Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 11

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 11
í barnaskóla í Fljótsdal 1962-1965 ljóðlínuna upp aftur og aftur. Að lokum sá kennarinn sitt óvænna og hætti að gefa mér forskrifit en bauð mér þess í stað að velja sjálf kvæði og skrifa þau upp í stílabókina eins vel og ég gæti. Ég var mjög ánægð með þetta og ljóðaáhugi minn margefldist við að leita að kvæðum sem mér fundust skemmtileg. Skriftin lagaðist líka heldur, þó að aldrei yrði hún mjög áferðarfalleg. Fyrirkomulag kennslunnar var þannig að skólinn byrjaði klukkan 9:00 og var til klukkan 14:00. Krakkamir höfðu með sér nesti í skólatöskunni og borðuðu í hádeginu við skólaborðin, nema ég sem fór fram í eldhús á Klaustri til þess að borða með heimilisfólkinu. Skólinn skiptist í yngri og eldri deild og voru 12 til 14 ára böm í eldri deild en 11 ára og yngri í yngri deild. Hvorri deild fyrir sig var kennt í þrjár vikur, að mig minnir, en á meðan lærði hin deildin heima og setti kennarinn þá væntanlega fyrir námsefni en eftir því man ég ekkert. Tvo fyrstu vetur mína í skólanum gekk skólabíll á hverjum degi norður dal á milli Skriðuklausturs og Hjarðarbóls. Á þeirri línu var oftast fært og þar vom böm á skóla- skyldualdri á hverjum bæ. Eitthvað var þá líka byrjað að keyra frá eystri helmingi sveitar- innar og einnig krakka frá Valþjófsstað. Krökkum úr Norður- og Suðurdal var komið fyrir á bæjum í miðri sveit líkt og var með okkur sem bjuggum yst. Ég átti heima á sveitarenda að norðan og engum lifandi manni datt þá í hug að hægt væri að senda bíl alla þá leið eftir einum krakka. Allra síst hefði það hvarflað að föður mínum sem á þessum ámm var í hreppsnefnd og skólanefnd, líklegast formaður hennar, að auka svo útgjöld sveitarsjóðs að nauðsynjalausu. Eldri systkini mín höfðu öll þurft að fara að heiman í skóla. Foreldrar bama sem koma þurfiti fyrir á bæjum greiddu líklegast eitthvað með þeim en engar upplýsingar hef ég um hvað greitt var með mér á Klaustri og aldrei heyrði ég á það minnst. Hvemig var svo að vera send í skóla fjarri heimili sínu? Að þurfa að kveðja mömmu eldsnemma á mánudagsmorgni og sjá hana ekki aftur fyrr en síðdegis á laugardegi. Á þessum árum var skólavikan sex dagar eins og vinnuvikan. Ohætt er að segja að það reyndist lítilli sálu mjög erfitt til að byrja með, ekki síst á kvöldin þegar að ég átti að fara að sofa. Á Skriðuklaustri var díselmótor til raf- magnsframleiðslu. Hann var í kjallaranum og var mjög hávær og barst niðurinn frá honum um allt húsið. Ennþá man ég óendanlega þögnina - og myrkrið, þrátt fyrir olíulampana, sem helltist yfír þegar slökkt var á mótomum seint á kvöldin. Heima á Droplaugarstöðum var vatnsafls- virkjun til rafmagnsframleiðslu og alltaf hægt að kveikja ljós ef rafmagnið var í lagi. Ut frá niðinum í fossunum í Hrafnsgerðisánni sem rennur skammt frá bænum, hafði ég sofnað alla mína ævi og á Klaustri fannst mér þögnin á kvöldin vera ærandi. I byrjun fannst mér tíminn líka oft lengi að líða og óralangt þangað til að laugardagurinn kæmi. Á þetta minntist ég þó aldrei við foreldra mína, enda mun ég hafa litið á þetta sem mitt vandamál en ekki þeirra. Kennslutíminn leið oftast hratt en þegar að skóla lauk og ég varð ein eftir fór tíminn að líða hægt. Allir hinir krakkarnir fóm heim með skólabílnum eða að minnsta kosti heim með einhverjum. Oftast fór ég eitthvað út seinni partinn en þar var lítið við að vera. Á Klaustri voru allir mér mjög góðir en þar var ekki eiginlegt heimili eins og á sveitabæjum, heldur voru þarna frekar eins og húsbændur og hjú og á kvöldin voru flestir í rólegheitum í sínum vistarverum. Stundum vom ráðskonur á Klaustri með litla krakka sem lífguðu upp á tilveruna en ég var oftast eina skólabarnið þar þessa vetur. Brátt vandist ég líka breyttu umhverfi og heimþráin lét undan síga. 9
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.