Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 100

Fréttablaðið - 06.11.2021, Síða 100
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is Í tónleik- húsinu er meira skilið eftir fyrir per- sónulega túlkun áhorfand- ans. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 A F S L ÁT T U R 25% STILL ANLEGIR DAGAR VEFVERSLUN www.betrabak.is OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN LÝKUR UM HELGINA SETTU ÞIG Í STELLINGAR FYRIR BETRI SVEFN MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er pokagormadýna skipt upp í fimm mismunandi svæði. Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak og mjaðmasvæði en mýkri við axlir. Þannig tryggir þú rétta svefnstellingu hver sem svefnstaða þín er og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefni. Hægt er að sérsníða rúmið eftir þínum þörfum; velja um þrjá mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi toppdýnur. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og slitsterkt, ofnæmisfrítt og andar vel. Serta Splendid stillanlegt heilsurúm með Ocean gafli og HR toppi. 2x90x200 cm. Fullt verð: 679.900 kr. Tilboð 509.925 kr. odduraevar@frettabladid.is „Það voru tvö hitamál í þessari viku, annars vegar drottningarvið- talið í Kveik og hins vegar bann við lausagöngu katta,“ segir aktívistinn Þórhildur Gyða. „Ég ákvað því að gera heiðar- lega tilraun til að tvinna þetta saman. Bann við lausagöngu katta er hræsni og kaldhæðnislegt. Mér skilst ástæðan vera dauði fugla en hversu marga fugla borðar meðal- maður? Mannkynið telur sig vera yfir aðra hafið og við níðumst á náttúrunni og dýraríkinu af því við getum það. Gerendur of beldis að sama skapi telja sig vera yfir aðra hafna og telja það vera sinn rétt að komast upp með of beldi. Þeir fara meira að segja í drottningarviðtöl eða gefa út yfirlýsingar um sakleysi sitt og ger- endameðvirkir blikka ekki auga. Við búum vissulega í samfélagi þar sem orð geranda eru alltaf tekin Hræsni og gerendameðvirk drottningarviðtöl Þórhildur Gyða greinir samhengi í fréttum vikunnar. MYND/AÐSEND n Frétt vikunnar Þórhildur Gyða Arnarsdóttir fram yfir orð þolanda sem gefur of beldismönnum byr undir báða vængi og þannig getum við ekki byggt upp þolendavænt samfélag. En ég vil trúa því að við sem sam- félag séum komin með nóg. Nóg af þöggunartilburðum, nauðgunar- menningu, gerendameðvirkni og já, við erum líka komin með nóg af því að náttúran og hennar lífríki fái ekki að njóta vafans líkt og þol- endur fá ekki að njóta vafans. Við þurfum að læra lifa með náttúrunni og trúa þolendum of beldis.“ n Gerendur ofbeldis að sama skapi telja sig vera yfir aðra hafna. Tónlistarkonan Margrét Kristín Sigurðardóttir, betur þekkt sem Fabúla, frumsýnir nýtt tónleikhúsverk þann 17. nóvember sem ber nafnið DAY 3578. Hún segir það hafa verið magnaða lífsreynslu að leyfa öðrum að rýna í verk sín og velja lög sem stýrðu sögu- þræði verksins. odduraevar@frettabladid.is „Nú erum við að æfa í Gamla bíói og allt að smella, margir sem vinna að þessu og margt sem þarf að f létta saman,“ segir Fabúla sem var gjör- samlega búin á því þegar blaðið heyrði í henni, enda allt á fullu þessa dagana. Verkið segir frá Maloru, fyrr- verandi stórstjörnu sem hvarf af sjónarsviðinu á hátindi frægðar sinnar. Malora hefur lokað sig inni í 3.578 daga, hvar hún endurtekur sama leikinn alla daga. Mörkin milli ímyndunar og raunveruleika verða óskýrari með hverjum deginum sem líður, eins og höfundurinn kýs að orða það. Krefjandi ferli Fabúla segir undirbúninginn hafa gengið vel en eðli málsins sam- kvæmt, tekið á. „Þetta hefur verið mjög krefjandi ferli,“ segir hún hlæj- andi. „Þannig að ég er eiginlega bara nýskriðin á fætur! Og núna erum við að föndra saman myndefni, ljós, leik og tón- list. Þetta gengur vel og er að mjakast í rétta átt,“ segir Fabúla létt í bragði. Í tilkynningu höfunda segir að DAY 3578 sé í raun ákveðin frumkvöðla- starfsemi en tónleikhús er form sviðslista sem er rétt að ryðja sér til rúms í íslensku sviðslistalífi. „Tónleikhúsið er talsvert opið form og óræðara en til dæmis söng- leikurinn en í tónleikhúsinu er meira skilið eftir fyrir persónulega túlkun áhorfandans og tónlist, hreyfingar og allir aðrir þættir leikhússins flétt- ast saman og vekja hughrif,“ segir Fabúla og áréttar að þó sé rauður þráður í sýningunni Day 3578. Úrval laga Fabúlu Hún segir þennan þráð hafa orðið til þegar hún og meðstjórnendur hennar lögðust yfir tónlistina hennar. „Mig langaði að leyfa þeim líka að velja það sem hreif þær og úr varð val laga sem fór svo að mynda ák veðinn rauðan þráð,“ segir Fabúla. „Og við fáum smátt og smátt að sjá hvers vegna Malora er föst þar sem hún er,“ segir Fabúla. Söngkonan á farsælan feril að baki, jafnt sem tónlistar- og leik- kona. Fyrstu tvær plötur hennar, Cut my strings, og Kossafar á ilinni, voru tilnefndar til Íslensku tón- listarverðlaunanna. „Ég er undur þakklát bæði samstarfsfólki mínu og Sviðslistasjóði sem gerði okkur kleift að setja verkið á svið,“ segir Fabúla, auðheyrilega ánægð. „Maður er stundum, sem lista- maður, að grafa göng að ljósinu með skóflu en stöku sinnum berst með- byr sem þessi og þá er maður allt í einu kominn á skurðgröfu. Ég vona að áhorfendur njóti verksins. Því er ætlað að snerta hjörtu.“ n Fabúla fær nýja merkingu Fabúla er á fullu við æfingar á tónverkinu þessa dagana í Gamla bíói. MYND/SAGA SIG 60 Lífið 6. nóvember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.