Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 101

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1955, Page 101
99 Af heimilstækjum var keypt rafmagnsþvottavél. Þá var og keypt vegna tilrauna reitasláttuvél, þurrkskápur og vigt. b. Búið. Haustið 1953 var sett á vetur af búfé: 5 kýr, 4 geldneyti og 1 kálfur, 5 hross, 321 ær, 130 lömb og 10 hrútar og sauðir. En haustið 1954 var sett á: 4 kýr, 3 geldneyti og 1 kálfur, 5 hross, 374 ær, 148 lömb, 13 hrútar og sauðir. Hænsn hafa verið 12 fyrra árið og 22 síðara árið. Auk þess voru á fóðrum upp í kaup starfsmanna veturinn 1953—54 110 kindur og 2 hross, en veturinn 1954—55 eru það 30 kindur. Vanhöld voru nú mikið minni en tvö árin á undan. Árið 1953 fórust 12 ær og 2 lömb um veturinn. Þetta ár er talið frá 1. jan,—31. okt., en árið 1954 (sauðfjárárið) frá 1. nóv. 1953—31. okt. 1954. Vanhöld árið 1954 voru: 11 ær, 2 gemlingar, 1 hrútur fullorðinn og 1 veturgamall. Geta má þess, að tvær ær hafa farizt úr garnaveiki á sauðfjárárinu 1955, en annars hefur hún undralítið gert vart við sig, og nú eru aðeins um 70 ær á fóðr- um óbólusettar við garnaveiki. Veturinn 1954 heimtust 2 lömb, annað í janúar, hitt í marz, og bætt- ust við töluna, er á vetur var sett haustið 1953. Heyfengur sumarið 1953 var áætlaður 1100 hestar, og eins og áður miðað við 100 kg úr stáli að vetri í hestburð. Var mestur hluti þess af ræktuðu landi og ábornu, en þó ca. 200—250 hestar, sem telja ætti úthey. í vothey voru settir ca. 80 hestar. Heyfyrningar frá árinu áður voru litlar, ca. 40 hestar, en vorið 1954 áætlaðar 250 hestar. Heyjað var af ýmsum öðrum, þ. e. leigðar slægjur 148 hestar. Kartöfluuppskera var hér, sem annars staðar, með eindæmum góð. Alls var uppskeran áætluð a. m. k. 160 tn. Ekki var unnt að selja nema rösklega 40 tn. Varð því útkomna eftir garðræktina allt annað en góð. Rófnauppskera varð ca. 20 tn., og var óhemju vöxtur á þeim. Örfáir pokar seldust um sumarið, en mest var gefið kúm. Geymt var úti í tveim bingjum með þunnu torf- og moldarlagi yfir, og tókst sú geymsla mjög vel. Hvítkál, blómkál og annað grænmeti spratt með ágætum. Heyfengur 1954 var áætlaður 1000 hestar — á sama hátt og áður. Svip- aður hluti og árið áður var úthey. Þar af voru um 120 hestar af áveitu- landi af nesinu. Vorið 1953 var Jökulsánni veitt á, og einnig 1954. Hélzt vatnið þó ekki eins vel á útnesinu, þar eð fyrirhleðslan, er gerð var með jarðýtu haustið 1952, bilaði nokkuð í desemberflóðinu. Grasvöxtur verð- ur strax betri í áveitustykkjunum og graslag batnar. í vothey voru nú settir ca. 210 hestar og báðar gryfjurnar við fjárhúsin kúffylltar tvisvar. 7*
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.