Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2014, Page 18
Múlaþing
í Skógargerði var um tíma heimiliskennari
á Ekkjufelli. Hún var kvennaskólagengin á
Blönduósi.
En var ekki farskóli í gangi?
Ja, það var seinna, ég var aldrei í farskóla.
Fyrsti kennarinn sem var sveitakennari,
það var 1911 í Fellunum, var Einar Sveinn
Jóhannsson. Hann var kennaraskólagenginn.
Hann var þama úr Fellunum faðir hans var
náskyldur Þorvarði Kjerúlf, ég veit ekki
hvaðan móðir hans var. Hún hét Elín og dó
þegar hún átti hann. Veturinn 1908-9 var
hann um tíma á Staffelli, einhverja mánuði,
ekki farkennari þó. Pabbi tók hann bara sem
kennara til að kenna okkur krökkunum. Hann
kenndi okkur að skrifa og reikna og svolítið
í Islandssögunni og landaffæðinni. En hann
var svo reiður yfír að hafa engin tæki. Það
kom ekki einu sinni landakort almennilegt
fyrr en 1911, já það kom þá þarna í Fellin og
hnattlíki. Eg man eftir að hann var að sýna
okkur uppdrátt af Islandi, hvar Skálholt væri
og hvar Hólar væm. Eg man alltaf eftir því að
hann strikaði þetta allt á þilið. Landafræðin
var nú eftir Karl Finnbogason. Svo var
nú verið að hlýða mér yfír í kverinu fyrir
ferminguna. Eg kunni vel, ég fór ekki með
íyrr en ég kunni. Við fermingu spurði hann
okkur ýmissa spuminga úr kverinu presturinn,
já og lét okkur fara með ritningagreinar, en
það var nú ekkert mikið.
Ekkert meira en er í dag?
Jú, ég held að það hafí nú verið öðruvísi
kristindómur þá heldur en er núna, ég veit
ekki. Allt öðruvísi kver, Helgakver, 18 kafla
kver eftir Helga Hálfdánarson og ég kunni það
bara alveg utanbókar, 100 blaðsíður.
Að hvaða leyti heldurþú að kristindómnrinn
sé öðruvísi nú til dags?
Já, ég held hann sé kannski öðruvísi. Eg hef
ekki séð þessar fræðibækur um kristindóminn.
Oddur Sigfússon bóndi á Staffelli. Eigandi myndar:
Ljósmyndasafn Austurlands.
En svo kom kver sem var nú að koma í notkun
þegar við fermdumst. Það var kallað svona
stundum tossakver, það var miklu styttra. Það
lærði ekkert okkar systkinanna það kver nema
Bjarni bróðir minn, hann var yngstur.
En hvernig er kristindómurinn í dag öðruvísi?
Ja, ég get ekki sagt það. Því ég kynnist ekki
ungdómnum en mér fínnst hann læra lítið
og ég hef heyrt fermd börn upp á þetta vers
bara, hérna: Vertu guð faðir faðir minn/ í
frelsarans Jesúnafni/Hönd þín leiði mig út
og inn/ svo allri synd ég hafni. Eg hef heyrt
þetta í útvarpinu. Foreldrar mínir höfðu þann
sið, pabbi, að lesa húslestur alltaf um helgar
á sumrin og á veturna líka. Við sungum
alltaf með. Svo vom lesnir Passíusálmamir
á föstunni. Það var ekki víða þá. Eg held
það hafí víða verið niðurlagt. Eg skal ekki
segja um það þó, ég þekkti ekki mikið. Það
var nú ekki stór heimur þama. Það var ekki
eins og núna. Allur hnötturinn bara. Maður
fylgist með um allan hnöttinn. Og svo er
16