Fréttablaðið - 06.11.2021, Blaðsíða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Í tónleik-
húsinu er
meira
skilið eftir
fyrir per-
sónulega
túlkun
áhorfand-
ans.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
A F S L ÁT T U R
25%
STILL ANLEGIR
DAGAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
LÝKUR
UM HELGINA
SETTU ÞIG Í STELLINGAR
FYRIR BETRI SVEFN
MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT
RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er
pokagormadýna skipt upp í fimm mismunandi
svæði. Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak
og mjaðmasvæði en mýkri við axlir. Þannig tryggir
þú rétta svefnstellingu hver sem svefnstaða þín er
og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefni. Hægt er
að sérsníða rúmið eftir þínum þörfum; velja um þrjá
mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi
toppdýnur. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og
slitsterkt, ofnæmisfrítt og andar vel.
Serta Splendid stillanlegt heilsurúm með Ocean gafli
og HR toppi. 2x90x200 cm. Fullt verð: 679.900 kr.
Tilboð 509.925 kr.
odduraevar@frettabladid.is
„Það voru tvö hitamál í þessari
viku, annars vegar drottningarvið-
talið í Kveik og hins vegar bann við
lausagöngu katta,“ segir aktívistinn
Þórhildur Gyða.
„Ég ákvað því að gera heiðar-
lega tilraun til að tvinna þetta
saman. Bann við lausagöngu katta
er hræsni og kaldhæðnislegt. Mér
skilst ástæðan vera dauði fugla en
hversu marga fugla borðar meðal-
maður? Mannkynið telur sig vera
yfir aðra hafið og við níðumst á
náttúrunni og dýraríkinu af því
við getum það.
Gerendur of beldis að sama skapi
telja sig vera yfir aðra hafna og telja
það vera sinn rétt að komast upp
með of beldi. Þeir fara meira að
segja í drottningarviðtöl eða gefa út
yfirlýsingar um sakleysi sitt og ger-
endameðvirkir blikka ekki auga.
Við búum vissulega í samfélagi
þar sem orð geranda eru alltaf tekin
Hræsni og gerendameðvirk drottningarviðtöl
Þórhildur Gyða greinir samhengi í
fréttum vikunnar. MYND/AÐSEND
n Frétt vikunnar
Þórhildur Gyða Arnarsdóttir
fram yfir orð þolanda sem gefur
of beldismönnum byr undir báða
vængi og þannig getum við ekki
byggt upp þolendavænt samfélag.
En ég vil trúa því að við sem sam-
félag séum komin með nóg. Nóg af
þöggunartilburðum, nauðgunar-
menningu, gerendameðvirkni og
já, við erum líka komin með nóg
af því að náttúran og hennar lífríki
fái ekki að njóta vafans líkt og þol-
endur fá ekki að njóta vafans. Við
þurfum að læra lifa með náttúrunni
og trúa þolendum of beldis.“ n
Gerendur ofbeldis að
sama skapi telja sig vera
yfir aðra hafna.
Tónlistarkonan Margrét
Kristín Sigurðardóttir, betur
þekkt sem Fabúla, frumsýnir
nýtt tónleikhúsverk þann
17. nóvember sem ber nafnið
DAY 3578. Hún segir það hafa
verið magnaða lífsreynslu að
leyfa öðrum að rýna í verk sín
og velja lög sem stýrðu sögu-
þræði verksins.
odduraevar@frettabladid.is
„Nú erum við að æfa í Gamla bíói og
allt að smella, margir sem vinna að
þessu og margt sem þarf að f létta
saman,“ segir Fabúla sem var gjör-
samlega búin á því þegar blaðið
heyrði í henni, enda allt á fullu
þessa dagana.
Verkið segir frá Maloru, fyrr-
verandi stórstjörnu sem hvarf af
sjónarsviðinu á hátindi frægðar
sinnar. Malora hefur lokað sig inni
í 3.578 daga, hvar hún endurtekur
sama leikinn alla daga. Mörkin milli
ímyndunar og raunveruleika verða
óskýrari með hverjum deginum
sem líður, eins og höfundurinn kýs
að orða það.
Krefjandi ferli
Fabúla segir undirbúninginn hafa
gengið vel en eðli málsins sam-
kvæmt, tekið á. „Þetta hefur verið
mjög krefjandi ferli,“ segir hún hlæj-
andi. „Þannig að ég er eiginlega bara
nýskriðin á fætur!
Og núna erum við að föndra
saman myndefni, ljós, leik og tón-
list. Þetta gengur vel og er að mjakast
í rétta átt,“ segir Fabúla létt í bragði.
Í tilkynningu höfunda segir að DAY
3578 sé í raun ákveðin frumkvöðla-
starfsemi en tónleikhús er form
sviðslista sem er rétt að ryðja sér til
rúms í íslensku sviðslistalífi.
„Tónleikhúsið er talsvert opið
form og óræðara en til dæmis söng-
leikurinn en í tónleikhúsinu er meira
skilið eftir fyrir persónulega túlkun
áhorfandans og tónlist, hreyfingar
og allir aðrir þættir leikhússins flétt-
ast saman og vekja hughrif,“ segir
Fabúla og áréttar að þó sé rauður
þráður í sýningunni Day 3578.
Úrval laga Fabúlu
Hún segir þennan þráð hafa orðið
til þegar hún og meðstjórnendur
hennar lögðust yfir tónlistina
hennar. „Mig langaði að leyfa þeim
líka að velja það sem hreif þær og úr
varð val laga sem fór svo að mynda
ák veðinn rauðan þráð,“ segir
Fabúla. „Og við fáum smátt og smátt
að sjá hvers vegna Malora er föst þar
sem hún er,“ segir Fabúla.
Söngkonan á farsælan feril að
baki, jafnt sem tónlistar- og leik-
kona. Fyrstu tvær plötur hennar,
Cut my strings, og Kossafar á ilinni,
voru tilnefndar til Íslensku tón-
listarverðlaunanna. „Ég er undur
þakklát bæði samstarfsfólki mínu
og Sviðslistasjóði sem gerði okkur
kleift að setja verkið á svið,“ segir
Fabúla, auðheyrilega ánægð.
„Maður er stundum, sem lista-
maður, að grafa göng að ljósinu með
skóflu en stöku sinnum berst með-
byr sem þessi og þá er maður allt í
einu kominn á skurðgröfu. Ég vona
að áhorfendur njóti verksins. Því er
ætlað að snerta hjörtu.“ n
Fabúla fær nýja merkingu
Fabúla er á fullu
við æfingar
á tónverkinu
þessa dagana
í Gamla bíói.
MYND/SAGA SIG
60 Lífið 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ