Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Blaðsíða 47
45
Grasstofnatilraunin, sem hafin var vorið 1952, fékk sömu endalok og
fræblönlutilraunin, þ. e. eyðilagðist af holklaka.
5. Eyðing arfa með lyfjum.
Gerð var tilraun með að eyða arfa í nýrækt með nokkrum lyfjum á
árinu 1953, en árið 1954 voru lyfin ekki notuð, en hins vegar voru athug-
aðar eftirverkanir og uppskera vegin af tilraunareitum.
Eyðing arfa með lyfjum, nr. 28 1953.
a. Ekkert lyf.....................
b. 30 kg á ha Agrozone, 10%.......
c. 10 kg á ha Herbatox M, 30% . ...
d. 6 kg á ha Herbatox D, 50% duft . .
Hey hkg/ha Hlutföll
1953 1954 1953 1954
38.7 76.7 100 100
39.4 81.1 102 106
38.7 79.2 100 103
44.1 78.8 114 103
Tilraunin var gerð á endurræktuðu túni frá 1953 á móajarðvegi,
fremur röku. Vorið 1953 var borið í landið um 50 tonn á ha af mykju.
Agrozonið var leyst upp í sem svaraði 2000 1 á ha af vatni, en Herbatoxið
í 1000 1 á ha. Úðað var 31. júlí, og var arfinn þá farinn að vaxa nokkuð.
Það má telja nokkurn galla á þessari tilraun, að ekki var hafður einn lið-
ur, þar sem sléttan var slegin nokkrum sinnum. Með þeirri aðferð var
unninn bugur á arfanum í landinu umhverfis þessa tilraun. Tilraunin
var slegin 3. sept. og bar þá fremur lítið á arfanum í þeim reitum, sem
úðað var í, og virtist arfinn nokkuð visnaður. Ekki var sýnilegur munur
á verkunum þessara lyfja. Þegar slegið var í fyrra sinn 1954 (30. júní), sást
arfi aðeins á bletti í tveimur reitum (annar sláttur var sleginn 25. ágúst).
B. Tilraunir með komrækt.
Tilraunir með bygg- og hafraafbrigði 1954.
Sáð Skriðið Skorið 1000 korna Grómagn
dags. dags. dags. þyngd í g í%
Dönnesbygg .. 10/5 19/7 15/9 27.6 86.0
Sigurkorn .. 10/5 22/7 15/9 22.8 94.0
Tampabygg .. 10/5 21/7 15/9 21.6 89.0
Svalov Orion .... .. 10/5 25/7 Þroskaðist ekki
Viðarhafrar .. 10/5 25/7 Þroskaðist ekki