær eitt og
hálft ár.
„Orkan í salnum var mögnuð
og þá var ljóst hvað síðustu mán
uðir þýddu fyrir alla. Það er alltaf
gaman að spila saman en í sýningu
án áhorfenda vantar ákveðna anda
gift. Hljómsveitin nærist á orkunni
frá áhorfendunum og gefur tvöfalt
til baka,“ segir hann og bætir við:
„Tilfinning er mögnuð. Það er
þvílíkur heiður að fá að spila fyrir
fullum sal af fólki eftir svona langan
tíma í samkomutakmörkunum.“ n
34 Helgin 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ